Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögregluþjónninn með haglarann: „Leit hann á okkur með drápsaugum“

Lögregluþjónninn með haglarann: „Leit hann á okkur með drápsaugum“
Höglin lentu í aft­ur­hluta bif­reið­ar­innar bíl­stjóra­megin. Mynd: DV-mynd S

Þann 19. apríl, árið 1990, átti sér stað atburður í Borg­ar­nesi og í raun mesta mildi að mála­lyktir urðu ekki hörmu­legri en raun bar vitni. Aðfara­nótt sum­ar­dags­ins fyrsta skaut ölv­aður lög­reglu­þjónn, á frí­vakt, úr hagla­byssu á bif­reið sem ekið var fram hjá fjöl­býl­is­húsi þar í bæ.

Sem fyrr segir var sum­ar­dag­ur­inn fyrsti handan horns­ins og fjögur ung­menni voru í mesta sak­leysi á rúnt­inum í blokka­hverfi bæj­ar­ins. Sautján ára stúlku, sem var í bílnum, sagð­ist síðar svo frá: „Við vorum að keyra um í blokka­hverfi þegar ég sá lög­reglu­þjóna fyrir utan inn­gang­inn við eitt fjöl­býl­is­húsið við Kveld­úlfs­götu. Þeir virt­ust vera að reyna að kom­ast inn – eitt­hvað var að. Ég vissi ekk­ert hvað var að ger­ast. Við keyrðum síðan eftir göt­unni og fórum hinum megin við húsið, svala­megin.“

Auk hennar voru í bílnum vin­kona hennar, jafn­gömul, og tveir ungir karl­menn, rúm­lega tví­tugir að aldri. Að sögn stúlkunnar sagði einn mann­anna skyndi­lega: „Sjáið þið mann­inn með byss­una.“ Þá litu þau öll upp og einn ungu mann­anna sagði: „Sjáið þið mann­inn með byss­una?“ Á svölum einnar íbúð­ar­innar stóð maður sem þau vissu deili á og senni­lega leist þeim ekki á það sem sáu. „Þá leit ég upp og sá mann, sem við vitum að er lög­reglu­þjónn, úti á svölum með hagla­byssu. Sá maður var ekki á vakt,“ sagði fyrr­nefnd stúlka í sam­tali við DV á sínum tíma. Sagði stúlkan að mað­ur­inn á svöl­unum hefði verið í úlpu og verið með hagla­byssu í hönd­unum. Sval­irnar til­heyrðu íbúð á mið­hæð fjöl­býl­is­húss­ins. „Hann hafði greini­lega verið að skjóta úr byss­unni. Þegar hann sá okkur flýtti hann sér að setja önnur skot í byss­una. Hann mið­aði síðan á bíl­inn og hleypti að minnsta kosti einu sinni af. Við beygðum okkur niður til að forð­ast skot­hríð­ina. Ég var á hægri ferð og beygði mig niður og náði því ekki að sjá alveg hvað var fram undan,“ sagði stúlkan sem sat undir stýri bif­reið­ar­innar. Stúlkan bætti við að þau hefðu orðið dauð­skelkuð og skyldi engan undra það.

„Það heyrð­ust háir hvellir þegar skot­hríðin dundi á bílnum. Ég tók beygju og var næstum því búin að keyra á annan bíl. Skotin lentu á vinstri aft­ur­hluta bíls­ins. Ég leit aftur upp. Maðurinn virt­ist þá drífa sig að hlaða byss­una aftur til að skjóta. Ég var svo skelkuð að ég datt eig­in­lega úr sam­bandi á tíma­bili,“ hafði DV eftir stúlkunni.

Þegar þarna var komið sögu var klukkan að ganga fimm um morg­un­inn.

Að sögn stúlkunnar biðu ung­mennin ekki boð­anna, óku á brott og beint niður á lög­reglu­stöð til að kæra mann­inn. Þegar þau komu að lög­reglu­stöð­inni skoð­uðu þau bif­reið­ina: „Ætli við höfum ekki verið í um fimm­tíu metra fjar­lægð frá mann­inum þegar hann skaut á okkur. Ég heyrði mikla hvelli þegar höglin lentu á bílnum. Við skulfum ansi vel á eftir. Þetta var hræði­legt og maður var í algjöru sjokki þegar þetta stóð yfir.“

Sem fyrr segir sáu ung­mennin í upp­hafi þess­arar atburða­rásar lög­reglu­þjóna við húsið og því ljóst að þeir höfð heyrt af umræddum kollega sínum og því sem hann var að dunda sér við á svöl­unum.

„Skot­mað­ur­inn hafði eitt­hvað verið að munda byss­una fyrr um nótt­ina. Við komum svo aftur að hús­inu þegar búið var að ná mann­inum. Þá voru þrír lög­reglu­þjónar komnir. Þegar skot­mað­ur­inn var leiddur út leit hann á okkur með dráps­augum. Hann var leiddur niður, í Rambó-úlpu, var með bjór í hend­inni og gekk óhand­járn­aður út,“ sagði stúlkan.

Rúnar Guð­jóns­son sýslu­maður vildi lítið tjá sig við DV og sagði að erfitt væri að segja nokkuð því um væri að ræða starfs­mann lög­reglu­emb­ætt­is­ins. Gat Rúnar ekki einu sinni upp­lýst hvort skot­glaði lög­reglu­þjón­inn hefði verið færður í fanga­geymslur í kjöl­far atviks­ins.

Í des­em­ber sama ár ákærði Rík­is­sak­sókn­ari umræddan lög­reglu­þjón og var kraf­ist refs­ingar sam­kvæmt 4. máls­grein 220. greinar almennra hegn­ing­ar­laga. Í henni segir: „Varð­haldi eða fang­elsi allt að 4 árum skal sá sæta, sem í ábata­skyni, af gáska eða á annan ófyr­ir­leit­inn hátt stofnar lífi eða heilsu ann­arra í aug­ljósan háska.“ Einnig var þess kraf­ist að hagla­byssa lög­reglu­þjóns­ins yrði gerð upp­tæk. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni