Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hryllingur í Héraðsdómi: „Ætlaði að kæfa mig með getnaðarlimi sínum og míga yfir gröf móður minnar“

Hryllingur í Héraðsdómi: „Ætlaði að kæfa mig með getnaðarlimi sínum og míga yfir gröf móður minnar“

Réttað var yfir Mohamad Kourani í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í vik­unni vegna ákæru um sex ofbeld­is­brot; þar á meðal mann­dráp­stil­raun sem og lífs­hættu­lega hnífa­árás á tvo menn í versl­un­inni OK Market í mars á þessu ári.

Lög­fræð­ingur er starf­aði hjá Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands þurfti að þola gengd­ar­lausar ofsóknir af hendi Mohamad Kourani, Sýr­lend­ingssins er réttað var yfir, en þetta kom fyrst fram á DV.

Kourani kom hingað til Íslands árið 2018; hlaut alþjóð­lega vernd; hann hefur margoft brotið af sér hér á landi síðan; er marg­dæmdur: Meðal ann­ars vegna lík­ams­árása og sprengju­gabbs.

Það kemur fram að á und­an­förnum mán­uðum hefur fólk stigið fram sem Kourani hefur hótað og ofsótt á síð­ustu árum; þar á meðal er vara­rík­is­sak­sókn­ari, Helgi Magnús Gunn­ars­son.

Strax við þing­setn­ingu máls­ins gegn í Hér­aðs­dómi Reykja­ness hót­aði Kourani dóm­ara, lög­reglu­mönnum, eigin lög­manni, túlki og fleira starfs­fólki dóms­ins líf­láti.

Við aðal­með­ferð máls­ins hafði einnig í hót­unum við blaða­mann DV er leiddi til þess að dóm­ari setti ofan í við Kourani.

Kona er kýs það að koma fram undir nafn­leynd hjálp­aði Kourani í starfi sínu sem lög­fræð­ingur hjá Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands; Kourani sýndi henni lítið þakk­læti fyrir og hóf að ofsækja hana vegna reiði yfir því að hún gat ekki aðstoðað hann að því marki sem hann hafði vænt­ingar til um:

„Ég fæ ennþá brjál­æð­is­lega hræðslu­til­finn­ingu, kvíða­hnút og kökk í háls­inn þegar ég heyri minnst á þennan mann en ég var ein af þeim útvöldu sem hann fékk á heil­ann,“ segir konan.

Í kjöl­farið þurfti hún að ganga með neyð­ar­happ í nokkur ár vegna hót­ana Kourani sem voru væg­ast sag­tó­geð­felldar:

„Hann sagð­ist hlakka til að sprengja mig upp, ætl­aði að kæfa mig með getn­að­ar­limi sínum, ætl­aði að ganga frá börn­unum mínum, ætl­aði að míga yfir gröf móður minnar, já hann gekk svo langt að vera búinn að finna það út að móðir mín væri dáin, og svona mætti lengi telja. Kæru­gögnin skipta tugum blað­síðna með hót­unum, sví­virð­ingum og við­bjóði.“

Að mati kon­unnar á Kourani ekki eiga heima í mann­legu sam­fé­lagi. Sagði líka þetta:

„Þetta gekk svona í mörg ár. Þessi maður er óstöðv­andi, hann á ekki að eiga þann kost að draga að sér sama súr­efni og við hin. Satt best að segja þá fann ég ekki fyrir miklu öryggi frá þessum meinta örygg­is­hnappi þó að ég hafi fengið einn slíkan hjá lög­reglu, enda við­bragðs­tím­inn óheyri­legur líkt og ég fékk nokkrum sinnum að finna fyrir, þá var ég einnig með svo­kall­aða krækju á síma­núm­er­inu mínu sem og vinnu­sím­anum svo ég yrði í for­gangi myndi ég hringja inn til Neyð­ar­lín­unnar. Auk þess var málið fellt niður hjá lög­reglu án útgáfu ákæru þannig að hann þurfi aldrei að svara fyrir þau brot sem ég varð fyrir af hans hálfu.“

Konan er á því að þáver­andi vinnu­veit­andi sinn beri vissa ábyrgð í mál­inu:

„Ég tel að þáver­andi vinnu­veit­andi minn hafi ekki sinnt skyldum sínum um að gæta öryggis á vinnu­stað enda fékk þetta að ganga á í langan tíma án nokk­urra örygg­is­ráð­staf­ana og enn í dag mæti ég full­komnu skiln­ings­leysi af þeirra hálfu vegna þeirra alvar­legu afleið­inga sem mál þetta hefur haft á mína heilsu, en ég að lokum lagði inn kæru til lög­reglu árið 2021 þegar heilsan mín var orðin þess eðlis að ég var hér um bil orðin óvinnu­fær. Ég fæ þá fyrr­greindan örygg­is­hnapp sem ég var með þar til snemma á síð­asta ári, en þá hafði ég játað mig sigr­aða og varð óvinnu­fær með öllu og lauk þar með störfum mínum fyrir Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands.“

Hún telur upp dæmi um helstu ofsókn­ar­að­ferðir Kourani í garð hennar:

„Þetta voru ýmist líf­láts­hót­anir, sví­virð­ingar og ofsóknir sem bár­ust á vinnu­pósta, á Facebook og svo gerði hann í því að hringja að næt­ur­lagi á þeim tíma sem sími skrif­stof­unnar var fram­sendur til mín vegna COVID-lok­ana, og ýmist anda í sím­ann, stynja í sím­ann eða tala að því er virt­ist tungum. Þá kom hann líkt og fyrr greinir af og til inn á skrif­stofur okkar að Túngötu, gekk fram­hjá gluggum skrif­stof­unnar, gerði ýmsar hreyf­ingar sem bentu til þess kyn­ferð­is­lega ofbeldis sem hann hafði oft hótað mér með, varn­aði mér einu sinni aðgangi að skrif­stof­unni þegar ég mætti um morgun, þ.e. stóð fyrir framan skrif­stof­una snemma morg­uns og svona mætti lengi telja.“

Konan segir að þeir aðilar er hafi orðið fyrir barð­inu á ofsóknum Kourani verði lengi að jafna sig:

„Það mun taka mig, líkt og eflaust flesta aðra sem lent hafa í honum eða slíkum aðstæðum, mörg ár að jafna mig, – ef ég þá mun nokkurn tím­ann gera það að fullu.“

Kemur fram að lokum að dómur yfir Kourani fyrir árás­ina í OK Market sem og fleiri ofbeld­is­brot verður kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness þann 15. júlí. Hér­aðs­sak­sókn­ari fer fram á 6 til 8 ára fang­elsi í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi