Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Prestur, harðstjóri og morðingi – Fórnarlömbin voru meðal annars eiginkonur, synir og dætur sérans

Prestur, harðstjóri og morðingi – Fórnarlömbin voru meðal annars eiginkonur, synir og dætur sérans

Séra Andras Pandy var ekki allur þar sem hann var séður. Hann naut hylli sem prestur ung­verskra mót­mæl­enda í Belgíu, en heima fyrir var hann harð­stjóri sem þoldi engum að setja sig upp á móti honum. Þeir sem það gerðu áttu ekki langra líf­daga auðið og skipti engu hver í hlut átti.

Séra Andras Pandy hafði ákveðnar skoð­anir á því í hverju skyldur sínar sem föður væru fólgnar. Ef ein­hver í fjöl­skyld­unni setti sig upp á móti á honum mol­aði hann höfuð við­kom­andi með járn­röri, hlut­aði líkið í sundur og kastaði lík­ams­hlut­unum í úrgang hjá nálægu slát­ur­húsi. Allt sem hægt var að bera kennsl á, til dæmis höfuð, leysti Pandy upp í sýru. Tvær eig­in­konur, tveir synir og tvær dætur féllu fyrir ban­vænni reiði hins harð­úð­uga prests, en aldrei fannst tangur né tetur af lík­ams­leifum þeirra.

Heillandi prestur

Andras Pandy fædd­ist í Ung­verja­landi 1927. Hann hóf nám í guð­fræði í Sviss tutt­ugu og níu ára að aldri. Meðan á námi hans stóð kvænt­ist hann ung­verskri flótta­konu, Ilonu Sortes, og eign­uð­ust þau dótt­ur­ina Agnesi. Þegar hann var þrjá­tíu og tveggja fluttu þau til Belgíu þar sem Pandy þjón­aði sam­fé­lagi ung­verskra mót­mæl­enda. Þess var ekki langt að bíða að hagur Pandys vænk­að­ist, hann var heill­andi prestur, og varð brátt eig­andi þriggja heim­ila í Brussel. Fjöl­skyldan stækk­aði og 1961 fædd­ist son­ur­inn Daníel, og þremur árum síðar annar sonur, Zoltan.

Timea skyldi drepin

Hjóna­band Pandys og Ilonu var storma­samt, og þau skildu. Pandy kvænt­ist að nýju og fyrir val­inu varð Edit Fintor. Hún átti þrjár dætur á tán­ings­aldri og Pandy hopp­aði upp í rúm hjá einni þeirra, Timeu. Timea varð barns­haf­andi, og tíma­bært fyrir Pandy að yfir­gefa aðra eig­in­konu sína. En Timea átti í vand­ræðum með sér­ann. Henni lærð­ist smám saman að honum lík­aði ekki ef ein­hver fór í bága við óskir hans. Til að fyr­ir­byggja allan mis­skiln­ing sagði hún Pandy að halda sig fjarri Mark, ávexti sam­runa þeirra, og að hún hugð­ist flytja til ann­ars lands til að þurfa ekki að hafa neitt saman að sælda við barns­föður sinn. Slík áform hugn­uð­ust Pandy engan veg­inn og lagði hann á ráðin, ásamt Agnesi dóttur sinni, sem nú var full­tíða, um að drepa Timeu. Agnes sat fyrir Timeu og sló hana í höf­uðið með járn­röri, en fyrir krafta­verk lifði Timea til­ræðið af og þegar hún hafði náð sér flúði hún ásamt syni sínum til Kanada. Pandy var ekk­ert á því að gef­ast upp, og fóru hann og Agnes nokkrar ferðir til Kanada til að full­komna verkið. En að lokum urðu fleiri ferðir ekki nauð­syn­legar því Timea ákvað að setj­ast að í Ung­verja­landi.

Uppreisnargjörn dóttir barin til dauða

En þætti Edit Fintor var ekki lokið. Hún var bál­reið Pandy fyrir að hafa dregið Timeu á tálar með þessum afleið­ingum og að hann vildi hana feiga var meira en Edit þoldi. Hún og ein dætra hennar fóru ekki í laun­kofa með stuðn­ing sinn við Timeu, og þá skoðun sína að Pandy gengi ekki heill til skógar. Þetta var meira en sér­ann lét bjóða sér, að hans mati var um að ræða hreina og klára upp­reisn og það yrði ekki liðið. Í júlí­lok 1986 barði hann hina upp­reisn­ar­gjörnu dóttur til dauða á meðan Agnes lét hamar vaða í höfuð Edit. Að morð­unum loknum fór Pandy til lög­regl­unnar og til­kynnti að Edit, eig­in­kona hans, væri horfin. „Hún hvarf fyrir um mán­uði. Allt sem ég hef fengið er bréf frá henni, póst­lagt í Þýska­landi, og nokkur sím­skeyti,“ sagði hann. Eðli máls­ins sam­kvæmt bar rann­sókn lög­regl­unnar í Þýska­landi ekki árangur.

Morð á báða bóga

Ilona, fyrsta kona Pandys, var þegar hér var komið sögu orðin honum óþægur ljár í þúfu. Hennar sök var ekki stór, hún hafði látið í ljósi óánægju sína með sam­band Pandys og Timeu. Með óánægju sinni und­ir­rit­aði hún eigin dauða­dóm. Pandy lét verkið í hendur Agnesar, dóttur Ilonu, og 28. mars 1988 fór Agnes auð­sveip heim til móður sinnar og myrti hana. Til að full­komna áhrifin skaut hún einnig til bana bróður sinn, Daníel, sem þá var tutt­ugu og sex ára. Pandy lét sitt ekki eftir liggja, því skömmu síðar myrti hann hinn son sinn, Zoltan, sem var orð­inn frekar hnýs­inn vegna hvarfs móður sinnar og bróður. Reyndar fannst Pandy líka að önnur af sínum ætt­leiddu dætrum væri orðin helst til sjálf­stæð. Hún hafði fengið þá flugu í höf­uðið að konur hefðu rétt og ætl­aði að flytj­ast á brott og búa í óvígðu sam­bandi með ein­hverjum karl­manni. Það leist Pandy ekki meira en svo á, þannig að hann drap hana.

Bein tuttugu kvenna

Eftir því sem tím­inn leið urðu reiði­köst Pandys hinni ann­ars tryggu Agnesi ofviða. Fjórum árum eftir morðin á Ilonu og Daníel fór Agnes til lög­regl­unnar, ekki síst af ótta við að hún væri næst á lista fórn­ar­lamba hans. „Faðir minn hefur átt í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við mig. Einnig hafa sex fjöl­skyldu­með­limir horfið með frekar und­ar­legum hætti. Faðir minn hefur líka átt í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við hálf­systur mína,“ sagði hún lög­regl­unni. En þar sem engin lík var að finna gat lög­reglan lítið aðhafst á grund­velli frá­sagnar Agnesar einnar. En 1997 fór Timea til ung­versku lög­regl­unnar og lagði fram kvart­anir. „Agnes reyndi að myrða mig og faðir minn nauðg­aði mér,“ sagði hún. 20. októ­ber sama ár gerði lög­reglan hús­leit á öllum heim­ilum Pandys í Belgíu. Í kjall­ara eins þeirra fund­ust manna­bein sem steypt hafði verið yfir. Rannsókn leiddi í ljós að þau voru ekki ýkja gömul og til­heyrðu um tutt­ugu mann­eskjum. Sjö eða átta þeirra höfðu verið konur á aldr­inum fjöru­tíu til fimm­tíu ára. Engin þeirra hafði verið skyld Pandy.

Vægir dómar og engin iðrun

Á öllum heim­ilum Pandys var að finna fölsk loft og felu­staði sem erfitt var að koma auga á og kom­ast að. Á sumum þeirra fund­ust skot­vopn. Einnig fann lög­reglan eft­ir­lits­mið­stöðvar sem gerðu Pandy kleift að fylgj­ast náið með því sem átti sér stað í flestum her­bergja heim­il­is­ins. Andras Pandy var hand­tek­inn mán­uði síðar. Hann neit­aði ásök­unum um sifja­spell og nauðgun, og sagði að eng­inn fjöl­skyldu­með­limur hefði verið myrtur. Þeir sem horfnir voru hefðu ein­fald­lega tekið sig upp og lent í slag­togi með sér­trú­ar­söfn­uði, hann hefði meira að segja heim­sótt þá endrum og sinnum. Þá stað­reynd að erfða­sýni sann­aði að hann væri faðir Marks útskýrði hann á þann hátt að Timea hefði fengið sæði hans í sig fyrir slysni því þau hefðu deilt rekkju. Hvað varð­aði skot­vopnin og manna­beinin, sagði Pandy að hann hefði ekki minnstu hug­mynd um hvernig stæði á þeim í hans híbýlum. Andras Pandy fékk lífs­tíð­ar­dóm fyrir sex morð og fyrir að nauðga þremur dætra sinna. Agnes var ákærð fyrir fimm morð og hlaut tutt­ugu og eins árs dóm. Hún sagð­ist vera leið vegna alls sen gerst hafði og geð­læknar komust að þeirri nið­ur­stöðu að hún ætti við per­sónu­leika­vanda­mál að stríða, þjáð­ist af minni­mátt­ar­kennd á háu stigi og hafi verið full­kom­lega á valdi föður síns. Andras Pandy sýndi enga iðrun, hvorki við rétt­ar­höldin né þegar dómur var kveð­inn upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta