Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hæðist að viðskiptamógúl sem snuðaði dóttur hans: „Ég upptendraðist við að lesa um þennan guðdóm“

Hæðist að viðskiptamógúl sem snuðaði dóttur hans: „Ég upptendraðist við að lesa um þennan guðdóm“
Guð­mundur Brynj­ólfs­son Mynd: byggdasafn.is

Guð­mundur Brynj­ólfs­son skrifar um við­skipta­mó­gúl sem snuð­aði dóttur hans í nýlegri Facebook-færslu.

Rit­höf­und­ur­inn og skáldið Guð­mundur Brynj­ólfs­son skrif­aði nokkuð kald­hæða færslu nýverið á Facebook þar sem hann rifjar upp þegar dóttir hans, sem þá var ung­lingur vann hjá við­skipta­jöfri sem nýlega var dásamaður í Við­skipta­blað­inu en hún þurfti aðstoð Eflingar til að fá orlof sitt greitt hjá mann­inum. Tilefni færslu Guð­mundar var „stóra lækn­is­vott­orða­málið“ sem vakti athygli á dög­unum en Fiski­kóng­ur­inn hafði þá farið mik­inn á Facebook þar sem hann kvart­aði hástöfum yfir lækn­is­vott­orðum sem hann sagði lækna vera dug­lega að gefa starfs­fólki.

„Lækn­is­vott­orð

Stóra lækn­is­vott­orða­málið skekur nú þjóð­ina. Læknar eru sak­aðir um að skrifa út lækn­is­vott­orð eftir pönt­unum en ekki eftir veik­indum. Starfs­fólk leggur inn þessi sömu lækn­is­vott­orð hjá atvinnu­rek­endum, dauð­frískt, kap­ít­alist­unum til mik­ils tjóns og armæðu. Svona eru nú læknar í sam­krulli við verka­lýð­inn og alþýðan í bland við heilsu­gæsl­una miklir bévaðir rumm­ungar og sið­lausar skepnur.“ Þannig hefst færsla Guð­mundar, sem löðrar af skemmti­legri kald­hæðni.

Í næstu andrá skrifar skáldið um minn­ing­ar­grein um lif­andi mann:

„Víkur þá sög­unni að minn­ing­ar­grein – sem reyndar var við­tal – sem ég las á dög­unum

Fyrir ein­hverjum vikum las ég í einu við­skipta­blað­anna minn­ing­ar­grein um mann sem þó er ódauður enn. Ég kalla það minn­ing­ar­grein því lofið var engu líkt, gæti helst ímyndað mér að þannig myndu eft­ir­mælin um Guð almátt­ugan standa, væri hann ekki dauður – sam­kvæmt Nietzsche. Maður þessi sem þarna var talað við – og um – var atvinnu­rek­andi og við­skipta­mó­gúll af æðstu gráðu. Hafði haf­ist úr engu upp í það að eiga og veita for­stöðu stór­glæstum vinnu­stað með margar starfs­stöðvar, og nú þegar hann hafði bundið kaup­skip sitt við bryggju þótti til­hlýði­legt að leggja undir hann nokkrar blað­síður og tíunda afrek hans og arf­leifð alla – svo dást mætti að honum þó ekki væri nema úr fjarsk­anum sem liggur á milli stétta á Íslandi. Ég upp­tendrað­ist við að lesa um þennan guð­dóm og þessa við­stöðu­lausu dásemdar sig­ur­göngu og þegar maður þannig and­lega fír­ast upp þá fær maður jafn­vel gleggra minni en manni er gefið dags dag­lega.“

Guð­mundur rifjar því næst upp það þegar dóttir hans vann hjá téðum við­skipta­manni en þurfti hjálp frá Eflingu til að fá greitt það sem henni bar.

„Minn­ingin

Dóttir mín, þá ung­lingur, vann hjá þessum manni um skeið; á einni af hans stór­feng­legu stassjónum. Þar var gert slag í því að stela sýstemat­ískt af henni orlof­inu. Þar var henni helst aldrei borgað rétt kaup. Þar var stöð­ug­lega reynt að snuða hana um næt­ur­vinnu­kaup og þar var reynt að praktísera eitt­hvað „jafn­að­ar­kaup“ sem vel að merkja er óskapn­aður sem ekki er til. Þurfti sjálfa Eflingu á end­anum til að koma skikki á þessi mál – eftir þjark og hót­anir. Það sem meira var, á þessum vinnu­stað voru menn reknir burt eins og hundar þegar djarf­aði fyrir því að það þyrfti að veita þeim, sam­kvæmt kjara­samn­ingum, launa­hækk­anir vegna starfs­ald­urs.“

Að lokum kemst Guð­mundur að eft­ir­far­andi nið­ur­stöðu:

„Nið­ur­stað­an­Sem betur fer er til allt fullt af góðum atvinnu­rek­endum, hell­ingur af fyr­ir­myndar læknum og ósköpin öll eru til af fólki sem vinnur vinn­una sína í friði og spekt og ágrein­ings­laust við Guð og menn alla daga jafnt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi