Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskir námsmenn ruddust inn í sendiráð Íslands í Svíþjóð: „Hannes Hafstein neitaði að ganga út“

Íslenskir námsmenn ruddust inn í sendiráð Íslands í Svíþjóð: „Hannes Hafstein neitaði að ganga út“

Árið 1970 rudd­ust 11 vaskir íslenskir náms­menn inn í sendi­ráðs Íslands í Stokk­hólmi og tóku yfir bygg­ing­una. Var mein­ingin að hefja sós­íalístíska bylt­ingu.

Sjötti ára­tug­ur­inn hefur stundum verið kall­aður bylt­inga­ára­tug­ur­inn en mikil ólga var í sam­fé­lögum víðs vegar um heim. Má í því sam­hengi nefna Kúbu­deil­una, kalda stríðið, upp­gangur komm­ún­ista, morðin á John F. og Robert Kennedy, Malcolm X, Martin Luther King Jr. svo eitt­hvað sé nefnt.

Stúd­entar voru áber­andi í hverskyns mót­mæla­göngum og var oft ansi mik­ill hiti í þeim, eins og gengur og ger­ist þegar fólk er orðið þreytt á óbreyttu ástandi í sam­fé­lögum þar sem hinir sem minna mega sín, mega eiga sig.

Enn eimdi af bylt­ing­ar­and­anum í upp­hafi næsta ára­tugar en þann 20. apríl árið 1970 rudd­ust ell­efu stúd­entar inn í íslenska sendi­ráðið í Stokk­hólmi og reka starfs­fólk þess út. Í kjöl­farið drógu þeir rauða sós­í­alista­fána að húni og hengdu aðra slíka í glugg­ana. Yfir­lýstur til­gangur yfir­tök­unnar var meðal ann­ars sá að mót­mæla slæmum kjörum íslenskra náms­manna á Íslandi sem og erlendis. Þá var þjóð­fé­lagið á Íslandi einnig for­dæmt og það sagt vera stjórnað af eigna­stétt­inni. Þá vildu þeir að Ísland gengi úr Atl­ant­hafs­banda­lag­inu og hætti að styðja auð­valds­stefnu Banda­ríkj­anna.

Stúd­ent­arnir bylt­inga­sinn­uðu.

Aðeins tveimur klukku­stundum síðar réð­ust 20 lög­reglu­þjónar inn í sendi­ráðið og báru stúd­ent­ana út en þeir streitt­ust ekki á móti. Voru eft­ir­mál­arnir af mál­inu engir.

Eins og flestir átta sig á hefur lítið sem ekk­ert breyst frá þess­ari stuttu bylt­ingu í Stokk­hólmi, enn er Íslandi stjórnað af eigna­stétt­inni og stuðn­ingur við Nató hefur sjaldan eða aldrei verið meiri en einmitt núna.

Fjöl­mennt lög­reglu­lið fylgdi stúd­ent­unum út úr sendi­ráð­inu.

Hér má lesa greina­góða frétt Tímans um málið sem skrifað var dag­inn eftir yfir­tök­una:

Stúd­ent­arnir í Stokk­hólmi: Taka sendi­ráðs­ins upp­haf sósi­alistískrar bylt­ingar!

Ellefu íslenzkir náms­menn í Gauta­borg og Uppsölum héldu inn í íslenzka sendi­ráðið í Stokk­hólmi í morgun, ráku starfs­liðið út og héldu bygg­ing­unni í tvær klukku­stundir, en þá réð­ist lög­reglan til inn­göngu í húsið og flutti stúd­ent­ana á lög­reglu­stöð í Stokk­hólmi. Náms­menn­irnir sendu frá sér grein­ar­gerð, þar sem segir að til­gang­ur­inn með töku sendi­ráðs­ins sé „að vekja athygli á því ófremd­ar­á­standi, sem ríki á sviði íslenzkra mennta­mála og þá um leið aðstöðu náms­manna heima og erlendis“, en jafn­framt að hvetja til „sós­í­alistískrar bylt­ingar á Íslandi.

Stúd­ent­arnir 11 gengu inn í sendi­ráðið kl. 11 skv. sœnskum tíma eða ki. 10 að ísl. tíma. Engir þess­ara stúd­enta stundar nám í Stokk­hólmi, átta þeirra komu frá Gauta­borg og þrír frá Uppsölum. Sögðust þeir vera komnir til að leggja sendi­ráðið undir sig til að und­ir­strika kröfur sínar um betri nám­s­kjör, betri náms­lán og námsi­aun. Báðu þeir starfs­fólk  sendi­ráðs­ins að ganga út. Haraldur Kröyer, ambassa­dor, var staddur í Hels­ing­fors en þar er Emil Jónsson utan­rík­is­ráð­herra einnig á utan­rík­is­ráð­herra­fundi Norð­ur­landa. Hannes Hafstein, sendi­ráðs­rit­ari, varð fyrir svörum og neit­aði hann að ganga út og gerðu stúd­ent­arnir sér lítið fyrir og báru hann út úr bygg­ing­unni. Áslaug Skúla­dóttir vinnur einnig í sendi­ráð­inu og varð hún við beiðni stúd­ent­anna og gekk út.

Vel skipu­lagt

Margt bendir til að inn­rás stúd­ent­anna hafi verið vel skipu­lögð með nokkrum fyr­ir­vara. Engin vand­ræði voru fyrir stúd­ent­ana að kom­ast inn í bygg­ing­una. Þegar þeir voru búnir að bera sendi­ráðs rit­ar­ann út tóku þeir úti­dyrnar af hjörum og skemmdu lás­inn svo að hvorki var hægt að kom­ast út eða inn í bygg­ing­una. Höfðu stúd­ent­arnir mat­væli með­ferðis og sögð­ust þeir ætla að dvelja í sendi­ráð­inu að minnsta kosti í dag. Gerðar voru til­raunir til að ná síma­sam­bandi við stúd­ent­ana en eng­inn svar­aði í sím­ann. Aftur á móti hringdu þeir til Íslands í morgun og töl­uðu við Leif Jóelsson á rícrifsbafiu Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar og lásu upp grein­ar­gerð sem nánar er sagt frá hér á eftir. Hálfri klukku­stund eftir að stúd­ent­arnir hertóku sendi­ráðið birt­ust nokkrir þeirra á svölum bygg­ing­ar­innar og drógu þeir að húni stóran rauðan fána. Einnig blöktu rauðir fánar í gluggum húss­ins. Marg­menni safn­að­ist saman við sendi­ráðs­bygg­ing­una við Komm­endörs­götu og brátt kom einnig 50 manna lög­reglu­lið á vett­vang. Sendi­ráðs­fólkið hafði sam­band við sænska utan­rík­is­ráðu­neytið og bað þess að stúd­ent­arnir yrðu fjar­lægðir úr bygg­ing­unni. Áður en sænska lög­reglan réð­ist til inn­göngu í húsið var haft sam­band við Emil Jónsson og íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið, og var gefið sam­þykki til að sænsk lög­regla næði í íslenzka rík­is­borg­ara inn í sendi­ráðið, en þó án átaka.

Stóð í tvo tíma

Tveim klukku­stundum eftir að inn­rásin var gerð fóru sænskir lög­reglu­menn, 20 tals­ins inn í sendi­ráðið og náðu í stúd­ent­ana. Komu lög­reglu­menn­irnir út með tvo og tvo af stúd­ent­unum í einu og veittu þeir enga mót­spyrnu. Var þeim síðan ekið á lög­reglu­stöð og yfir­heyrðir einn og einn í seinn. Stóðu yfirheyrzlurnar yfir í um tvo tíma og var stúd­ent­unum síðan sleppt lausum. Engin skemmd­ar­verk voru unnin í sendi­ráð­inu og ekki var hreyft við skjölum sem þar voru. Eftir að búið var að fjar­lægja stúd­ent­ana var settur lög­reglu­vörður við sendi­ráðið og starfs­fólkið hóf störf sín á ný. Stúd­ent­arnir neita að hafa skipu­lagt aðgerð­irnar fyr­ir­fram og eins að neinn ákveð­inn félags­skapur standi bak við þær. Þeir höfðu með­ferðis seg­ul­bands­tæki og tóku upp á það öll orða­skipti við starfs­fólk sendi­ráðs­ins og eins kvik­mynd­uðu þeir töku bygg­ing­ar­innar. Meðan stúd­ent­arnir dvöldu í sendi­ráð­inu bár­ust þangað tvö skeyti annað frá Æsku­lýðs­fylk­ing­unni, þar sem þeim var óskað til ham­ingju og bar­áttu­kveðjur sendar. Hitt skeytið var frá Félagi rót­tækra stúd­enta í Mennta­skóla Reykja­víkur og voru í því skeyti stuðn­ings­kveðjur.

Mikið frétta­efni

Fjöl­miðl­arnir í Svíþjóð gerðu sér mik­inn mat úr inn­rásinni í sendi­ráðið og birta síð­deg­is­blöðin myndir og frá­sagnir á for­síðum og mikið var sagt frá atburð­inum í útvarpi og sjón­varpi. Eftir að stúd­ent­unum var sleppt úr haldi, þyrpt­ust blaða­menn um þá og höfðu við­töl við stúd­ent­ana. Þegar stúd­ent­arnir ræddu við Hannes Hafstein í morgun sögðu þeir að svip­aðar aðgerðir verði gerðar í sendi­ráðunum í Kaup­manna­höfn og Osló. Höfðu þeir á orði að aðgerð­irnar í Kaup­manna­höfn verði fram­kvæmdar n. k. laug­ar­dag. Stúd­enta­mir munu dvelja í Stokk­hólmi fram eftir viku­unni en vilja ekk­ert um það segja hvort þeir ætli að efna til áfram­hald­andi aðgerða.

Að vekja athygli á ófremd­ar­á­standi

Í grein­ar­gerð sinni segja náms­menn­irnir, að til­gang­ur­inn með töku sendi­ráðs­ins sé sá „að vekja athygli á því ófremd­ar­á­standi, sem ríkir á sviði íslenzkra mennta­mála og þá um leið aðstöðu náms­manna heima og erlendis“. Þeir bæta því við, að þeim sé ljóst, að „bar­áttan fyrir bættri aðstöðu skóla­fólks er ekki hægt að ein­angra frá bar­átt­unni fyrir breyttu þjóð­fé­lags­kerfi“. Í fram­haldi af því gagn­rýna þeir harð­lega íslenskt þjóð­fé­lag. Segja þeir víðs fjarri, að Íslend­ingar búi við lýð­ræði: „Stjórn lands­ins bæði fyrr og nú er í höndum eigna­stétt­ar­innar, sem nær­ist á striti lág­launa­stétt­anna og byggir for­rétt­inda­til­veru sína á ömur­legu hlut­skipti þeirra. Til þess að eigna­stéttin geti haldið velli og aukið gróða sinn á kostnað almenn­ings verður að við­halda úreltum hug­myndum um eign­ar­rétt­inn og efna­hags­lega mis­munun, hindra að hinar vinn­andi stéttir geri sér ljós rétt­indi sín og aðferðir til að ná þeim.“ Segja náms­menn­irnir, að „skóla­kerfið og fjöl­miðl­arnir eru áhrifa mestu vopn valda­stétt­ar­innar til þessa.“ Fara þeir síðan nokkrum og hörðum orðum um þessa tvo þætti, og segja m. a. um skóla­kerfið, að það sé „deg­inum ljós­ara, að stefnan er sú að menntun eigi að þjóna gróða­fíkn gírugrar brask­ara­stéttar. Áhrif eign­ar­stétt­ar­innar á Íslandi kemur og skýrt fram í utan­rík­is­stefn­unni, sem fylgt hefur dyggi­lega hverri bend­ingu frá Banda­ríkj­unum. Áhugamál íslenzku og banda­rísku eigna­stétt­ar­innar hald­ast að sjálf­sögðu í hendur á vissum sviðum. Þess vegna er íslenzku eigna­stétt­inni hagur í að styðja auð­valds­stefnu Banda­ríkj­anna og heims­valda­stefnu þá sem af henni þró­ast“.

„Sós­í­alisk bylt­ing“

Í lok grein­ar­gerð­ar­innar segir, að þeir telji að „eina lausnin á efna­hags­legu og félags­legu ástandi á Íslandi er sós­í­alistísk bylt­ing. Aðgerð okkar er þáttur okkar í að knýja hana fram og gefa íslenzkri alþýðu for­dæmi í bar­átt­unni.

Kröfur okkar eru:

Að Ísland gangi úr NATO umsvifa­laust og banda­rísku her­setu­liði verði vísað úr landi án frek­ari vafn­inga.
Að ásælni erlendra auð­hringa verði stöðvuð þegar í stað, starf­semi þeirra bönnuð og eignir þeirra þjóð­nýttar. Að verka­lýð­ur­inn taki við stjórn allra fram­leiðslu­tækja og bindi þannig endi á langa og ömur­lega sögu íslenskrar eigna­stéttar.“

Hægt er að lesa meira um málið á heima­síðu SINE.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst á vef Mannlífs 20. sept­em­ber 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni