Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frændurnir sem hurfu eftir ball í Keflavík: „Tók hundurinn þaðan á rás beina leið niður í fjöru“

Frændurnir sem hurfu eftir ball í Keflavík: „Tók hundurinn þaðan á rás beina leið niður í fjöru“
Jón Erlends­son, vinstra meg­inn og Jón Ólafsson, hægra meg­inn.

Það var á sunnu­dags­kvöld 30. jan­úar sem frænd­urnir Jón Erlends­son (26) og Jón Ólafsson (21) fóru saman á dans­leik í heimabæ sínum, Keflavík. Árið var 1956 en frænd­urnir hurfu spor­laust eftir ballið.

Hinn skelfi­legi harm­leikur varð í lok jan­úar 1956 að kefl­vískir frændur hurfu eftir að hafa sótt saman ball í heima­bænum. Mikil leit hóft af pilt­unum en eftir að grunur kvikn­aði um að þeir gætu hafa tekið pramma úr báta­húsi, var spor­hundur feng­inn frá Reykja­vík. Faxi fjall­aði um hvarfið á sínum tíma:

Þau hörmu­legu tíð­indi gerð­ust hér í Keflavík aðfar­arnótt mánu­dags­ins 30. jan­úar s. 1., að tveir ungir Kefl­vík­ingar, þeir Jón Erlends­son 26 ára og Jón Ólafsson, 21 árs, hurfu og hefir ekk­ert síðan til þeirra spurzt, þrátt fyrir ýtar­lega leit. Nóttina, sem pilt­arnir hurfu, var saknað hér í Keflavík lít­ils pramma, og héldu ýmsir að þeir væru valdir að hvarfi hans. Var höfnin því slædd án árang­urs. Fenginn var maður með spor­hund flug­björg­un­ar­sveit­ar­innar hingað suður, en leit hans bar engan árangur. Eins og að framan getur fóru leit­ar­flokkar hér um allt nágrennið og leit­uðu alls staðar þar sem nokkur lík­indi voru til að menn­irnir kynnu að hafa farið. Allt hefir þetta því miður verið árang­urs­laust og enn hefir ekk­ert rekið á fjörur svo vitað sé, er bent geti á afdrif þess­arra ungu manna. Er þetta einn hinn sorg­leg­asti atburður og djúpur harmur kveð­inn að nán­ustu ást­vinum þeirra. 

Þrátt fyrir að í frá­sögn Faxa hafi verið sagt að spor­hund­ur­inn hafi ekki fundið neitt, þá var það ekki alveg rétt. Hund­ur­inn ku hafa tekið á rás frá báta­hús­inu og út í fjöru.

Tíminn fjall­aði um spor­hund­inn á sínum tíma:

Spor­hundur rakti leið­ina úr báta­húsi niður í fjöru

Un 50 manns leit­aði í gær að piít­unum tveimur, sem saknað er frá Keflavík frá því á mánu­dags­nótt.

Um 50 manns leit­aði í gær að pilt­unum tveimur frá Keflavík, sem saknað er frá því á aðfara­nótt síð­asta mánu­dags-. Var leitað með allri strand­lengj­unni írá Garð­skaga­vita og; langt inn á Vatns­leysu­strönd, en sú leit bar ekki árangur.

Menn­irnir tveir, Jón Erlends­son, Vest­ur­götu 7, 26 ára, og Jón Ólafsson, Kirkju­vegi 44, 22 ára, sáust síð­ast skömmu fyrir klukkan þrjú aðfara­nótt mánu­dags­ins. Fóru þeir þá saman út úr húsi í Keflavík. En báðir bjuggu pilt­arnir hjá for­eldrum sínum, enda fæddir og upp­aldir í Keflavík.
Í fyrra­dag fékk lög­reglan í Keflavík lán­aðan spor­hund frá Reykja­vík til þess að taka þátt í leit að mönn­unum. Þar sem grunur lék á því að pilt­arnir hefðu tekið pramma til sjávar, var farið með hund­inn í geymslu­hús, þar sem bát­ur­inn var geymdur. Tók hund­ur­inn þaðan á rás beina leið niður í fjöru vest­ast í kaup­staðnum, en síðan fór hann eftir ýmsum leiðum út í Garð.
Þar sem álitið er, að mestar líkur séu fyrir þvi, að pilt­arnir hafi farið út á sjó á pramm­anum, sem er lítið tveggja manna far flat­botna, var fólk beðið að leita með sjónum í gær, en sú leit var án árang­urs.

Nokkrum dögum eftir hvarfið sagði Morg­un­blaðið að frænd­urnir hefðu að öllum lík­indum drukknað.

Fullvíst þykir að Kefl­vík­ing­arnir hafi drukknað



ALLAR HORFUR eru á því að Kefl­vík­ing­arnir Jón Erlends­son, 26 ára, Vest­ur­götu 7 þar í bæ, og Jón Ólafsson, 21 árs, Kirkju­vegi 44, sem hurfu aðfara­nótt mánu­dags, hafi farizt.

Það hefur komið í ljós, að um nótt­ina hafa þeir tekið lít­inn pramma og farið út á sjó á honum. Í fyrra­dag var spor­hundur Flug­björg­un­ar­sveit­ar­innar feng­inn suður í Keflavík til þess að leita mann­anna. Rakti hann spor þeirra að skemmu einni í bænum, þar sem pramm­inn var geymdur, þaðan rakti hann sporin niður í flæð­ar­mál. Mikill fjöldi mann á Suð­ur­nesjum leit­aði í gær á stóru svæði, en veður var mjög óhag­stætt til leitar í fyrra­kvöld og í gær var fár­viðri þar syðra og ófært veður fyrir litla báta, svo að aug­ljóst mál er, að hér hefur orðið hörmu­legt slys. Jón Erlends­son var sonur Erlendar Jóns­sonar verk­stjóra í Ísfé­lag­inu. Jón Ólafsson var einka­sonur Ólafs Jóns­sonar, sem er starfs­maður við Drátt­ar­braut Kefla­víkur.

Minn­ing­ar­guð­þjón­usta var svo haldin handa frænd­unum í Kefla­vík­ur­kirkju 26. maí en hún var afar vel sótt og þóttir sýna sam­hug almenn­ing til fjöl­skylda frænd­anna.

Faxi skrif­aði um minn­ing­ar­guð­þjón­ust­una:

Minn­ing­ar­guðs­þjón­usta var haldin í Kefla­vík­ur­kirkju laug­ar­dag­inn 26. maí, um þá frænd­urna, Jón Erlends­son Vest­ur­götu 7 og Jón Ólafsson, Kirkju­vegi 44 í Keflavík, sem hurfu með svip­legum hætti aðfara­nótt þess 30. jan­úar s.l. Á þeim langa tíma sem lið­inn er frá þeir frændur hurfu, hefir allt verið gert, sem í mann­legu valdi stóð, til þess að upp­lýsa hið svip­lega hvarf þeirra frænd­anna, og þykir nú allt benda til að þeir hafi drukknað, þó að aldrei hafi fullsannazt. Minn­ing­ar­ræð­una flutti sr. Björn Jónsson. Fjöl­menni var við athöfn­ina, og sýndi hinn stóri hópur kirkju­gesta að þessu sinni, sam­hug almenn­ings til hlut­að­eig­andi fjöl­skyldna, sem urðu fyrir þeim þunga harmi, að missa þessa ungu menn á voveif­legan hátt, í blóma lífs­ins og á bezta skeiði ævinnar.


Tíminn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi