Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ástþór veður í skoðanakannanirnar: „Það hringdi í mig taugaæstur maður frá þessari biluðu Maskínu“

Ástþór veður í skoðanakannanirnar: „Það hringdi í mig taugaæstur maður frá þessari biluðu Maskínu“
Ástþór (Kristur) Magn­ús­son Mynd: Trausti Hafsteinsson

Stöð 2 og Morg­un­blaðið mis­munar for­seta­fram­bjóð­endum á for­sendum skoð­ana­kann­ana að sögn Ástþórs Magn­ús­sonar, sem var í við­tali hjá Útvarpi Sögu.

Ástþór Magn­ús­son for­seta­fram­bjóð­andi segir Morg­un­blaðið og Stöð 2 brjóta gegn lýð­ræð­inu á sama tíma og fjöl­miðl­arnir fá á annað hund­rað millj­ónir frá hinu opin­bera í þeim til­gangi að styrkja lýð­ræð­is­lega umræðu. For­sendur skoð­ana­kann­ana er dæmi um þetta að sögn Ástþórs.

„Það er búið að vera að spila mikið með þjóð­ina með þessum könn­unum í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna,“ segir Ástþór í við­tal­inu sem Arn­þrúður Karls­dóttir tók. Og hélt áfram: „Og þær byrj­uðu nú þannig að þær komu frá ákveðnum fram­boðum. Ef ég man rétt var sú fyrsta frá Baldri.“

Arn­þrúður Karls­dóttir: „En þeir voru heið­ar­legir með það.“

Ástþór: „En þessu var slegið upp í fyr­ir­sögnum til að búa til vissan veru­leika og mitt nafn var til dæmis aldrei með í þeim könn­unum. Svo er til ein­hver sna­biluð Maskína, sem býr til kann­anir.“

Arn­þrúður: „Veistu hverjir eru eig­endur þar?“

Ástþór: „Nei ég þekki það ekki. Þú veist það kannski?“

Arn­þrúður: „Já. Þú ættir að athuga hverjir eru eig­endur.“

Ástþór: „Viltu ekki bara segja hlust­endum það?“

Arn­þrúður: „Já, nei, nei, nei.“

Ástþór: „Arn­þrúður, þú þarft nú að vera heið­ar­leg við þína hlust­endur. Þú verður að segja frá því ef þú hefur upp­lýs­ingar.“

Arn­þrúður: „Já ég vil hafa það allt stað­fest.“

Ástþór: „Já, já. En það hringdi ein­hver í mig núna, nokkuð tauga­æstur maður frá þess­ari bil­uðu Maskínu og var að reyna að biðja mig um að hætta með aug­lýs­ingu sem fór í loftið í gær á sam­fé­lags­miðlum. Þar er ég að kynna nýja könnun og er að segja hvernig Maskína hannar nið­ur­stöður eftir því sem maður vill. Og fólk getur kynnt sér þetta, það er inni á Facebook-síðu fram­boðs­ins, Forseti 2024.“

Þá segir Ástþór að Stöð 2 sé að „leika sama leik­inn og 2016“ með því ætla að ræða aðeins við þá fram­bjóð­endur sem mæl­ast hvað hæst í könn­unum Maskínu, sem séu ekki áreið­an­legar þar sem, að sögn Ástþórs, er hægt að stýra nið­ur­stöð­unum þeirra. Nefnir hann einnig bein tengsl Gallup inn í fram­boð Katrínar Jak­obs­dóttur. Morg­un­blaðið fær einnig á bauk­inn hjá Ástþóri en hann segir að í hring­ferð blaðs­ins um landið sé aðeins rætt við þá fram­bjóð­endur sem valdir voru sam­kvæmt fylgi þeirra í skoð­ana­könn­unum.

Segir Ástþór að bæði Stöð 2 og Morg­un­blaðið sé með þessu að mis­nota það fé sem fjöl­miðlar fá, bein­línis með þeim skil­yrðum að féið sé notað til að styrkja lýð­ræð­is­lega umræðu. Bendir hann einnig á að Fjöl­miðla­nefnd hafi gefið út leið­bein­ingar til fjöl­miðla varð­andi kosn­inga­um­fjöllun og að þar sé sér­stak­lega minnst á að gæta þurfi jafn­ræðis meðal fram­boða. Segir hann að ofan­greindir fjöl­miðlar ættu að skila styrkj­unum aftur til rík­is­ins, þar sem þeir séu að hampa sumum fram­bjóð­endum en öðrum ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi