Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vill takmarka áfengissölu: „Áfengi er ekki venjuleg neysluvara“

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vill takmarka áfengissölu: „Áfengi er ekki venjuleg neysluvara“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga skora á Alþing­is­menn og ráð­herra að tak­marka sölu á áfengi og standa þannig vörð um lýð­heilsu þjóð­ar­innar. Áskorun þess efnis var send á Alþingi í morgun.

Í áskor­un­inni segir meðal ann­ars að áfengi sé ekki venju­leg neyslu­vara, en neysla á því hafi „skað­leg áhrif á heilsu“. Þá segir einnig að áfengi sé einn af fjórum algeng­ustu áhættu­þáttum fyrir lang­vinnum sjúk­dómum.

Hér má lesa áskor­un­ina í heild sinni:

Áskorun til Alþingis og rík­is­stjórnar um tak­mörkun áfeng­is­sölu 

Í ljósi óheilla­þró­unar á sölu áfengis skorar Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga á Alþing­is­menn og ráð­herra að tak­marka sölu á áfengi og standa vörð um lýð­heilsu þjóð­ar­innar.

Áfengi er ekki venju­leg neyslu­vara. Neysla hennar hefur skað­leg áhrif á heilsu og ekki eru nein þekkt við­mið um skað­lausa notkun hennar. Áfengi er einn af fjórum algeng­ustu áhættu­þáttum fyrir lang­vinnum sjúk­dómum, hefur áhrif á myndun ýmissa teg­unda krabba­meina, syk­ur­sýki, hjarta­sjúk­dóma, skorpulifur og heila­blóð­falls.

Fjöl­margar alþjóð­legar rann­sóknir sýna að aukið aðgengi að áfengi hefur í för með sér aukna notkun þess, sem leiðir til auk­inna heil­brigðis- og félags­legra vanda­mála með til­heyr­andi kostn­aði og þján­ingu fyrir sam­fé­lagið.

Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar segir að stuðlað verði að heil­brigðu sam­fé­lagi. Það séu sam­eig­in­legir hags­munir, bæði efna­hags­legir og félags­legir að lögð sé áhersla á lýð­heilsu, for­varnir og geð­heil­brigð­is­mál. Þar segir einnig að mik­il­vægt sé að stuðla að heil­brigði og lífs­gæðum fólks með áherslu á lýð­heilsu. Sam­bæri­leg sjón­ar­mið eru einnig að finna í stefnu­skrám sumra stjórn­mála­flokka í stjórn­ar­and­stöðu.

Í lýð­heilsu­stefnu til árs­ins 2030 sem sam­þykkt var á Alþingi árið 2021 er stefnt að því að Íslend­ingar verði meðal fremstu þjóða í lýð­heilsu­starfi sem bygg­ist á bestu vís­inda­þekk­ingu og reynslu. Þar segir einnig að valdar verði árang­urs­ríkar lausnir. Gagn­reynd vís­inda­þekk­ing og reynsla ann­arra þjóða sýnir að árang­urs­rík­asta lausnin til að draga úr notkun á áfengi er að skerða aðgengi að henni.

Núver­andi fyr­ir­komu­lag þar sem hægt er að kaupa áfengi utan afgreiðslu­tíma versl­ana ÁTVR og fá það sent heim til sín á skömmum tíma er veru­leg aukn­ing á aðgengi fólks að áfengi. Aukið aðgengi að áfengi er ekki í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála né lýð­heilsu­sjón­ar­mið þau sem sett hafa verið.

Hjúkr­un­ar­fræð­ingar starfa á öllum sviðum heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og eru viða­mestu hlut­verk þeirra heilsu­vernd, heilsu­efl­ing og for­varnir, eins og segir í stefnu félags­ins í hjúkr­unar- og heil­brigð­is­málum til 2030. Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga er alfarið mót­fallið breyt­ingum sem hafa í för með sér aukið aðgengi að áfengi. Það mun leiða til auk­innar heild­ar­neyslu sem er með öllu and­stætt bættri lýð­heilsu þjóð­ar­innar. Ef núver­andi fyr­ir­komu­lag heldur áfram án aðgerða eða verður lög­fest, þá munum við sjá gríð­ar­lega aft­ur­för í bar­átt­unni fyrir bættri lýð­heilsu.

Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga skorar því á Alþingi að standa vörð um lýð­heilsu­stefnu og heil­brigð­is­stefnu til 2030, rík­is­stjórn­ina að halda sig við lýð­heilsu­m­ark­mið stjórn­ar­sátt­mál­ans og standa þannig með heilsu og vel­ferð þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi