Brynjar Níelsson
, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ófeiminn við að gagnrýna formann sinn,
Bjarna Benediktsson
, og aðra ráðamenn flokksins. Brynjari er ekki skemmt yfir hinni nýju Mannréttindastofnun sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. „Án vafa mun starfsmannafjöldi Mannréttindastofnunar tífaldast á næsta áratug. Þarna verður gott platform fyrir okkar fjölmörgu mannréttindafrömuði til að láta ljós sitt skína og auka álögur á skattgreiðendur í nafni mannréttinda,“ skrifar Brynjar um þetta hjartans mál Vinstri-grænna og Sjálfstæðisflokksins.Hann spáir því að Bjarni og bandalag hans muni á næstunni fjölga ríkisstofnunum enn frekar. Augljóst má vera að Brynjar trúir ekki lengur á aðhald Sjálfstæðisflokksins þar sem ríkisútgjöld eru annars vegar. Um árabil hefur hann verið einn öflugasti fótgönguliði Sjálfstæðisflokksins á dansiballinu með VG ….































Athugasemdir