Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segja afturför í réttindamálum hinsegin fólks og margra minnihlutahópa: „Þetta var sjokk“

Segja afturför í réttindamálum hinsegin fólks og margra minnihlutahópa: „Þetta var sjokk“
Halla Þórlaug Ósk­ars­dóttir Eva Rún Snorra­dóttir. Mynd: Skjáskot af RÚV.

„Okkur lang­aði að halda bók­mennta­há­tíð sem myndi upp­hefja og setja í fókus hinsegin höf­unda,“ segir Eva Rún Snorra­dóttir sem er önnur skipu­leggj­enda hinsegin bók­mennta­há­tíð­ar­innar Queer Situations sem haldin verður í fyrsta skipti dag­ana 22. til 24. ágúst:

„Bæði höf­unda sem eru hinsegin og eru að skrifa um hinsegin mál­efni en líka bækur sem eru út fyrir miðj­una í formi og hvernig þau nálg­ast hvar þau koma inn í bók­mennta­sen­una.“ Þær stöllur, Eva Rún og Halla Þórlaug Ósk­ars­dóttir ræddu málið við Tengi­vagn­inn á Rás 1 um til­urð en ekki síst til­gang bók­mennta­há­tíð­ar­innar Queer Situations og mæltu þær með athygl­is­verðum bókum eftir höf­unda er verða gestir á hátíð­inni.

„Við erum miklir aðdá­endur bók­mennta­há­tíða og Bók­mennta­há­tíð í Reykja­vík er algjör veisla,“

„Á bók­mennta­há­tíð í Reykja­vík er hinsegin bók­menntum þjappað saman og þær eru settar saman á pall­borð undir hatt hinseg­in­leik­ans og inn í þann sviga. Við erum að reyna að taka svig­ann í burtu og búa til „plat­form“ þar sem er eng­inn svigi. Við erum búnar að búa til jarð­veg­inn fyrir umræð­una út frá þessum hinseg­in­leika en hann er samt ósýni­legur að því leyti að hann er bara and­rúms­loftið.“

„Með fullri virð­ingu fyrir annarri hinsegin dag­skrá fannst okkur mik­il­vægt að búa til nýtt norm á hátíð­inni þar sem hinseg­in­leiki er normið,“ segir Halla Þórlaug og bætir við:

„Við fjöllum um bók­mennt­irnar á bók­mennta­legan máta en ekki endi­lega um hinseg­in­leik­ann í bók­mennt­unum. Hann er alltum­lykj­andi á hátíð­inni sjálfri.“

Hátíðin verður haldin í Salnum í Kópavogi 22. til 24. ágúst; von er á erlendum stór­stjörnum úr heimi hinsegin bók­mennta:

„Raun­veru­leiki hinsegin fólks er að mörg okkar lesa bara aldrei um sig. Ég man þegar ég var langt frá því að gang­ast við því, eða fatta, að ég væri lesbía var ég alltaf að lesa bækur sem voru þá að koma út eftir Vigdísi Gríms­dóttur,“ segir Eva, og líka þetta:

„Það voru engar ástir kvenna í þessum bókum en ég fann að það var eitt­hvað duft í súr­efn­inu, eins og brauð­molar á leið­inni.“

„Á þess­ari hátíð erum við að setja mik­inn fókus á að flytja inn erlendar raddir og fá smá súr­efni inn í okkar senu,“ segir Halla Þórlaug.

Og dag­skráin er glæsi­leg og þeim stöllum til mik­ils sóma; banda­rísku höf­und­arnir Maggie Nelson og Harry Dodger eru áleið­inni til lands­ins sem og hin sænska Ia Genberg; einnig danski lista­mað­ur­inn Madame Nielsen:

„Við erum að springa úr monti,“ segir Halla um dag­skrána.

Eva og Halla eru á fullu við að skipu­leggja upp­lestur; fræða­dag­skrá; kvik­mynda­sýn­ingar – bar­svar: Leik­lestur á leik­ritum sem og umræður og margt margt fleira. Þær hafa fengið stuðn­ings fag­fólks hjá Sam­tök­unum ’78:

„Þau hafa ótæm­andi reynslu af við­burða­stjórnun og stórum við­burðum og eru með alls konar teng­ingar. Þegar við hittum þau í vor og vorum að segja þeim frá dag­skránni komu þau með einn lið sem við vorum ekki búnar að gera ráð fyrir og það var að við yrðum að vera með örygg­is­verði. Við lifum á tímum þar sem búið að vera ákveðið bakslag í gangi sem er mjög óhugn­an­legt,“ segir Eva.

Samtökin færðu í tal að á opnun við­burði er væri aug­lýstur víða þyrfti hrein­lega að ráða örygg­is­verði:

„Það er mikið hatur og það geta orðið ofbeld­is­senur. Þetta var smá sjokk. Við vorum með­vit­aðar um að það er aft­ur­för í rétt­inda­málum hinsegin fólks og margra minni­hluta­hópa en þetta var sjokk. Að heyra þetta frá fyrstu hendi að þetta sé svona stórt vanda­mál á Íslandi,“ segir hún.

„Ástæðan fyrir þess­ari aft­ur­för er að fólk er að fá rými og aukin rétt­indi og við erum að breyta tungu­mál­inu okkar og allt þetta,“ segir Eva og bætir við:

„Fólk fer í bak­lás, mörg sem til­heyra ekki hinsegin ver­öld­inni.“

Eva hvetur áhuga­sama til að sækja hátíð­ina heim og styðja við hinsegin bók­mennta­sen­una:

„Mætið og takið inn, jafn­vel þó þið náið ekki að lesa neinar bækur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi