Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skúli Tómas sinnir sjúklingum á Landspítalanum af og til: „Þetta er bara ógeðslegt“

Skúli Tómas sinnir sjúklingum á Landspítalanum af og til: „Þetta er bara ógeðslegt“
Skúli Tómas Gunn­laugs­son.

Ættingi meints fórn­ar­lambs Dr. Skúla Tómasar Gunn­laugs­sonar, seg­ist fara úr jafn­vægi í hvert sinn sem fréttir ber­ast af lækn­inum. Vísir sagði frá því í dag að Skúli sinni stundum sjúk­lingum á Land­spít­al­anum, þrátt fyrir að vera grun­aður um að hafa valdið ótíma­bærum dauða níu sjúk­linga á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja á árunum 2018 til 2020.

Dr. Skúli Tómas Gunn­laugs­son hefur stöðu grun­aðs vegna ótíma­bær and­láts níu sjúk­linga hans á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja á árunum 2018 til 2020 en Mannlíf hefur fjallað ítar­lega um málið, meðal ann­ars rætt við ætt­ingja meintra fórn­ar­lamba lækn­is­ins.

Sjá einnig: Móðir Óla var sjúk­lingur Skúla: „Þú ert að fremja morð hérna beint fyrir framan okkur“
Sjá einnig: Ólafía er eitt af 14 meintum fórn­ar­lömbum dr. Skúla: „Í raun­inni sveltur hún til dauða á níu dögum“

Samkvæmt frétt Vísis fékk frétta­vef­ur­inn stað­fest­ingu frá Land­spít­al­anum að Skúli Tómas hafi komið að umönnun sjúk­linga af og til, þegar mann­ekla hefur verið á spít­al­anum. Árið 2021 fékk Skúli Tómas tíma­bundið starfs­leyfi frá Ölmu Möller, land­lækni, þrátt fyrir algjöran áfell­is­dóm hennar í skýrslu um með­ferð­ina á Dönu Jóhanns­dóttur, sem lést í umsjá Skúla Tómasar á HSS. Síðan hefur starfs­leyfið verið fram­lengd. Í maí árið 2022 var hann svo sendur í leyfi því erfitt þótti að tryggja að hann kæmi ekki að umsjá sjúk­linga á spít­al­anum.

Sjá einnig: Dr. Skúli fékk víst starfs­leyfi – Rann­sak­aður af lög­reglu en fær að vinna næstu 12 mán­uði

Samkvæmt Vísi starfar Skúli þó enn á Land­spít­al­anum við það að yfir­fara gögn sjúk­linga til stuðn­ings við störf ann­arra lækna á bráða­dag­deild lyfja­lækn­inga. Í neyð­ar­til­fellum hefur Skúli þó af og til sinnt sjúk­lingum spít­al­ans.

„Bara á Íslandi!“

Beggi Dan, sonur Dönu Jóhanns­dóttur, eins af meintum fórn­ar­lömbum Skúla Tómasar, segir í sam­tali við Mannlíf vera bál­reiður yfir þessum fregnum. „Ég verð bara furios, ég er svo þreyttur á þessu. Og í hvert skipti sem þetta kemur upp, þá fer maður bara úr jafn­vægi. Þetta er bara ógeðs­legt,“ sagði Beggi í sam­tali við Mannlíf. Beggi segir einnig að það sé með ólík­indum að eiga það á hættu að vera sinnt af manni sem grun­aður er um að bera ábyrgð á dauða móður hans. „Hugsaðu þér, ætt­ingjar fórn­ar­lamba Skúla, gætu lent í því að þurfa á bráða­að­stoð að halda á Land­spít­al­anum og Skúli Tómas Gun­laugs­son tekur á mót þeim. Bara á Íslandi!“

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeð­höndl­aðar sýk­ingar kunni að hafa verið aðal dán­ar­or­sök“
Sjá einnig: Sonur meints fórn­ar­lambs Skúla læknis svarar: „Ég varð vitni af því þegar móðir mín var aflífuð“

Þá segir Beggi að verði Skúli fund­inn sekur, verði erfitt fyrir Land­spít­al­ann að færa rök fyrir því að hafa leyft honum að starfa við spít­al­anna á meðan mann­dráps­rann­sóknin stóð yfir. „Hvernig ætlar Land­spít­al­inn að standa við þá ákvörðun að hafa haft hann í vinnu og látið hann sinna sjúk­lingum? Það er það sem ég skil ekki.“

Eva Hauks­dóttir, systir Begga seg­ist í sam­tali við Mannlíf vilja vita hvernig heil­brigð­is­kerfið upp­lýsi sjúk­linga um stöðu lækn­is­ins: „Ef fyrir liggur upp­lýst sam­þykki sjúk­lings að þiggja umönnun hans þá sé ég ekk­ert því til fyr­ir­stöðu. En mig langar að vita hvernig heil­brigð­is­kerfið standi að því að upp­lýsa sjúk­linga um þá stöðu sem lækn­ir­inn er í og hvers­konar sakir það eru sem nú hafa verið til rann­sóknar frá því í febr­úar 2021.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi