Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stórbruninn á Sökku – Hetjudáð Ara Þorgilssonar

Stórbruninn á Sökku – Hetjudáð Ara Þorgilssonar
Það er fag­urt í Svarf­að­ar­dal. Mynd: Icelandictimes.com

Ari Þor­gils­son drýgði sann­kall­aða hetju­dáð er hann vakti íbúa stór­býl­is­ins Sakka í Svarf­að­ar­dal en hann hafði orðið var við eld sem kviknað hafði í hús­inu.

Fyrsta febr­úar árið 1956 varð Ari Þor­gils­son, heim­il­is­maður á Sakka í Svarf­að­ar­dal, var við eld sem kviknað hafði inn­an­dyra. Klukkan var eitt­hvað gengin í tvö um nótt­ina og heim­il­is­fólkið allt steinsof­andi. Nema Ari. Vakti hann alla í hús­inu undir eins og mátti litlu muna að bani hlyt­ist af brun­anum, svo tæpt var það. Ari var sá eini sem slas­að­ist í brun­anum en það meiðslin, sem ekki voru alvar­leg, hlaut hann er hann kom sér út úr hús­næð­inu út um glugga. Tjónið af völdum brun­ans var afar mikið, ekki síst til­finn­inga­lega.

Tíminn fjall­aði um hetju­dáð Ara á sínum tíma sem má lesa hér í óbreyttri mynd:

Bærinn að Sökku í Svarf­að­ar­dal brann til kaldra kola í fyrr­inótt

Mátti litlu muna, að mann­björg úr eld­inum brygð­ist, — Mikið eigna­tjón og til­finn­an­legt.

Í fyrr­inótt varð mik­ill elds­voði í Svarf­að­ar­dal. Bærinn á Sökku brann til kaldra kola á röskum klukku­tíma. Fólk bjarg­að­ist nauðu­lega á nær­klæð­unum. Einn heim­il­is­manna hlaut smá­vægi­leg meiðsli, en litlu mun­aði að stór­slys yrði. Innbú allt brann, og var lágt vátryggt. Sakka er stór­býli. Var þar ágætt og hér­aðs­frægt menn­ing­ar­heim­ili, bóka­kostur mik­ill og góður hús­bún­aður. Er tjón hjón­anna á Sökku, Gunn­laugs Gísla­sonar bónda og Rósu Þor­gils­dóttur, mikið.

Það var klukkan að ganga tvö í fyrr­inótt, að Ari Þor­gils­son, heim­il­is­maður, varð elds­ins var. Vakti hann þegar heim­il­is­fólkið. Eldurinn magn­að­ist á svip­stundu og slapp fólk nauð­ug­lega út úr hús­inu áður en það yrði alelda.

Prest­ur­inn sótti slökkvi­liðið

Ari Þor­gils­son hlaut minni­háttar meiðsli er hann fór út um glugga en aðra heim­il­is­menn sak­aði ekki. Heim­il­is­fólki tókst að ná síma­sam­bandi við prest­setrið á Völlum, og ók séra Stefán Snævar þegar til Dalvíkur að sækja hjálp. Kom slökkvi­lið og læknir stað­ar­ins fljótt á vett­vang, en þá var húsið mjög brunnið og björgun óger­leg. En úti­hús tókst að verja.

Framhús úr timbri

Á Sökku var bær­inn í gömlum stíl, fremst lang­hús úr timbri og járn­klætt, en á bak við það búr og eld­hús og þar næst bað­stofa. Lang­húsið var byggt 1934, en önnur hús voru eldri. Sonur bónda, Þorgils og Olga Stein­gríms­dóttir kona hans, sváfu á lofti lang­húss­ins, svo og Ari Þor­gils­son, er fyrst varð elds­ins var. Telja heima­menn, að ef fólk hefði vaknað fimm mín­útum seinna hefði verið tví­sýnt um björgun fólks­ins úr eld­inum. Gunn­laugur á Sökku hefir lengi búið rausn­ar­búi og hefir stór­bætt jörð­ina. Sakka er 6 km. frá Dalvík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni