Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hafnarfjarðarbær leggur niður Hamarinn: „Við erum rekin og öllu hent í ruslið“

Hafnarfjarðarbær leggur niður Hamarinn: „Við erum rekin og öllu hent í ruslið“

Óskar Steinn Ómarsson var rétt í þessu að segja frá nið­ur­skurði hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ sem bitnar á ungu fólki í bænum.

„Seinni part­inn í gær fékk ég sím­tal frá mannauðs­deild Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar. Mér var til­kynnt að fræðslu­ráð hefði, fyrr um dag­inn, ákveðið á fundi að leggja niður Hamarinn ung­menna­hús og segja upp mér og öðrum sem þar starfa.“

Óskar nefnir að „til­laga meiri­hluta fræðslu­ráðs var lögð fram, öllum að óvörum, í formi minn­is­blaðs sem unnið hafði verið fyrir luktum dyrum. Án aðkomu minni­hlut­ans í fræðslu­ráði og án sam­ráðs við okkur sem störfum í geir­anum eða ung­menni sem nýta sér þjón­ust­una.“

Það sem Óskari þykir „einna verst er að ákvörð­unin var tekin án nokk­urs sam­ráðs við ung­menna­ráð Hafn­ar­fjarðar, sem hefur á síð­ustu miss­erum kallað eftir sam­ráði við bæj­ar­yf­ir­völd og komið með vel ígrund­aðar til­lögur um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag ung­menna­húsa í Hafn­ar­firði. Það er blaut tuska í and­lit ung­menn­anna að þau hafi talað fyrir daufum eyrum og meiri­hluti bæj­ar­stjórnar haft önnur áform allan tím­ann.“

Sjálfur byrj­aði Óskar „að vinna með ung­menna­ráði Hafn­ar­fjarðar haustið 2019 og fór í fram­hald­inu að sinna ýmsum öðrum verk­efnum í Hamrinum ung­menna­húsi, en Hamarinn var opn­aður í kjöl­far til­lögu ung­menna­ráðs um stofnun ung­menna­húss í Hafn­ar­firði. Ég hef meðal ann­ars komið að því að setja af stað starf fyrir hinsegin ung­menni í Hafn­ar­firði og tekið þátt í Úti-Hamrinum, úti­vist­ar­verk­efni sem Margrét Gauja okkar kom af stað og hefur hjálpað svo mörgum ung­mennum að kynn­ast nátt­úru Íslands og áhrifum úti­vistar á and­lega heilsu.“

Hann segir að aðal verk­efni hans „í Hamrinum hefur sem fyrr segir verið að aðstoða ung­menna­ráð Hafn­ar­fjarðar í störfum sínum. Aðstoða þau við að hafa áhrif á nær­sam­fé­lag sitt og koma hug­myndum sínum á fram­færi. Það hafa verið algjör for­rétt­indi að fá að vinna með þessum ótrú­legu ung­mennum, fylgja þeim í sam­starfs- og ung­menna­skipta­verk­efnum bæði hér­lendis og út fyrir land­stein­ana, hjálpa þeim að koma hug­myndum sínum í orð og leið­beina þeim um stjórn­sýslu bæj­ar­ins.“

Hann rekur enda­hnút­inn á kraf­mik­illi færslu sinni með þessum orðum:

„Það er með ólík­indum að meiri­hluti bæj­ar­stjórnar hafi ákveðið að virða þau að vettugi og neita þeim um aðkomu að ákvörðun að þess­ari stærð­argráðu. Framtíð ung­menna­ráðs­ins er óráðin og ekki að skilja á minn­is­blaði fræðslu­ráðs að því hafi verið gef­inn nokkur gaumur hvar starf­semi þess lendir í þessum breyt­ingum eða hvort við í Hamrinum eða ein­hver annar muni bera ábyrgð á því. Það eina sem við vitum er að við erum rekin og öllu því frá­bæra ung­menna­starfi sem við höfum byggt upp á und­an­förnum árum verður hent í ruslið eftir sum­ar­frí.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi