Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fimm drengir úr M.H. handteknir í Keflavík: „Vorum fluttir i aðalstöðvar amerísku herlögreglunnar“

Fimm drengir úr M.H. handteknir í Keflavík: „Vorum fluttir i aðalstöðvar amerísku herlögreglunnar“
Her­lög­reglu­maður og fána­glæpon Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fimm mennt­skæl­ingar gerðu allt vit­laust á Nató-stöð­inni í Keflavík þegar þeir tóku Nató-fána niður og settu rauðan sós­í­alista­fána í stað­inn. Þetta gerðu drengirnir að morgni full­veld­is­dags­ins 1. des­em­ber árið 1974.

Í gegnum ára­tug­ina hafa síður en svo allir Íslend­ingar verið sáttir við veru Íslands í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og þá sér­stak­lega með bæki­stöð banda­ríska hers­ins í Keflavík. Herinn lét sig hverfa árið 2011, þrátt fyrir að yfir­völd á Íslandi nán­ast grát­báðu Banda­ríkja­menn að fara ekki en eftir að Vinstri grænir komust í rík­is­stjórn fyrir sjö árum hefur við­vera hers­ins auk­ist til muna, þó ekki sé komin upp eig­in­leg bæki­stöð hers­ins aftur.

Árið 1974 fóru fimm hug­rakkir mennt­skæl­ingar í svað­il­för á her­stöð­ina og mót­mæltu veru hers­ins á land­inu með því að draga fána Nató af húni og hífa upp rauðan fána í stað­inn. Her­lög­reglan á svæð­inu var ekki lengi að bregð­ast við og mætti á svæðið og hand­tók strák­ana fimm. Voru þeir svo sóttir af íslenskum lög­reglu­þjónum sem drengirnir sögðu hafa sýnt þeim skiln­ing í mál­inu enda sumir lög­reglu­mann­nanna sam­mála þeim um veru hers­ins á land­inu.

Hér má lesa um mót­mæli mennt­skæl­ing­anna en Þjóð­vilj­inn fjall­aði um málið á sínum tíma:

Drógu niður Nato-fán­ann

– og létu rauðan fána blakta við stöng í her­stöð­inni í Keflavík — her­lög­reglan hand­tók fimm íslenska mennt­skœl­inga

Uppi var fótur og fit í Nató­stöð­inni við Keflavík að morgni full­veld­is­dags­ins, sunnu­dag­inn 1. des. Her­lög­reglan kom þá æðandi úr öllum áttum að hand­taka fimm drengi úr Mennta­skól­anum við Hamra­hlið. Drengirnir höfðu unnið það til sakar að draga niður Nató-fán­ann sem jafnan blaktir þarna á stöng, og hifa upp rauðan fána i stað­inn.

Atburður þessi varð um klukkan 10.30 árdegis, og þegar rauði fán­inn blakti svo fag­ur­lega yfir her­stöð­inni, kom lög­reglan þeysandi. Einn fimm­menn­ing­anna sagði Þjóð­vilj­anum svo frá, að veg­far­endur hefðu horft á atburð­inn, en ekki hreyft legg né lið, nema leigu­bíl­stjóri einn, sem þó þorði ekki út úr bíl sínum, heldur þeytti horn bif­reið­ar­innar sem mest hann mátti. Fór bíl­stjór­inn ekki út úr bílnum fyrr en lög­reglan var komin. Einn fimm­menn­ing­anna tók margar myndir af atburð­inum, og bað lög­reglan hann þegar hún kom að hætta þeim leik.

„Við vorum fluttir i aðal­stöðvar amer­ísku her­lög­regl­unnar, en þangað kom svo islenska lög­reglan á svörtu Mariu og flutti okkur i sinar stöðvar. Þar vorum við um hríð og ræddum við lög­gæslu­menn­ina. Þeir virt­ust mjög skiln­ings­ríkir. Sumir þeirra kváð­ust meira að segja vilja her­inn burt, og sögðu að vinstri stjórnin hefði staðið sig illa í her­mál­inu og að núna þætt­ust stjórn­völd hafa lokað kana­sjón­varp­inu, en þó sæist það betur nú en nokkru sinni fyrr. Þeir leit­uðu ræki­lega í bílnum okkar, og þegar þeir höfðu gengið úr skugga um að þar væru ekki sprengjur eða vopn, var okkur sleppt. Flöggin góðu, þ.e. rauöa fán­ann og merki her­stöðvaand­stæð­inga fengum við þó ekki að sinni.

Við afréðum að draga niður Nató-flaggið og setja rauðan fána í stað­inn til að vekja athygli á her­mál­inu og umræður um það. Það er ekki van­þörf á þegar stjórn­völd hafa efnt til milj­óna­æv­in­týris þarna. Stjórn­völd hafa gert her­námið trygg­ara og von­ina um brott­för hers­ins i náinni framtið að engu.”.

Það var hreyf­ing her­stöðvaand­stæð­inga i M.H. sem að aðgerð þess­ari stóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni