Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sonur meints fórnarlambs um lækningaleyfi Skúla: „Vægast sagt einkennilegt og afar óþægilegt“

Sonur meints fórnarlambs um lækningaleyfi Skúla: „Vægast sagt einkennilegt og afar óþægilegt“
Beggi Dan og Skúli Tómas.

Sonur meints fórn­ar­lambs Skúla Tómasar Gunn­laugs­sonar læknis á Land­spít­al­anum segir það afar óþægi­legt að lækn­ir­inn hafi fengið end­ur­nýjun á lækn­inga­leyfi sínu. Þá segir hann seina­gang í ákæru­ferl­inu óásætt­an­legt.

Beggi Dan, sonur Dönu Jóhanns­dóttur, sem er einn níu meintra fórn­ar­lamba Skúla Tómasar Gunn­laugs­sonar, segir það „væg­ast sagt ein­kenni­legt og afar óþægi­legt“ að Skúli hafi fengið end­ur­nýjun á starfs­leyfi sínu frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu. Skúli er grun­aður um að hafa valdið ótíma­bærum dauða níu sjúk­linga á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja á árunum 2018 til 2020. Lög­reglu­rann­sókn á sex dauðs­föllum lauk fyrir þó nokkru og verið send í ákæru­ferli.

Mannlíf ræddi við Begga og spurði hann út í nýjust frétt­irnar, að Skúli Tómas hafi fengið end­ur­nýjun á starfs­leyfi sínu en hann starfar nú sem læknir á Land­spít­al­anum.

„Það að Skúli Tómas sé kom­inn með lækn­inga­leyfi á meðan mál hans er í ákæru­með­ferð er væg­ast sagt ein­kenni­legt og afar óþægi­legt,“ segir Beggi í skrif­legu svari til Mannlífs. Og bætir við: „Ég vona inni­lega að stjórn­endur Land­spít­ala muni sýna ábyrgð í þessu máli og gæta þess að Skúli sinni ekki sjúk­lingum á meðan mál hans er á borði sak­sókn­ara. Það kæmi mér hins vegar á óvart ef svo yrði þar sem stjórn­endur spít­al­ans hafa ein­dregið stutt Skúla í þessu máli. Aðrir læknar, meðal ann­ars fyrr­ver­andi for­stjóri Land­spít­al­ans, hafa einnig verið dug­legir við að lýsa yfir stuðn­ingi við Skúla vin sinn, þrátt fyrir að vera ekki með neinar upp­lýs­ingar um málið. Það finnst mér vekja upp ansi margar spurn­ingar sem ein­hver gáf­aðri en ég þarf að svara, því ég skil þetta bara alls ekki.“

Beggi segir að rann­sókn lög­reglu hafi tekið langan tíma enda málið flókið. „Rannsókn máls­ins hjá lög­reglu tók langan tíma og var lengi að fara af stað en það þarf að hafa það hug­fast að þetta er mjög viða­mikið og flókið mál og ég get vel ímyndað mér að það hafi verið áskorun fyrir lög­regl­una að rann­saka það. Hins vegar finnst mér seina­gang­ur­inn í ákæru­ferl­inu hjá sak­sókn­ara óásætt­an­legur.“

Bætir hann við að fjöl­skylda hans hafi ítrekað haft sam­band við Embætti sak­sókn­ara en aldrei fengið almenni­lega svör.

„Málið fór frá lög­reglu til sak­sókn­ara í apríl í fyrra og þar hefur málið sofið vært síðan. Við fjöl­skyldan höfum ítrekað haft sam­band við Embætti sak­sókn­ara en svarið sem við fáum eru að „þetta muni taka ein­hvern tíma til við­bótar“ sem er aug­ljós­lega ekk­ert svar. Mér finnst seina­gang­ur­inn með ólík­indum og á sama tíma finnst mér mjög óeðli­legt og ónær­gætið að gefa okkur aðstand­endum engin svör um fram­gang mála.“

En hvernig líður fjöl­skyld­unni?

„Við erum með þykkan skráp og vön álagi en þetta er virki­lega farið að taka á. Biðin eftir því að fá svör frá sak­sókn­ara er erfið og þögn emb­ætt­is­ins er yfir­þyrm­andi. Okkur er hent út í horn og haldið í full­komnri óvissu.“

Aðspurður hvort hann sé búinn að vera í sam­skiptum við fjöl­skyldur ann­arra meintra fórn­ar­lamba Skúla, seg­ist hann ekki hafa haft mikil sam­skipti.

„Ég hef verið í sam­bandi við eina fjöl­skyldu sem hefur svip­aða sögu að segja og við en ég veit í raun­inni mjög lítið um aðra aðstand­endur því miður.“

Að lokum seg­ist Beggi vilja hvetja sak­sókn­ara til þess að bjóða fjöl­skyld­unni „raun­veru­leg svör“:

„Ég vil hvetja sak­sókn­ara til að upp­lýsa okkur um stöðu mála og bjóða okkur upp á raun­veru­leg svör. „Þetta er í vinnslu“ er ekki nógu gott svar til fjöl­skyldu í sárum sem bíður eftir rétt­læti. Við þurfum gegn­sæi og ábyrgð í þessu ferli. Fjöl­skyldur þeirra sem hafa misst ást­vini sína eiga það skilið að vita hvað er í gangi og hvenær við getum átt von á nið­ur­stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi