Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ingólfur um Ísland og ESB: „Þannig virðist minnimáttarkenndin hafa tekið við af oflátungshættinum“

Ingólfur um Ísland og ESB: „Þannig virðist minnimáttarkenndin hafa tekið við af oflátungshættinum“
Ingólfur Sverr­is­son.

Ingólfur Sverr­is­son, eft­ir­launa­þegi og fyrrum for­stöðu­maður sam­taka fyr­ir­tækja í málm- og skipa­iðn­aði, segir í grein að „ekki verður séð að minni­mátt­ar­kennd sé hót­inu betri en oflát­ungs­háttur. Síðustu vikur og mán­uði hafa birst greinar eftir Hjört J. Guð­munds­son þar sem hann útmálar hvað Ísland yrði lítið og pervisið ef við gengum að fullu inn í ESB og færðum okkur af göngum og náð­húsum inn á fund­ina þar sem mál eru rædd og ákvarð­anir teknar. Hann gengur út frá því að þangað ættum við lítið erindi vegna smæðar þjóð­ar­innar og ein­stæð­ings­skapar.“

Bætir við:

„Yrðum jafnan borin atkvæðum í hverju máli sem við hefðum áhuga á að berj­ast fyrir enda skeyttu stóru þjóð­irnar innan ESB ekk­ert um hags­muni fámenn­ari þjóð­anna. Allt fyrir fram von­laust og svart og betra að láta lítið á sér bera og fara með löndum jafn­vel þótt miklir hags­munir þjóð­ar­innar séu í húfi.“

Hann segir að „ef við hefðum nálg­ast bar­átt­una fyrir útfærslu land­helg­innar með þessu hug­ar­fari og þess­ari „reisn” bendir allt til að lít­ill árangur hefði náðst í því mikla hags­muna­máli. Sem betur fer voru rökin fyrir útfærsl­unni sett á þeim tíma upp skipu­lega, þau vand­lega kynnt á alþjóða­vett­vangi enda þótt ein­hverjir hefðu (eins og nú) litla trú á að við gætum haft sigur á móti vilja og hags­munum mun stærri og vold­ugri þjóða. En með vel upp­byggðum rökum og kröft­ugri mála­fylgju tókst að fá við­ur­kenn­ingu á land­helg­inni enda þótt oft hafi blásið á móti og stríðs­á­stand ríkj­andi á tíma­bilum. Þá var ekki látið nægja að mæla hvað aðrar þjóðir væru fjöl­mennar, við fámenn og gef­ist upp fyrir fram. Nei, trúin á mál­stað­inn og sam­staða þjóð­ar­innar skóp sigur. Ef Íslend­ingar hefðu hins vegar ekki haft þessa sann­fær­ingu fyrir eigin mál­stað, hefðum við ekki getað vænst árang­urs í þessu lífs­hags­muna­máli þjóð­ar­innar. Mig grunar að þáver­andi for­ystu­mönnum þjóð­ar­innar liði ekki vel ef þeir kynnt­ust þeim mál­flutn­ingi sem nú lætur hátt og bygg­ist á því að við séum bæði fá og smá og megum okkur lít­ils í alþjóða sam­starfi. Nær að halda að þeir rífi nú hár sitt í Sum­ar­land­inu vegna slíks úti­boru­háttar.“

Ingólfur segir að „mörg dæmi eru þess innan Evr­ópu­sam­starfs­ins að minni þjóð­irnar hafa barist fyrir hags­muna­málum almenn­ings og úr hafa orðið reglur sem nú þykja sjálf­sagður hluti rétt­inda fólks­ins á svæð­inu. En hitt hefur löngum verið siður margra að tína aðeins úr hillum þau mál­efni sem ekki tókst að koma í gegn og nýta örlög þeirra til að sýna fram á að ekk­ert þýði fyrir þá minni að haf­ast að. Allt fyrir fram von­laust. Hins vegar hafa þessir sömu svo­nefndu sér­fræð­ingar forð­ast að nefna í skrifum sínum og mál­flutn­ingi þau mál­efni sem náðst hafa fram og stuðla að bættum hag venju­legs fólks. Þegja um allt því­líkt enda þjóna slík upp­lýs­inga­skrif ekki nei­kvæðum mál­flutn­ingi um stefnu og störf ESB. Þótt minni­mátt­ar­kennd af þessum toga sé næsta hvim­leið er þó engu betra að ofmeta eigin getu og færni. Það getur á sama hátt virkað hjá­rænu­legt eins og þegar við héldum um síð­ustu alda­mót að Íslend­ingar byggju yfir sjald­gæfum hæfi­leikum um með­ferð fjár­muna. Því jafn­vel haldið fram af ábyrgum for­ystu­mönnum þjóð­ar­innar að þarna hefði verið um að ræða arf­leifð frá tímum vík­inga sem hefði þró­ast hér með yfir­skil­vit­legum hætti við ysta haf allri heims­byggð­inni til heilla. Margir létu glepjast af slíku gaspri en svo sprakk blaðran með skelfi­leg um afleið­ingum.“

Segir og spyr að lokum:

„Athygli vekur að margir sem mærðu þetta „fjár­mála­æv­in­týri” Íslands fylla nú hóp þeirra sem and­æfa að við tökum sem sjálf­stæð þjóð fullan þátt ESB-sam­starf­inu. Þannig virð­ist minni­mátt­ar­kenndin hafa tekið við af oflát­ungs­hætt­inum og heilli þjóð tek­ist að mála sig út í horn. Hímir þar nú þögul og hljóð og treystir sér ekki einu sinni til að ræða hvort upp­taka evru og full aðild að ESB gæti verið far­sælt skref fyrir land og þjóð. Getur staðan orðið öllu snaut­legri?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi