Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Setja háttsetta Íslendinga á peningaþvættislista: „Ég mun kæra þetta til lögreglu“

Setja háttsetta Íslendinga á peningaþvættislista: „Ég mun kæra þetta til lögreglu“
Ásgeir Rúnar Helgason Mynd: Björgvin Gunnarsson

Ásgeir Rúnar Helgason, dós­ent við Háskól­ann í Reykja­vík verður senn settur á lista yfir „ein­stak­linga í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla“, sem þjón­ustu­fyr­ir­tækið Keldan setur saman. Búast má við því að fleiri „hátt settir“ ein­stak­lingar fari á list­ann.

Keldan ehf. er þjón­ustu­fyr­ir­tæki á sviði upp­lýs­inga­miðl­unar en fyr­ir­tækið er í eigu þeirra Arnar Þórð­ar­sonar, Dags Gunn­ars­sonar, Thor Thors, Tómasar Áka Tóm­as­sonar og Hösk­uldar Tryggva­sonar. Meðal þess sem fyr­ir­tækið fæst við er að búa til svo­kall­aðan Pep lista en þar er nöfnum ein­stak­linga á Íslandi, sem fyr­ir­tækið telur vera í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla í sam­ræmi við ákvæði laga nr. 140/2018 um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Thor Thors Einn af eig­endum Keld­unnar ehf.
Örn Þórð­ar­son, einn af eig­endum Keld­unnar.

Vís­inda­mað­ur­inn og dós­ent­inn Ásgeir Rúnar Helgason fékk á dög­unum það sem hann kallar „hót­un­ar­bréf“ frá Keldu þar sem honum er tjáð að innan tveggja vikna frá dag­setn­ingu bréfs­ins, verði hann settur á Pep lista fyr­ir­tæk­is­ins. Ástæða þess að Ásgeir er tal­inn vera í áhættu­hóp­inum er sú að hann þekkir Hólm­fríði Jenný Árna­dóttur, leik- og grunn­skóla­kenn­ara og odd­viti Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi. Ásgeir Rúnar var áður vara­odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu og því vel kunn­ugur Hólm­fríði. Hvers vegna kunn­ings­skapur þeirra hringi við­vör­un­ar­bjöllum Keld­unnar og setji Ásgeir Rúnar á áhættu­lista vegna pen­inga­þvættis og fjár­mögn­unar hryðju­verka er ómögu­legt að segja til um. Undir bréfið skrifar „Starfs­fólk Keld­unnar ehf.“

Mannlíf hringdi í Kelduna en fékk þau svör frá stúlkunni sem svarar í síma að hún taki niður númer blaða­manns­ins og láti ein­hvern sem þekki til list­ans hringja. Það var í morgun en síðan hefur ekk­ert sím­tal borist.

Í bréf­inu sem Ásgeir fékk og Mannlíf er með undir höndum, segir að „Keldan og til­kynn­inga­skyldir aðilar telj­ast sam­eig­in­legir ábyrgð­ar­að­ilar vinnsl­unnar skv. 23. gr. laga um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga nr. 90/2018.“ Hvergi kemur þó fram hvaða til­kynn­inga­skyldu aðilar er um að ræða. Í bréf­inu stendur einn­ing: „Samkvæmt pen­inga­þvætt­is­lögum ber til­kynn­inga­skyldum aðilum að hafa við­eig­andi kerfi, ferla og aðferðir til að meta hvort við­skipta­menn þeirra eða raun­veru­legir eig­endur séu í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla. Til­gangur vinnslu Keld­unnar og fram­an­greind skrán­ing á list­ann er því að gera þessar upp­lýs­ingar um ein­stak­linga í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla aðgengi­legar fyrir til­kynn­ing­ar­skylda aðila.“

Á heima­síðu hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Kóða, sem rekur Kelduna er til­kynn­ing þar sem sagt er frá pep list­anum en þar stendur:

Keldan hefur hafið und­ir­bún­ing á svoköll­uðum PEP lista yfir ein­stak­linga með stjórn­mála­leg tengsl auk tengdra aðila sem skil­greindir eru af stjórn­völdum. Listinn mun nýt­ast þeim aðilum sem hafa heim­ild til við fram­kvæmd áreið­an­leika­könn­unar á eigin við­skipta­vinum með lægri til­kostn­aði en þekk­ist á mark­aðnum í dag.

Þeir einu sem munu hafa aðgang að PEP lista Keld­unnar eru til­kynn­ing­ar­skyldir aðilar (bankar, bók­halds­stofur, lög­menn, og fleiri) sem bera laga­skyldu til að hafa aukið eft­ir­lit með þeim við­skipta­vinum sínum sem telj­ast hafa stjórn­mála­leg tengsl. Lögum sam­kvæmt eru ein­stak­lingar með stjórn­mála­leg tengsl ef þeir eru eða hafa verið hátt­settir í opin­berri þjón­ustu. Þá fellur nán­asta fjöl­skylda þeirra og nánir sam­starfs­menn einnig í þann flokk að vera með stjórn­mála­leg tengsl.

Grund­vall­ar­for­senda fyrir því að til­kynn­ing­ar­skyldir aðilar geti upp­fyllt aukið eft­ir­lit er að hafa réttar upp­lýs­ingar um hverjir telj­ist hafa stjórn­mála­leg tengsl. Það er kostn­að­ar­samt, tíma­frekt og erfitt (ef ekki ómögu­legt) fyrir þessa aðila að halda utanum slíka lista sjálfir. Listinn er því ætl­aður til að aðstoða til­kynn­ing­ar­skylda aðila að full­nægja þeirri laga­skyldu sem hvílir á þeim.

Sam­bæri­legir listar eru til út um allan heim enda er að finna sam­bæri­lega laga­skyldu í flestum löndum. Slíkir listar eru í eðli sínu not­aðir til að minnka líkur á pen­inga­þvætti.

Hvað varðar vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga hefur verið höfð hlið­sjón af leið­bein­ingum Per­sónu­verndar í fyr­ir­liggj­andi málum um rekstur slíkra lista.

Keldan hefur sent út bréf þar sem ein­stak­lingum hefur verið til­kynnt um fyr­ir­hug­aða skrán­ingu á PEP lista. Þar er aðilum gefið tæki­færi til að koma á fram­færi athuga­semdum eða óska eftir leið­rétt­ingu áður en við­kom­andi verður skráður á list­ann.

Ásgeir Rúnar hyggst kæra Kelduna sam­kvæmt Facebook-færslu hans sem hann birti í fyrra­dag: „Ég mun kæra þetta til lög­reglu, en datt í hug að tékka á því hvort fleiri en ég hafi fengið svona hót­un­ar­bréf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi