Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skólahjúkrunarfræðingur handjárnaði þroskahamlaða stjúpdóttur sína við rúm

Skólahjúkrunarfræðingur handjárnaði þroskahamlaða stjúpdóttur sína við rúm
Hin grun­aða

Kona frá Penn­syl­vaníu í Banda­ríkj­unum, sem starf­aði sem skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ingur í skóla fyrir börn með sér­þarfir, hefur verið hand­tekin, grunuð um að hafa hand­járnað ætt­leidda dóttur sína við rúm hennar en stúlkan er þroska­hömluð.

Marylou Dewitt hefur verið ákærð fyrir van­rækslu á umönn­un­ar­háðum ein­stak­lingi, að stofna vel­ferð umönn­un­ar­háðs ein­stak­lings í hættu, lík­ams­árás, að stofna ein­stak­lingi í hættu, áreitni, að halda mann­eskju fang­inni, ólög­lega hand­járnun og fyrir að hafa átt við sönn­un­ar­gögn, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu um hand­töku í gegnum Law&Crime.

Handtaka hennar kom í kjöl­far neyð­ar­línusím­tals rétt fyrir klukkan 02:00, aðfara­nótt fimmtu­dags. Dóttir Dewitts er sú sem hringdi í lögg­una eftir að hún kom heim úr búð um mið­nætti og „heyrði öskur koma frá efri hæð hús­næð­is­ins,“ að sögn gögnum máls­ins..Konan sagði að móðir hennar hefði hlekkjað and­lega fatl­aða, ætt­leidda systur sína við rúm í óþekktan tíma þar sem hún hefði aðeins aðgang að sam­lokum en ekki öðrum mat. Konan á að hafa skjal­fest það sem hún sá í her­berg­inu með myndum og mynd­böndum, áður en hún fann lykla að keðj­unum í nest­is­boxi og los­aði systur sína.Samkvæmt lög­reglu sýndu mynd­irnar og upp­tök­urnar stúlk­una „hand­járn­aða við rúm­grind úr viði og keðju sem vafð­ist um háls hennar. Keðjan var vafin inn í bleikan stutt­erma­bol. Þá hélt hjóla­keðja stúlkunni við mjaðma­svæði hennar.“Andliti fórn­ar­lambs­ins á myndum syst­ur­innar frá vett­vangi glæps­ins var lýst sem „bólgnu“ á meðan konan sagði að Marylou „hafi byrjað að gera þetta í síð­ustu viku og skildi aðeins eftir sam­lokur fyrir hana að borða. Hún sagði einnig að Dewitt „hafi verið að láta hana „pissa og kúka“ sjálf,“ en mynd­irnar sýndu einnig mar­bletti á fæti hennar.Í yfir­lýs­ingu segir að þegar móðir þeirra kom heim eftir að hafa skroppið út, hafi hún „reynt að taka til í her­berg­inu með því að setja dýn­una aftur á rúmið. Á meðan systirin sagð­ist hafa „boðið móður sinni byrg­inn og komið í veg fyrir að hún gæti fiktað við vett­vang­inn“. Marylou fór þá úr hús­inu með nest­is­boxið fóst­ur­dóttur sinnar.Lög­reglu­menn á vett­vang ræddu við fórn­ar­lambið, sem full­yrti að hún hefði verið bundin við rúmið síðan 24. maí með „engan aðgang að vatni“. Hún full­yrti einnig að Dewitt hefði „ekki látið hana fara í sturtu síðan í febr­úar eða bursta tenn­urnar,“ og haldið frá henni lyfjum en hún „ætti á hættu að fá floga­köst“ án þeirra. Lög­reglu­þjónar tóku eftir „sterkri þvag­lykt og lík­ams­lykt“ frá henni, sem og her­berg­inu.Dewitt er sögð hafa „neitað að snúa aftur í hús­næðið“ eftir að hafa orðið vör við lög­regl­una, segja lög­reglu­menn, og að hún hafi byrjað að „senda sjálfs­vígs­skila­boð til fjöl­skyldu­með­lima“. Samn­inga­við­ræður við Dewitt í síma báru ekki árangur, en hægt var að stað­setja síma hennar í nálægð við Pitts­burgh. Samkvæmt yfir­lýs­ingu lög­regl­unn­ar­hófst eft­ir­för eftir að Dewitt neit­aði að stoppa bif­reið sína. Að lokum náði rík­is­lög­reglan að sann­færa hana, í gegnum síma, að gef­ast upp.„Móðirin var mögu­lega í ein­hvers konar geð­rofi … það tók hana smá tíma að stoppa,“ sagði tals­maður rík­is­lög­regl­unnar við

Observer-Reporter

.Samkvæmt WPXI starf­aði hin grun­aða sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur hjá Spectrum Charter-skól­anum í Mon­roeville, en hefur nú verið rekin. Samkvæmt Facebook síðu þeirra er skól­inn gjald­frjáls, opin­ber skóli sem þjónar nem­endum á aldr­inum 13-21 árs, með sér­þarfir.Konan er í haldi lög­reglu en for­með­ferð á mál­inu fer fram 12. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife