Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lífsreynslusagan: „Þessi maður var ekki fær um að finna neina ást, í sál hans var eintómt hatur“

Lífsreynslusagan: „Þessi maður var ekki fær um að finna neina ást, í sál hans var eintómt hatur“

Ég var ung þegar ég kynnt­ist honum. Reynsla mín af ást­ar­sam­böndum var lítil sem engin, en fátt þráði ég heitar en að vera elskuð, eitt­hvað sem ég upp­lifði ekki í æsku.

Við kynnt­umst á bar í miðbæ Reykja­víkur á bjartri sum­arn­óttu. Augu okkar mætt­ust og þá var ekki aftur snúið.

Hann var tals­vert ölv­aður, en ég kippti mér lítið upp við það enda var drykkja stór partur af íslensku skemmt­ana­lífi.

Við skipt­umst á núm­erum og ákváðum að hitt­ast næsta dag á kaffi­húsi. Upp­á­klæddur í galla­buxum og skyrtu þótti mér hann enn mynd­ar­legri en kvöldið áður. Eftir fyrsta stefnu­mótið vorum við óað­skilj­an­leg. Ég var yfir mig ást­fangin og taldi hann vera það líka.

Þegar ég lít til baka sé ég þó að þessi maður var ekki fær um að finna neina ást, í sál hans var ein­tómt hatur.

Fyrst um sinn var hann hinn full­komni maki, færði mér kaffi í rúmið alla morgna og blóm á hverjum sunnu­degi. Tveimur mán­uðum eftir fyrstu kynni okkar var ég flutt inn í litlu kjall­ara­í­búð­ina hans, for­eldrum mínum til mik­illar ánægju. Þau höfðu oft talað um að nú væri kom­inn tími til þess að ég flytti að heiman og sæi um mig sjálf. Þau höfðu miklar mætur á nýja sam­býl­is­manni mínum sem lagði sig allan fram við að ganga í augun á þeim.

Stuttu eftir flutn­ing­ana komst ég að því að ég var ófrísk. Þrátt fyrir stutt sam­band höfðum við talað með stjörnu­björtum augum um fjöl­skyld­una sem við vildum eign­ast saman. Börnin, hund­inn og húsið.

Ég beið spennt með jákvætt þung­un­ar­prófið í hönd­unum eftir mann­inum mínum sem var á leið heim úr vinnu. Him­in­lif­andi sýndi ég honum nið­ur­stöð­una, það var þá sem hann sló mig fyrst. Mér var svo brugðið að ég með­tók lítið af öskr­unum í honum. Hann vildi vita hvernig ég gat látið þetta ger­ast. Hann rauk út og ég lá eftir á bað­her­berg­is­gólf­inu, ískaldar flís­arnar voru eina merkið um að ekki væri um vondan draum að ræða.

Maðurinn sem ég dýrk­aði og dáði hafði gengið í skrokk á mér. Ég var fljót að fyr­ir­gefa honum verkn­að­inn þegar hann kom til baka með rósir og nammi­poka, lof­aði öllu fögru og afsak­aði sig með því að mikið álag væri á honum í vinn­unni.

Hann varð þó aldrei aftur sami mað­ur­inn og ég kynnt­ist.

Mán­uð­irnir liðu og ófætt barnið okkar stækk­aði. Stundum var hann spenntur að verða faðir, en oft var hann reiður og kenndi mér um þessi örlög. Hann drakk sig fullan marga daga í viku, þá varð hann ofbeld­is­fullur og virt­ist ganga lengra með hverju skipt­inu.

Undir lok með­göng­unnar varð hann mér næstum að bana, spark­aði í mig og lamdi ítrekað. Ég öskr­aði og grét, en það hafði ekk­ert að segja. Klukku­tíma síðar rank­aði ég við mér á gólf­inu sem var þakið blóði. Andlit mitt var óþekkj­an­legt í spegl­inum, bólgið og marið. Ég lædd­ist fram þar sem mað­ur­inn minn svaf værum svefni með bjór­dós­irnar allt í kringum sig. Ófætt barnið okkar spark­aði af krafti og ég and­aði léttar. Ef ég færi á sjúkra­hús yrði hann æfur, eng­inn mátti vita af ofbeld­inu. Ég skreið því upp í rúm, grét og lof­aði litla barn­inu mínu að koma okkur í burtu frá þessum manni.

Daginn eftir lék hann sama leik­rit og vana­lega. Blóm og morg­un­matur í rúmið ásamt örvænt­ing­ar­fullum lof­orðum og afsök­un­ar­beiðnum.

Mér brá þegar hann sagð­ist ætla í með­ferð. Aldrei hafði mér dottið til hugar að mað­ur­inn myndi nokkurn tím­ann hætta að drekka. Kannski var það áfengið sem gerði hann að þessu skrímsli? Ég gat ekki gef­ist upp ef hann yrði aftur að mann­inum sem hann var í upp­hafi sam­bands­ins, mann­inum sem ég elskaði svo heitt.

Viku síðar var hann kom­inn inn á Vog og sama dag fór ég af stað í fæð­ingu og átti dóttur okkar.

Allt virt­ist ganga á besta veg.

Við töl­uðum dag­lega saman í síma og hann dembdi yfir mig ást­ar­orðum og lof­orðum. Eftir mánuð í með­ferð kom mað­ur­inn minn heim. Í fyrstu sýndi hann dóttur sinni mik­inn áhuga, en með hverjum deg­inum dvín­aði áhug­inn.

Loks fór hann aftur að drekka og lýsti andúð sinni á mér og dóttur okkar. Það leið ekki að löngu þar til að hann gekk í skrokk á mér aftur. Örvænt­ingin greip mig, ég vissi að ég gæti ekki boðið dóttur minni upp á þetta.

Ekki hafði ég þó minnstu hug­mynd um hvert ég gæti farið.

Ég átti í engin önnur hús að venda og átti ekki krónu.

Maðurinn minn skammt­aði mér vasa­pen­ing, honum þótti ég of eyðslu­söm og sagði að ekki væri hægt að treysta mér fyrir pen­ingum. Þegar ég var í þann mund að sætta mig við hræði­leg örlög mín fékk ég skila­boð á Facebook og hjartað í mér sökk. Send­and­inn var ung kona, hún virt­ist illa farin á myndum. Hún tjáði mér að hún hefði átt í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við mann­inn minn á Vogi, nýlega hefði hún greinst með kyn­sjúk­dóm og bæri skylda til þess að láta ból­fé­laga sína vita.

Maðurinn minn hafði alla tíð verið lítið á sam­fé­lags­miðlum og konan fann enga leið til þess að ná í hann.

Ég starði stjörf á tölvu­skjá­inn og las skila­boðin aftur og aftur. Ég spurði kon­una hvernig hún vissi af mér og hún tjáði mér að mað­ur­inn minn hefði talað mikið um mig á Vogi, sýnt sam­sjúk­lingum myndir af mér og dóttur okkar á milli þess sem hann lædd­ist inn í her­bergi með hinum ýmsu konum. Ég gat ekki lengur kennt áfeng­inu um kvik­ind­is­skap­inn.

Það var þennan dag sem ég pakk­aði nauð­synjum niður í tösku fyrir mig og dóttur mína og hélt beina leið í Kvenna­at­hvarfið.

Stuttu síðar greind­ist ég með tvo kyn­sjúk­dóma.

Ég byggði mér hægt og rólega upp nýtt líf og dóttir mín hefur ekki séð né heyrt frá föður sínum síðan.

Nú tíu árum síðar birt­ist hann enn reglu­lega í lífi mínu með skila­boðum á sam­fé­lags­miðlum, þrátt fyrir nálg­un­ar­bann.

Hann mun þó aldrei fá tæki­færi til að meiða mig aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi