Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Húðflúrstjarna látin 46 ára að aldri: „Það rífur mig í sundur að þurfa að skilja börnin mín eftir“

Húðflúrstjarna látin 46 ára að aldri: „Það rífur mig í sundur að þurfa að skilja börnin mín eftir“
Blessuð sé minn­ing Ryan Hadley

Húð­flúr­ar­inn Ryan Hadley, sem keppti í sjöttu þátta­röð­inni af raun­veru­leika­þætt­inu Ink Master árið 2015, lést 20. júní eftir bar­áttu við krabba­mein. Hann var 46 ára.

„Ryan yfir­gaf þennan heim í gær, umkringdur ást­vinum,“ segir í til­kynn­ingu á Instagram-reikn­ingi hans 21. júní. „Þó að ævi hans hafi verið stutt, skildi hann eftir sig arf­leifð bæði í lista- og húð­flúr­heim­inum. Hann elskaði hinu fjöl­mörgu aðdá­endur sína, vini sína og við­skipta­vini og umfram allt börnin sín. Hans verður saknað og alltaf minnst. Goðsögn að eilífu. #rip #f–kcancer.“

Hinn sex barna faðir frá Fort Wayne í Indiana, sagði frá því í des­em­ber síð­ast­liðnum á söfn­un­ar­síð­unni GoFundMe, sem dóttir hans, Whitney setti upp, að hann væri kom­inn í lyfja­með­ferð við sem­in­oma, ill­kynja kím­frumu­æxli. Það var ekki í fyrsta sinn sem hann fór í krabba­meins­með­ferð.

„Ég hef nú verið lagður inn á sjúkra­hús til að fara í krabba­meinslyfja­með­ferð­ina mun fyrr en ég bjóst við,“ skrif­aði hann á Instagram. „Síðast þegar ég gekk í gegnum þetta drap það mig næstum og gerði mig skít­hrædd­ann.

Hadley snéri aftur til vinnu en til­kynnti í apríl að með­ferðin hafi mis­tek­ist og að krabba­meinið hefði dreift sér um lík­amann.

„Mig langar að þakka öllum kúnnum mínum, stuðn­ings­að­ilum, vinum og fjöl­skyldu fyrir 25 ára af húð­flúrun. Ég er að opna mig og segja öllum að lyfja­með­ferðin mistókst algjör­lega,“ skrif­aði hann á Instagram og birti ljós­mynd af sér setja húð­flúr á kúnna. „Ég tók þá ákvörðun að fylgja öllum fyr­ir­mælum krabba­meins­lækn­anna og gera allt sem þeir sögðu mér að gera í með­ferð­inni. Lyfja­með­ferðin var ekki fyrir mig og nú hefur krabba­meinið dreift sér í lifr­ina og lungun.“

Hann hélt áfram: „Þetta er ólækn­andi krabba­mein í lifr­inni og dauð­inn er útkoman. Ég gæti lifað í aðra viku eða kannski í þrjá mán­uði, hvort sem er, þá rífur það mig í sundur að þurfa að skilja börnin mín eftir. Dauðinn hræðir mig ekki á neinn hátt … en það er sú stað­reynd að ég þurfi að skilja börnin mín eftir sem pirrar mig mjög mikið og það er ekk­ert sem ég get gert í því. Ég mun halda öllum upp­lýstum um stöð­una, upp að vissu marki. Ég mun brátt stimpla mig út um eilífð.“

Húð­flúr­lista­menn minnt­ust Hadley eftir and­láts­fregn­irnar. „Bestu tím­arnir sem ég átti í húð­flúr­un­inni, var við hlið Ryan,“ sagði Jacob Wilfong frá Fort Wayne, í athuga­semd við and­látstil­kynn­ing­una á Instagram. „Ég lærði svo mikið, hann ýtti manni alltaf áfram svo hann næði sem mestu út úr manni. Lengra en maður hafði ímyndað sér að væri mögu­legt og að auki var hann alltaf að sýna fólki hvað væri mögu­legt með því að taka hlut­ina á næsta stig. Hann gerði mig að þeim lista­manni sem ég er í dag og ég er þakk­látur fyrir að hafa þekkt hann á þennan hátt.“

Húð­flúr­lista­mað­ur­inn Timothy Boor skrif­aði: „Ég á honum pott­þétt fullt að þakka. Hann hjálp­aði ferli mínum gríð­ar­lega og ég mun aldrei gleyma því. Hans verður saknað.“

Síðustu dögum lífs síns eyddi Hadley með ást­vinum sínum. „Hann og fjöl­skylda hans eyddi síð­asta tíma sínum saman í golfi, í stuttum ferða­lögum og við húð­flúrun,“ segir í upp­færslu á GoFundMe síð­unni. „Fjöl­skyldan er enn að safna styrkjum til að hægt sé að borga fyrir jarð­ar­för­ina og til að hjálpa við að ala litlu börn hans upp, sem er tveggja til ell­efu ára.“

Full­orðin dóttir hans, Whitney, deildi einnig per­sónu­legum skila­boðum um föður hennar. „Ég vil bara segja takk fyrir alla hjálp­ina sem við höfum fengið frá öðrum húð­flúr­lista­mönnum, við­skipta­vinum og sam­fé­lags­miðl­unum,“ skrif­aði hún á Facebook. „Pabbi minn vildi skilja eftir spor í þessum heimi með sínum klikk­uðu sköp­un­ar­gáfum og hann gerði það. Hann var sann­ar­lega meist­ari í list­inni og var mjög virtur meðal margra. List hans mun lifa áfram á húð minni og svo margra ann­arra, sem og í hans fjöl­mörgu mál­verkum. Elska þig pabbi – þú fékkst arf­leið þína.“

ET online sagði frá and­lát­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta