Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Telur líklegt að Miðflokkurinn verði stærri en Sjálfstæðisflokkurinn:„Ekkert af þessu hefur virkað“

Telur líklegt að Miðflokkurinn verði stærri en Sjálfstæðisflokkurinn:„Ekkert af þessu hefur virkað“
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: RÚV-skjáskot

„Það er bráðum ár frá því að Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins frum­flutti nýjan tón og stefnu flokks­ins í útlend­inga­málum af tröppum á Bessa­stöðum. Áður hafði Jón Gunn­ars­son haldið þessum mál­flutn­ingi á lofti, að ástæða þess að hér væru inn­viðir að grotna og grunn­kerfi sam­fé­lags­ins að falla saman, væri ekki fjársvelti og stefnu­leysi stjórn­valda, heldur fjöldi hæl­is­leit­enda, sem stjórn­völd höfðu þó boðið hingað flestum sér­stak­lega. Á tröpp­unum á Bessa­stöðum gerði Bjarni þennan mál­flutn­ing að sínum og þar með Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“ Þannig hefst Facebook-færsla Gunnars Smára Egils­sonar for­mann Sós­í­alista­flokks­ins. Þar greinir hann stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins í skoð­ana­könn­unum frá því að Bjarni Bene­dikts­son fór að tala gegn hæl­is­leit­endum.

Segir Gunnar Smári að Bjarni hafi með þessu ætlað sér að lyfta upp fylgi flokks síns, sem þá hafði mælst með 20,8 próstenta fylgi.

„Almennt er talið að Bjarni hafi með þessu verið að reyna að lyfta upp fylgi síns flokks, sem sam­kvæmt síð­ustu mæl­ingu þá hafði mælst aðeins 20,8%. Bjarni hefur síðan gefið í og hert á stefnu flokks­ins. Hann sagði um ára­mótin að hæl­is­leit­endur kost­uðu 16 millj­arða, 20 millj­arða í febr­úar og 25 millj­arða fyrir páska, full­yrti að stjórn­leysi væri við landa­mærin og að íslenskar reglur sog­uðu hæl­is­leit­endur til lands­ins. Þetta sagði hann þrátt fyrir að hæl­is­leit­endur séu 56% færri í ár en á sama tíma í fyrra. Ekkert af þessu hefur virkað til að lyfta upp fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í síð­ustu mæl­ingu Gallup mæld­ist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins 18,0%. Frá ræð­unni á tröpp­unni hefur fylgi flokks­ins fallið úr 20,8% í 18,0%. Það jafn­gildir því að um sex þús­und manns hafi snúið baki við flokknum.“

Sós­í­alista­for­ing­inn segir orð­ræða Bjarna hafi aftur á móti aukið fylgi Mið­flokks­ins.

„Orðræða Bjarna hefur hins vegar aukið við fylgi Mið­flokks­ins. Það er ekk­ert skrítið heldur voru þær afleið­ingar þvert á móti fyr­ir­sjá­an­legar. Þegar eldri hægri flokkar taka upp útlend­inga­andúð nýja hægr­is­ins þá stækkar nýja hægrið en gamla hægrið minnkar. Og frá ræð­unni á tröppum Bessa­staða hefur Mið­flokk­ur­inn vaxið úr 6,9% upp í 13,5% sam­kvæmt mæl­ingum Gallup. Þetta jafn­gildir því að um 14 þús­und kjós­endur hafi fært sig yfir á Mið­flokk­inn.“

Að lokum segir Gunnar Smári að ekki sé ólík­legt að Mið­flokk­ur­inn verði orð­inn stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn innan tíðar.

„Í síð­ustu mæl­ingu Gallup mun­aði bara um 9.500 kjós­endum á Mið­flokki og Sjálf­stæð­is­flokki. Með áfram­hald­andi for­ystu Bjarna er alls ekki ólík­legt að Mið­flokknum tak­ist að vinna upp þetta bil. Munurinn var 30 þús­und fyrir ári en eru nú aðeins tæp­lega 10 þús­und.Og fyrir ári var Sam­fylk­ingin 16 þús­und kjós­endum fyrir ofan Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Nú er mun­ur­inn orð­inn 25.500.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi