Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Náfrændi Ölmu Möller er lögmaður Skúla Tómasar: „Landlæknir ákvað að víkja sæti samstundis“

Náfrændi Ölmu Möller er lögmaður Skúla Tómasar: „Landlæknir ákvað að víkja sæti samstundis“
Alma Möller Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Stað­geng­ill Ölmu D. Möller er sá sem gaf Skúla Tómasi Gunn­laugs­syni end­ur­nýjað starfs­leyfi á dög­unum því Alma steig til hliðar í mál­inu þegar lækn­ir­inn réði náfrænda hennar sem lög­mann.

Dr. Alma D. Möller vék úr sæti land­læknis og fól heil­brigð­is­ráð­herra að setja annan í hennar stað, í tengslum við mál Skúla Tómasar Gunn­laugs­sonar læknis, gagn­vart emb­ætt­inu. Það gerði hún þegar bróð­ur­sonur hennar, Almar Þór Möller var ráð­inn af Skúla sem lög­maður en Skúli hefur nú rétt­ar­stöðu grun­aðs manns í and­láti sex sjúk­linga á HSS, þar sem hann vann sem yfir­læknir á árunum 2018 til 2020. Því var það ekki Alma Möller sem veitti Skúla end­ur­nýjun á lækn­inga­leyfi, heldur stað­geng­ill hennar. Þetta kemur fram í skrif­legu svari emb­ættis lann­d­læknis.

Mannlíf sendi nokkrar spurn­ingar á emb­ætti land­læknis eftir að í ljós kom að Skúli Tómas hafi enn og aftur fengið end­ur­nýjun á lækn­inga­leyfi sínu en hann starfar nú á Land­spít­al­anum, þrátt fyrir að vera grun­aður um að vera valdur að dauða sex sjúk­linga sinna á árunum 2018-2020.

„Því er fyrst til að svara að Alma D. Möller svarar ekki fyrir þetta til­tekna mál. Alma D. Möller land­læknir ákvað að víkja sæti sam­stundis og lög­fræð­ingur henni tengdur fjöl­skyldu­böndum hóf að sinna málum lækn­is­ins gagn­vart emb­ætti land­læknis. Alma sendi þá heil­brigð­is­ráð­herra beiðni um að annar aðili yrði settur land­læknir í umræddu máli líkt og stjórn­sýslu­lög nr. 37/1993 gera ráð fyrir. Sá læknir hefur farið með málið síðan.“ Þetta segir í skrif­legu svari emb­ætt­is­ins til Mannlífs.

Hér eru eft­ir­far­andi spurn­ingar Mannlífs og svör emb­ætt­is­ins við þeim:

Hver eru rökin fyrir því að þú veittir Skúla Tómasi Gunn­laugs­syni starfs­leyfi, en hann er eins og þú veist, með stöðu grun­aðs vegna and­láts sex sjúk­linga sem hann sinnti hjá HSS.

Embætti land­læknis: „Embætti land­læknis getur ekki rætt mál­efni ein­stakra heil­brigð­is­starfs­manna.“

Nú skrif­aðir þú afar svarta skýrslu um með­höndlun Skúla Tómasar á Dönu Jóhanns­dóttur, þar sem segir meðal ann­ars: „Embættið telur að ekki hafi aðeins verið um að ræða mis­brest á almennri fag­mennsku við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu til DJ, heldur hafi í ákveðnum til­vikum einnig verið um að ræða alvar­lega van­rækslu og mis­tök STG læknis, sem bar meg­in­á­byrgð á lækn­is­fræði­legri með­ferð DJ.“. Hvers vegna hef­urðu veitt Skúla Tómasi ítrekað starfs­leyfi, þrátt fyrir álit þitt á störfum hans, sem varð til þess að Dana lét lífið?

Svarið: „Embætti land­læknis getur ekki tjáð sig um ein­stök mál. Almennt gildir að fjallað er um end­ur­veit­ingu starfs­leyfis í 17. gr. laga um land­lækni og lýð­heilsu nr. 41/2007 en þar segir: „Land­læknir getur veitt heil­brigð­is­starfs­manni, sem sviptur hefur verið starfs­leyfi eða hefur afsalað sér því, starfs­leyfi að nýju enda hafi við­kom­andi sýnt fram á að hann upp­fylli skil­yrði laga fyrir end­ur­veit­ingu starfs­leyfis og að þær ástæður sem leiddu til svipt­ingar eða afsals eigi ekki lengur við. Land­læknir getur ákveðið að end­ur­veitt starfs­leyfi skuli vera tíma­bundið eða tak­markað, sbr. 15. gr.“ Þannig getur við­kom­andi heil­brigð­is­starfs­maður fengið leyfi t.d. ef bata vegna sjúk­dóms sem leiddi til svipt­ingar er náð eða þegar fag­legri end­ur­hæf­ingu, -menntun og -þjálfun er lokið ef ástæða svipt­ingar var fag­leg van­hæfni. Við end­ur­veit­ingu leyfis er leyfi ætíð tak­markað í fyrstu, t.d. við ákveðna stofnun og starfs­mað­ur­inn sætir eft­ir­liti fyrstu mán­uð­ina eða árin eftir því sem til­efni er til.“

Hefurðu orðið fyrir pressu frá læknum um að veita Skúla starfs­leyfi?

„Nei. Í öllum málum starfar land­læknir eftir lögum og reglum og engu öðru. Að auki er vísað í að land­læknir ákvað að víkja sæti í umræddu máli.“

Hver er skoðun þín á þeirri stað­reynd, að Skúli hafi í neyð­ar­til­fellum, sinnt sjúk­lingum á Land­spít­al­anum af og til, í ljósi þess að mað­ur­inn er grun­aður um að vera valdur að dauða sex sjúk­linga?

Svarið: „Eins og áður hefur komið fram ákvað land­læknir að víkja sæti í umræddu máli. Heil­brigð­is­ráðu­neyti skip­aði settan land­lækni í mál­inu. Þegar fyr­ir­spurn þín barst var hún áfram­send á settan land­lækni.“

Hversu oft hefur þú neitað lækni um starfs­leyfi síð­ustu 3 árin? Hvað þarf til?

Svarið: „Sjá svar ofan. Til að end­ur­veit­ing starfs­leyfis komi til greina þarf marg­vís­leg skil­yrði, t.d. vott­orð um með­ferð sjúk­dóms og full­nægj­andi bata, vott­orð um að lokið sé full­nægj­andi end­ur­menntun og -þjálfun og fleira eftir atvikum. Umsækj­endum um end­ur­veit­ingu starfs­leyfis er kunn­ugt um þetta og yfir­leitt er ekki sótt um end­ur­veit­ingu fyrr en skil­yrði eru upp­fyllt. Á sl. þremur árum eru innan við fimm dæmi þess að lækni hafi verið synjað um end­ur­veit­ingu starfs­leyfis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi