Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nemandinn sem stakk Ingunni ákærður fyrir tilraun til manndráps:„Mjög sérstakt og skelfilegt atvik“

Nemandinn sem stakk Ingunni ákærður fyrir tilraun til manndráps:„Mjög sérstakt og skelfilegt atvik“
Ingunn Björns­dóttir stuttu eftir árás­ina. Mynd: Ingunn Björnsdóttir

Nem­and­inn sem stakk Ingunni Björns­dóttur og sam­kenn­ara hennar í Háskól­anum í Osló í fyrra hefur verið ákærður fyrir til­raun til mann­dráps.

Sjá einnig: Árás­armað­ur­inn er norskur: „Ekki dettur okkur samt í hug að alhæfa um Norðmenn“

Karlkyns nem­andi á þrí­tugs­aldri hefur verið ákærður fyrir til­raun til mann­dráps og alvar­legar lík­ams­meið­ingar gegn tveimur kenn­urum, að því er VG greinir frá.

Það var þann 24. ágúst í fyrra sem nem­and­inn réð­ist á tvo kenn­ara með hnífi í hús­næði lyfja­fræði­deildar Osló­ar­há­skóla. Annar þeirra, hin íslenska Ingunn Björns­dóttir slas­að­ist alvar­lega en hinn kenn­ar­inn slapp með minni­háttar meiðsl.

Neitar sök

Nem­and­inn neitar sök fyrir til­raun til mann­dráps en við­ur­kennir sekt fyrir lík­ams­meið­ingar, skrifar blaðið.

Það var síð­degis 24. ágúst í fyrra sem nem­and­inn réð­ist á hina 64 ára gömlu Ingunni Björns­dóttur, dós­ents, með hnífi í hús­næði lyfja­fræði­deildar Osló­ar­há­skóla.

Samkvæmt ákæru skar nem­and­inn Ingunni Björns­dóttur á háls, stungið hana í kvið og efri hluta lík­am­ans – og veitt níu önnur stungu­sár á hand­legg og fæti Ingunnar.

Ingunn komst lífs af vegna þess að sam­kenn­ari hennar og fleiri gripu inn í, en hníf­ur­inn stakkst ekki í lífs­nauð­syn­leg líf­færi og vegna þess að hún fékk skjóta lækn­is­hjálp, segir í ákærunni.

Tilefni er til að sækja hann til saka fyrir að hafa reynt að drepa annað fórn­ar­lambið og fyrir að hafa veitt hinu lík­ams­meið­ingum sem eru í skiln­ingi laga, alvar­legar, segir Hulda Olsen Karls­dóttir rík­is­sak­sókn­ari hjá rík­is­sak­sókn­aremb­ætt­inu í Ósló.

Hefur náð sér vel líkamlega

Ingunn Björns­dóttir er frá Íslandi og starfar sem dós­ent við lyfja­fræði­deild Háskól­ans í Ósló.

„Ég hef náð mér mjög vel lík­am­lega, en ég varð fyrir nokkrum meiðslum sem þurftu aðeins meiri þjálfun til að koma mér í lag aftur. Það gengur ótrú­lega vel, en með mik­illi vinnu,“ segir Ingunn í sam­tali við VG.

„Andlega hefur þetta verið aðeins meira upp og niður, en ég mun bíða þangað til rétt­ar­höldin fara fram með að útskýra þetta nánar,“ bætti hún við.

Stuttu fyrir hnífa­árás­ina er nem­and­inn sagður hafa fallið á próf­inu – og þegar hann fékk ástæð­una fyrir fall­inu, réðst hann á kenn­ara sína.

Stúd­ent­inn er einnig ákærður fyrir grófar lík­ams­meið­ingar gegn kenn­ar­anum sem hjálp­aði Ingunni er árásin átti sér stað.

Samkvæmt ákæru var sam­starfs­mað­ur­inn stung­inn nokkrum sinnum í vinstri og hægri fram­hand­legg.

„Þetta er mjög sér­stakt og skelfi­legt atvik sem hefði fljótt getað haft ban­vænar afleið­ingar fyrir fórn­ar­lambið ef sam­starfs­mað­ur­inn hefði ekki gripið inn í og ​​bjargað lífi hennar með því að yfir­buga ger­and­ann, segir lög­maður kennar­anna,“ Hege Salomon, við VG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta