Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Barnahrellir tók 12 ára stúlku hálstaki: „Hún nær að bíta hann og rífa sig lausa“

Barnahrellir tók 12 ára stúlku hálstaki: „Hún nær að bíta hann og rífa sig lausa“
Víði­staða­skóli. Ljós­myndin teng­ist frétt­inni óbeint. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Karl­maður veitt­ist að tæp­lega 12 ára stúlku sem var á leið í Víði­staða­skóla í morgun en hún náði að bíta hann og sparka sig lausa. Er þetta fjórða til­fellið um svipað atvik á rúm­lega þremur vikum í hverf­inu.

Mannlíf sagði frá því á dög­unum að maður í app­el­sínugulri úlpu hefði veist að nokkrum krökkum í Norðurbæ Hafn­ar­fjarðar en talið er að mað­ur­inn sé af erlendu bergi brot­inn. Í morgun var svo til­kynnt um fjórða til­fellið en lög­reglan getur þó ekki stað­fest að um sama mann sé að ræða.

Sjá einnig: Karl með yfir­var­ar­skegg herjar á börn í Hafn­ar­firði:„Fólk slegið og óör­uggt að senda börnin ein út“

Móðir tæp­lega 12 ára gam­allar stúlku skrif­aði eft­ir­far­andi færslu á íbúða­síðu hverf­is­ins á Facebook:

„Varúð!

Dóttir mín var á leið í Víði­staða­skóla í morgun (örlítið of sein) og maður kemur aftan að henni, tekur hana háls­taki og fyrir munn­inn. Hún nær að bíta hann, sparkar aftur fyrir sig og nær þá að rífa sig lausa. Þegar hún sparkar virð­ist hann blóta en ekki á tungu­máli sem dóttir mín skilur. Lýsing hennar passar að nokkru leiti við mann­inn sem varað var við í byrjun maí en þessi var í svartri úlpu með hettu sem huldi að hluta and­lit hans en ekki app­el­sínugulri.

Þetta var nálægt sparkvell­inum við víði­staða­skóla en rétt fyrir utan það svæði sem mynda­vélar skól­ans ná á.“

Mannlíf heyrði í Skúla Jónsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjón lög­regl­unnar í Flata­hrauni í Hafn­ar­firði. Segir hann að málið sé hið fjórða á rúm­lega þremur vikum sem til­kynnt hafi verið til lög­regl­unnar, þar sem karl­maður veit­ist að börnum. „Við fengum til­kynn­ingu í morgun um það atvik en þar er maður sem veit­ist að tæp­lega 12 ára stúlku og hún kemst undan honum. Og við erum í raun bara leit­andi að þeim manni og erum með það til rann­sóknar. En við erum ekki búin að hafa upp á honum.“

Aðspurður hvort um sé að ræða sama mann og í hinum mál­unum segir Skúli að ekki sé hægt að stað­festa það með óyggj­andi hætti. „Við vitum það í raun­inni ekki fyrir víst. Lýs­ing­arnar koma nátt­úru­lega frá börnum og þetta eru flottar lýs­ingar en þetta ber svo sem ekki allt saman en þetta eru fjórar til­kynn­ingar á rúm­lega þremur vikum og við erum í raun með það allt saman undir en við erum ekki búin að hafa upp á honum en erum með þetta til rann­sóknar og leggjum áherslu á að hafa upp á þessum manni.“

Móðir stúlkunnar segir í sam­tali við Mannlíf að dóttir hennar sé mjög brugðið. „Hún er í sjokki og aum í háls­inum og rám eftir háls­takið,“ segir móð­irin og bætir við að búið sé að fá áverka­vott­orð að málið sé komið í kæru­ferli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi