Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heiðar fjárfestir: „ESB sendir styrki til Carbfix svo við tökum við menguninni frá þeim“

Heiðar fjárfestir: „ESB sendir styrki til Carbfix svo við tökum við menguninni frá þeim“

Heiðar Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur og fjár­festir. ritar grein er ber yfir­skrift­ina:

Mengum meira.

Þar segir Heiðar að nú blasi „við orku­skortur á Íslandi. Í raun eru öfug orku­skipti að fara fram þar sem raf­magnstengdar fiski­verk­smiðjur eru látnar brenna olíu. Þetta ger­ist á meðan næga græna orku er að finna hér á landi.“

Heiðar heldur áfram og nefnir að „í dag búum við skammt­anir á heitu vatni og öruggt aðgengi að hús­hitun hefur snar­minnkað á síð­ustu árum. Stærsti hluti orku heims­ins fer til hús­næðis. Að halda jöfnu hita­stigi á húsum útheimtir meira en helm­ing allrar orku­notk­unar jarð­ar­innar, meira en sam­göngur og raf­magns­fram­leiðsla til sam­ans.

Ísland er fremst í flokki í þessum efnum en hefur ein­hverra hluta vegna ekki fengið það metið í samn­ingum um að minnka losun kolefna í and­rúms­loftið, heldur tekið á sig skuld­bind­ingar í þeim efnum. Þar hefur hags­muna­gæsla íslenskra stjórn­valda og emb­ætt­is­manna beðið algert skip­brot.“

Hann telur að líka sé hægt að „horfa til Orku­veitu Reykja­víkur til að reyna skilja hvers vegna Ísland er komið í ógöngur. Þar hafa hags­munir almenn­ings mátt víkja fyrir gælu­verk­efnum borg­ar­stjórnar og emb­ætt­is­manna.

Heng­ils­svæðið er í raun stærsta orku­lind Íslands, stærri en Kára­hnjúkar í heild­ar­afli. Á Nesja­völlum hefur verið stöðug fram­leiðsla og í kringum Hvera­dali hefur verið reynt að auka fram­leiðslu með mis­mun­andi árangri. Þar við hlið­ina í Hvera­hlíð er fram­tíð­ar­svæði Reykja­víkur fyrir jarð­varma, sér­stak­lega til hús­hit­unar en einnig til fram­leiðslu raf­magns.“

Heiðar er óánægður með nýt­ingu svæð­anna:

„Af óskilj­an­legum ástæðum hefur aukin nýt­ing svæð­anna ekki verið efst á blaði hjá Orku­veitu Reykja­víkur heldur eitt­hvað allt annað. Húshitun á flestum stöðum heims­ins fer fram með bruna jarð­efna, oft­ast kola. Þar sem hús­hitun er langstærsti not­andi orku jarð­ar­innar er ljóst að hún stendur fyrir mestum útblæstri kolefna. Mis­heppnuð orku­stefna ESB hefur valdið því að nú er verið að opna nýjar kola­námur í Þýska­landi, í fyrsta skipti í meira en hálfa öld, til að mæta orku­þörf­inni. Orku­ör­yggi í Evrópu hefur einnig snar­minnkað og verð hafa hækkað en á sama tíma eru álögur lagðar á kolefn­is­spor stofn­ana og fyr­ir­tækja. Carbfix seg­ist vera með lausn á þessum marg­þætta vanda. Setja evr­ópskan útblástur í olíu­knúin skip sem sigla til Straums­víkur þar sem meng­un­inni er dælt ofaní bor­holur í þeirri von um að hún stein­ger­ist í jarð­lögum Íslands.“

Hann segir ein­fald­lega að „það eru engar holur við Straums­vík og í raun ekki höfn fyrir verk­efnið heldur. Þar undir hraun­inu rennur hins vegar ein stærsta ferskvatnsá lands­ins. Það þarf að byggja og bora fyrir tugi millj­arða með gríð­ar­legu umhverf­is­raski, til að Evrópa geti haldið áfram að brenna kolum og þetta þarf að gera á Íslandi því bergið er svo ungt og tekur svo vel við. Og þá er ekki minnst á mengun ferskvatns­ins. Mér finnst fárán­leik­inn í þessu alger. ESB hefur sett íþyngj­andi gjöld og reglur um mengun á Íslandi, eins sjálf­bærasta orku­not­anda heims, sem við greiðum til þeirra.

ESB sendir okkur svo styrki til Carbfix verk­efn­is­ins svo að við tökum við meng­un­inni frá þeim og setjum hana í jörð á græna Íslandi.“

Heiðar spyr ein­fald­lega:

„Ber eng­inn ábyrgð?“

Segir að end­ingu:

„Orku­veitu Reykja­vikur hefur brugð­ist við­skipta­vinum sínum. Í stað þess að tryggja þeim hús­hitun og raf­magn á hag­stæðu verði hefur fyr­ir­tækið farið í póli­tísk gælu­verk­efni. Á meðan hefur nauð­syn­leg orku­öflun ekki átt sér stað, við­hald setið á hak­anum með til­heyr­andi sprungnum hita­vatns­leiðslum, og gríð­ar­legum fjár­munum verið sólundað.

Það er ljóst að aukin fram­leiðsla grænnar orku eru hags­munir Íslands og hags­munir heims­ins. Hver ákvað að betri leið væri að auka ekki græna orku­fram­leiðslu hér heldur reyna, með til­heyr­andi orku­sóun, að reyna að grænka meng­andi evr­ópska orku­fram­leiðslu með því að flytja meng­un­ina hingað? Hver sam­þykkti stefn­una „mengum meira“?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi