Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Telja Hjálmar brotlegan en kæra ekki: „Öllum líkindum sekur um refsiverða háttsemi“

Telja Hjálmar brotlegan en kæra ekki: „Öllum líkindum sekur um refsiverða háttsemi“
Hjálmar Jónsson fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri BÍ

Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur ákveðið að kæra ekki Hjálmar Jónsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra félags­ins, en tekur fram í til­kynn­ingu sinni til fjöl­miðla að sam­kvæmt lög­fræði­á­liti sem félagið fékk frá LOGOS að Hjálmar hafi lík­lega gerst sekur um refsi­vert brot í starfi.

Deilur hafa staðið milli stjórnar Blaða­mann­fé­lags­ins og Hjálmars síðan honum var sagt upp vegna trún­að­ar­brests í starfi í jan­úar á þessu ári. Í til­kynn­ingu félags­ins um málið er sagt að meint brot hans hafi falist í lán­veit­ingum sem hann veitti sjálfum sér af fjár­munum félags­ins án sam­þykkis stjórnar, greiðslu öku­tækja­styrks og dag­pen­inga umfram heim­ildir og mögu­lega með kaupum á lausafé umfram ástæður og til per­sónu­legra nota. Hjálmar hefur neitað öllum ásök­unum um að hafa brotið af sér starfi.

Hægt er að lesa alla frétta­til­kynn­ingu Blaða­manna­fé­lags­ins hér fyrir neðan:

Stjórn BÍ tók um það ein­róma ákvörðun á stjórn­ar­fundi 21. júní að leggja ekki fram kæru til lög­reglu vegna hátt­semi fyrrum fram­kvæmda­stjóra, þrátt fyrir nið­ur­stöðu lög­fræði­á­lits LOGOS þar sem fram kemur að hátt­semin hafi verið veru­lega ámæl­is­verð og jafn­vel refsi­verð. Stjórn BÍ telur hags­munum félags­ins betur borgið með því að ljúka mál­inu í stað þess að halda því áfram um ótil­greindan tíma með ófyr­ir­séðum afleið­ingum og kostn­aði fyrir félagið.

Eftir nið­ur­stöður úttektar KPMG á til­teknum færslum í bók­haldi BÍ, sem kynnt var félags­mönnum á aðal­fundi í apríl sl., óskaði stjórn félags­ins eftir lög­fræði­á­liti frá LOGOS lög­fræði­þjón­ustu um mögu­lega refsi­á­byrgð fyrrum fram­kvæmda­stjóra vegna hátt­semi hans í starfi. Lögmaður LOGOS, sem er sér­fræð­ingur í mála­flokknum, byggði minn­is­blað sitt á úttekt KPMG og þeim ábend­ingum sem þar komu fram við skoðun á gögnum félags­ins.

Nið­ur­staða minn­is­blaðs­ins er sú að fyrrum fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands, Hjálmar Jónsson, gerð­ist að öllum lík­indum sekur um refsi­verða hátt­semi í starfi sínu fyrir félagið. Meint brot fólust í lán­veit­ingum sem hann veitti sjálfum sér af fjár­munum félags­ins án sam­þykkis stjórnar, greiðslu öku­tækja­styrks og dag­pen­inga umfram heim­ildir og mögu­lega með kaupum á lausafé umfram ástæður og til per­sónu­legra nota.

Minn­is­blaðið er afdrátt­ar­laust og fer yfir hvernig fyrrum fram­kvæmda­stjóri mis­not­aði þá aðstöðu sem hann fékk í krafti umboðs til ráð­stöf­unar á fjár­munum félags­ins, sér í lagi hvað varðar lán­veit­ingar hans til sjálfs sín:

„Ljóst er að fyrrum fram­kvæmda­stjóri milli­færði á sjálfan sig tæpar 9,2 m.kr. og lét færa í bók­haldi sem fyr­ir­fram­greidd laun. Var það án heim­ildar og án vit­neskju stjórnar félags­ins. Greiðsl­urnar komu ekki fram á launa­seðlum hjá fyrrum fram­kvæmda­stjóra og því ekki hægt að rekja í bók­haldi að greiðsl­urnar teng­ist fyr­ir­fram greiddum launum. Fram­an­greind hátt­semi fyrrum fram­kvæmda­stjóra með lán­veit­ingum til sjálfs síns án sam­þykkis stjórnar, greiðslur öku­tækja­styrks og dag­pen­inga umfram heim­ildir og mögu­lega með kaupum á lausafé veru­lega umfram ástæður og til per­sónu­legra nota fellur að öllum lík­indum undir fjár­drátt sam­kvæmt 247. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940.“

Í minn­is­blað­inu er farið yfir að brotið telj­ist að fullu framið þó svo að fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hafi greitt til baka það sem hann fékk að láni:

„Það sem ein­kennir fjár­drátt er að ger­andi hafi fjár­verð­mæti þriðja aðila, eig­and­ans, í vörslum sínum þegar til­einkun á sér stað. Þá ráð­stafar ger­and­inn þeim í eigin þágu sem er eig­and­anum óvið­kom­andi og er án hans sam­þykkis.“

„Full­framn­ing refsi­brots á borð við fjár­drátt mið­ast við það stig í verkn­að­ar­ferl­inu þegar ger­andi, í skjóli aðstöðu sinnar sem vörslu­hafi verð­mæta, fer að líta á þau sem eigin eign og fer með þau á þann veg. Veruleg lík­indi eru með skil­grein­ingu á fjár­drætti og og þeirri hátt­semi fyrrum fram­kvæmda­stjóra félags­ins sem að framan var lýst þar sem hann hefur gengið mjög frjáls­lega um sjóði félags­ins með lán­veit­ingum og annarri nýt­ingu fjár­muna sem hann á ekki til­kall til án sam­þykkis stjórnar félags­ins. Um leið og færsl­urnar áttu sér stað var í raun búið að full­fremja refsi­brotið. Óheimil með­ferð fjár­ins er virt sem fjár­dráttur óháð veru­legri fjár­tjóns­hættu, þ.e. óháð líkum á end­ur­greiðslu og óháð því hvort end­ur­greiðsla á sér stað á síð­ari stigum, líkt og virð­ist hafa verið raunin með “lán­veit­ingar“ í 28 skipti yfir langan tíma.“

Í minn­is­blað­inu er einnig tekið fram að ef ekki yrði fall­ist á að fram­an­greindar ráð­staf­anir fyrrum fram­kvæmda­stjóra væru fjár­dráttur yrði að öllum lík­indum fall­ist á að sama hátt­semi teld­ist vera umboðs­svik. Kæmi til kæru og síðar ákæru yrði að lík­indum ekki erfitt að sýna fram á per­sónu­lega auðgun fram­kvæmda­stjór­ans.Til máls­bóta yrði þó vænt­an­lega litið til þess að hann end­ur­greiddi lánin.

Auk þess er til­tekin í minn­is­blað­inu áhætta á mis­ferli vegna ýmissa atriða í skýrslu KPMG sem snúa að styrk­veit­ingum, veit­inga- og ferða­kostn­aði o.fl., þar sem ekki var sótt heim­ild til stjórnar. Þau atriði feli þó ekki endi­lega í sér refsi­verða hátt­semi heldur frekar laus­ung á dag­legum rekstri félags­ins og lélega fram­kvæmda­stjórn.

Að ráði lög­manns­ins óskaði stjórn eftir skýr­ingum fyrrum fram­kvæmda­stjóra. Stjórn óskaði eftir að hann skýrði ákveðin atriði sem fram komu í úttekt KPMG. Hann sendi stjórn skýr­ingar sínar með bréfi þann 6. júní 2024. Stjórn fól lög­manni LOGOS að meta skýr­ing­arnar og var það nið­ur­staða hans að þær breyttu ekki nið­ur­stöðu minn­is­blaðs­ins; þ.e.að hátt­semi fram­kvæmda­stjór­ans fyrr­ver­andi hafi verið veru­lega ámæl­is­verð og jafn­vel refsi­verð.

Þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu tók stjórn BÍ ákvörðun um það á stjórn­ar­fundi 21. júní að ljúka mál­inu. Stjórn BÍ telur að til­gangi þess, að ráð­ast í þessa skoðun, sé nú náð. Mark­miðið hafi verið að fá sér­fræði­á­lit á rekstri og fjár­reiðum félags­ins í ljósi þess hve illa gekk hjá stjórn að fá upp­lýs­ingar frá fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, líkt og fram kom í fund­ar­gerð stjórnar þann 12. jan­úar sl. Með úttekt KPMG, sem leiddi í ljós fjöl­marga alvar­lega ann­marka, og lög­fræði­á­liti LOGOS, telur stjórn málið nægi­lega upp­lýst og að hún hafi nú nægar upp­lýs­ingar til að bæta vinnu­brögð og ferla og koma í veg fyrir að við­líka hátt­semi geti átt sér stað aftur. Und­an­farna mán­uði hefur starfs­fólk skrif­stofu BÍ unnið að umbótum á verk­lagi við með­ferð fjár­muna sem snúa að öllum athuga­semdum KPMG. KPMG hefur nýjar verk­lags­reglur nú til yfir­ferðar í tengslum við end­ur­skoðun árs­reikn­ings 2023.

Stjórn von­ast til þess að með þess­ari ákvörðun sé mál­inu end­an­lega lokið og að orka og athygli starfs­fólks og stjórnar geti beinst að því að efla veg blaða­mennsku og blaða­manna á Íslandi, félags­mönnum og fag­inu til heilla, því blaða­mennska hefur aldrei verið mik­il­væg­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi