Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einar Steingrímsson kærði skólameistarann fyrir reykingar: „Við töluðum nú ekkert um þetta“

Einar Steingrímsson kærði skólameistarann fyrir reykingar: „Við töluðum nú ekkert um þetta“
Einar Stein­gríms­son stærð­fræð­ingur.

Einar Stein­gríms­son stærð­fræð­ingur hefur lengi haft gaman af því að rugga bátnum og hefur oft farist það vel úr hendi, eins og bak­sýn­is­speg­ill kvölds­ins er til vitnis um.

Það var um vorið 1974 að skóla­meist­ari Mennta­skól­ans á Akureyri varð þannig á í mess­unni að hann lét nappa sig við að reykja vindil á heima­vist­inni en reyk­ingar þar voru strang­lega bann­aðar.

Var atvik­inu lýst með miklum til­þrifum í skóla­blaði MA en þar kemur fram lík­leg vindla­teg­und og magn ösku sem féll af vindl­inum á nýlagt teppi vist­ar­innar. Enginn af þeim nem­endum sem urðu vitni að athæfi skóla­meist­ar­ans þorði að segja orð við hann en eftir að hann var far­inn af vist­inni, voru þeir sam­mála um að þarna hafi átt sér brot á heima­vist­ar­lögum. Einar Stein­gríms­son var einn þeirra nem­enda, en hann var stað­ráð­inn í að láta meist­ar­ann ekki kom­ast upp með þetta enda skyldi eitt yfir alla ganga.

Mennta­skól­inn á Akureyri

Í fyrstu brást skóla­meist­ar­inn við á góðan hátt en um leið og honum var ljóst að Einari væri alvara með kærunni, varð hann ævar­eiður og hót­aði að reka hann af vist­inni, fyrir að móðga sig með þess­ari kæru. Og það er einmitt það sem meist­ar­inn gerði, hann rak hinn 19 ára Einar Stein­gríms­son af heima­vist MA.

Fékk Einar þó að halda áfram námi við skól­ann, allt þar til hann hætti í skól­anum eftir vor­önn­ina, en það gerði hann óháð heima­vist­ar­mál­inu. Harð­neit­aði skóla­meist­ar­inn því að brott­rekst­ur­inn úr heima­vist­inni hafi verið póli­tísk en tók svo fram í við­tali við Alþýðu­blaðið að Einar til­heyrði „komm­ún­ista­sellu“ sem vildi blása málið upp. Kærði Einar úrskurð meist­ar­ans til Mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem stað­festi úrskurð­inn og fannst ekk­ert að við­brögð­unum.

Hér má lesa skrif Alþýðu­blað­is­ins um hið stór­skemmti­lega mál en fyrir neðan það er stutt við­tal við Einar frá því í dag.

Skóla­meist­ari M.A. kærður fyrir að ganga með vindil um heima­vist­ina

Í nýlega útkomnu ein­taki af „Minnsta-Muninn”, sem mun vera blað, sem gefið er út af hópi nem­enda Mennta­skól­ans á Akureyri, er skýrt frá all sér­stæðu máli, sem kom upp við skól­ann nýlega. Nemandi kærði Tryggva Gíslason, skóla­meist­ara, fyrir að reykja á göngum heima­vistar, en slíkt mun bannað sam­kvæmt reglum heima­vistar. Viðbrögð Tryggva urðu þau, sam­kvæmt frá­sögn blaðs­ins, að nem­and­inn var rek­inn af heima­vist fyrir að móðga skóla­meist­ar­ann. Það síð­asta í mál­inu er það, að umræddur nem­andi hefur kært úrskurð skóla­meist­ara til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins, og er málið þar í athugun.

Í frá­sögn „Minnsta-Munins” af atvik­inu segir svo: „Um aðdrag­anda að brott­vikn­ingu félaga Einars Stein­gríms­sonar af heima­vist, er þetta helst: 2. mars gengur hátt­virtur meist­ari út úr ibúð sinni í heima­vist­inni með stóran vindil (lík­lega King Edward Imperial) og ásamt einum kenn­ara gengur hann niður stiga­gang­inn. Inn í setu­stofu, lit­ast þar um, en fer síðan fram í and­dyrið. En þá ger­ist óhappið: um það bil 2 cm af vind­ilsösku féllu til jarðar (niður á nýja teppið). Nokkrir nem­endur voru við­staddir þetta slys, en eng­inn sagði orð meðan meist­ari var að reyna að sópa ösk­unni upp, þó í hug­skoti þeirra stæði aug­ljós­lega 5. gr. II. kafla í Reglum Heima­vistar MA. En þegar meist­ari var kom­inn úr heyrn­ar­færi litu nem­endur hver á annan og spurðu: Eru reyk­ingar ekki bann­aðar hér? Þetta er eitt af fjöl­mörgum dæmum um þann þrælsótta, sem ríkir hér í skól­anum.

Félagi Einar Stein­grims­son kærði Tryggva Gislason eins og Reglum Heima­vistar gera ráð fyrir. 7. mars afhenti heima­vist­ar­ráð kæruna Tryggva Gísla­syni, sem í fyrstu hafði gaman af, en er honum varð ljóst að hér var ekk­ert gam­an­mál á ferð­inni, brást hann hinn versti við og tók ham­skiptum. Sagði hann við vist­ar­ráðs­menn að þetta væri þeim til minnk­unar, fyrir þetta yrði Einari vikið úr heima­vist­inni og jafn­vel úr skóla. Enn­fremur bað hann vist­ar­ráðs­menn að boða Einar á sinn fund, en þar sem ekki náð­ist í hann fyrr en seint um kvöldið, mætti hann ekki fyrr en dag­inn eftir. Á þessum fundi tjáði meist­ari Einari, eftir snörp orða­skipti þeirra á milli, að honum væri vikið úr heima­vist­inni.

Á fundi með heima­vist­ar­ráði sagði meist­ari, að for­sendur fyrir brott­vikn­ing­unni væru að Einar hefði sýnt sér móðgun með kærunni og ,,að hann þyldi ekki að hafa mann, sem hefði andúð á stjórn­ar­skránni undir sama þaki”.”

Alþ.bl. snéri sér í gær til Tryggva Gísla­sonar, skóla­meist­ara, og spurði hann um málið. Sagði Tryggvi það rétt, að hann hefði gengið úr íbúð sinni með vindil í hendi, í gegnum ganga heima­vist­ar­innar og út. Umræddur nem­andi, Einar Stein­gríms­son, hafi kært þetta til heima­vist­ar­ráðs. Tryggvi sagð­ist líta á kæruna sem móðgun við sig sem æðsta yfir­mann skól­ans og jafn­framt yfir­manns heima­vistar. Þetta hefði verið önnur ástæðan fyrir þvi, að Einari var vikið af heima­vist. Hin ástæðan væri sú, að Einar hefði marg­sinnis gerst brot­legur við reglur heima­vist­ar­innar, en ætið hefði verið horft í gegnum fingur við hann. Þvi væri það ein­stök ókurt­eisi af hans hálfu, að ætla að blása þetta mál upp, kveikja máls­ins væri fárán­leg. Það væri alrangt, eins og vissir nem­endur hefðu haldið fram, að brott­vikn­ing Einars úr heima­vist­inni væri póli­tísk.

Skóla­meist­ari sagði, að Einari hefði ekki verið vikið úr skóla, og stund­aði hann þar nám utan­skóla til að ná upp töf i námi. Sagði skóla­meist­ari að Einar til­heyrði „komm­ún­ista­sellu” við skól­ann, sem vildi blása þetta mál upp. Einar hafði áður staðið að svip­uðu máli fyrir tveimur árum vegna rekst­urs heima­vist­ar­innar, og bland­að­ist sonur þáver­andi skóla­meist­ara inn í það mál. Hafði það mál einnig verið blásið upp, og orðið um það blaða­skrif.

Mannlíf heyrði í Einari Stein­gríms­syni við vinnslu þessa Bak­sýn­is­speg­ils en hann er nú staddur í Hrísey og hafði lít­inn tíma til að spjalla. Aðspurður hvað hefði komið út úr kæru hans á úrskurð­inum, sagði hann að Mennta­mála­ráðu­neytið hafi vísað því frá og sagði hann ein­hvers staðar enn eiga svar ráðu­neyt­is­ins.

Aðspurður hvernig sam­skiptin hafi verið á milli hans og skóla­meist­ar­ans eftir að hann hafði verið rek­inn af vist­inni, sagði Einar að þau hafi ekki verið mikil, enda hafi hann hætt í skól­anum eftir vor­önn­ina. „En svo hitt­umst við ein­hvern tíma 2005, á ein­hvers konar júbílanta­ball, þó ég hafi nú ekki útskrif­ast með þeim. En við töl­uðum nú ekk­ert um þetta en við töl­uðum þannig saman að það var ljóst að við erfðum þetta hvor­ugur við hvor annan.“

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst á vef Mannlífs 19. júní 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni