Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arnór er meistari heilsunnar – Veit allt um kuldaböð, öndun, kakóathafnir og ómheilun

Arnór er meistari heilsunnar – Veit allt um kuldaböð, öndun, kakóathafnir og ómheilun
Arnór Sveins­son. Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur Gunnar og Arnórs í Alkasti Þvotta­húss­ins er engin annar en meist­ar­inn Arn­ór Sveins­son heilsu­kenn­ari. Arnór er búinn að nema hin og þessi fræði tengd kulda, öndun, kakóat­höfnum og hljóð eða óm heilun. 

Í við­tal­inu var farið um víðan völl en þar sem Arnór hefur komið í þátt­inn áður þar sem hann fór yfir sögu sína var stefnan frekar tekin á tækni­legu hlið þess­ara iðk­ana sem Arnór kennir. Það var auð­vitað byrjað á kuld­anum en kulda­böð hafa notið gríð­ar­legra vin­sælda hér á landi síð­ustu ár og virð­ist áhugi fólks á kulda sem heilsu­bót bara fara vax­andi. Arnór fór yfir í við­tal­inu á skil­greini­legan hátt hvernig heila­starf­semin milli fram­heil­ans, til­finn­ingar heil­ans og frum­heil­ans eða eðlu heil­ans eins og hann kallar það á sér stað. Það að lík­am­inn verð­launi þann sem kemst í kuld­ann og nær stjórn á öndun sinni með boð­efnum sem veita okkur gleði og vellíðan. Bólguminnkun er einnig stór þáttur í þess­ari jöfnu vill Arnór meina og talar töl­fræðin algjör­lega sínu máli þar, þar sem gríð­ar­legur fjöldi fólks seg­ist hafa lækn­ast af hinum og þessum stoð­kerf­is­verkjum með hjálp kulda og réttrar önd­unar.

Arnór Sveins­son.

Talið barst að öndun og Arnór lítur þessa kennslu sína hvað snertir öndun vera algjöran grunn að góðri heilsu. Segir hann að með því að þjálfa önd­un­ina og auka neföndun þá nái lungun að koma mun meira súr­efni til allra fruma sem er í raun lyk­il­at­riði að heil­brigðri starf­semi lík­am­ans. Sé önd­unin útfærð á réttan hátt, veitir það stuðn­ing við tauga­kerfið, róar hug­ann og kemur lík­am­anum í ástand þar sem hann fer að lækna sig sjálfur eins og honum er ætlað, segir Arnór. 

Í önd­un­ar­tímum hjá sér verður Arnór oft var við að það losnar um spennu sem hann vill meina að geti verið afleð­ingar hinna og þess­ara áfalla í þessu lífi sem og lífi margra kyn­slóða aftur. Hann horfir upp á karla og konur gráta og hlæja nán­ast óstjórn­lega í kjöl­far þess­ara æfinga sem orsakar að miklu fargi er létt af við­kom­andi. Sama gildir með teygjur og tal­aði Arnór um mjaðm­irnar sér­stak­lega en þar teng­ist þessi efri og neðri lík­ami. Psoas-vöðvarnir liggja þarna og tengja saman efri og neðri lík­ama og séu þeir stirðir og stífir eins og svo oft er hjá kyrr­setu­fólki sér­stak­lega, orsaki það mjó­baks­verkir sem erfitt er að eiga við nema að rót vand­ans sé skoðuð sem í raun liggur ekki í mjó­baki heldur í mjöðmunum. Gunnar  minnti hann á síð­asta tíma sem hann fór til Arnórs í byrjun des­em­ber 2022 en þar var áherslan lögð á mjaðma­opnun í eina tvo klukku­tíma. Eftir tím­ann veikt­ist Gunnar strax um kvöldið og lá með hita í heila viku en það merki­lega er að síðan þá hefur Gunnar ekki einu sinni fengið flensu eða kvef. 

Hvað varðar kakóið þá segir Arnór að það opni æða­kerfið og bók­staf­lega sem og í and­legri mein­ingu opnar hjartað ásamt að kakóið er gríð­ar­lega ríkt af andox­un­ar­efnum sem minnkar myndun sind­ur­efna í húð­inni en það eru efni sem hraða öldrun húð­ar­innar með nið­ur­broti á kolla­geni og skemmdum á húð­frumum. 

Þegar að Arnór hefur komið þeim sem sitja nám­skeiðin eða tím­ana í ró og slökun bætir hann hljóð­heilun inn sem kemur bæði huga og lík­ama í algjöra slökun. Hljóð­tíðnin sem hann nær að fram­kalla með tíbeskum skálum verða eitt með lík­ama og huga, end­urstillir alla tíðni lík­am­ans. Og eins hann vill meina þá er lík­am­inn í raun ekki í föstu formi nema í ein­hverju brot úr pró­sentu og því má segja að efn­is­lík­am­inn og hugur sé í raun bara tíðni og orka.

Arnór Sveins­son.

Talið barst að hug­víkk­andi efnum eins og svo oft áður en Arnór segir að þau séu fínt verk­færi í stórum sem og í smáum skömmtum en að það sé ríkt í okkur að stökkva á þá lest með óraun­hæfar vænt­ingar og kröfur. Segir hann að grunn­ur­inn sem einmitt snýr að öndun, hreyf­ingu og hreinu matar­æði sé algjör nauð­syn ef maður ætli sér að fara veg hug­víkk­andi efna. Hann segir þetta heyra saman, hug­víkk­andi efni eins og Psilocybin svepp­ur­inn og ábyrgð ein­stak­lings­ins hvað varðar lífstíls­breyt­ingar. 

Allt þetta og ótal margt meira var rætt um í þessu við­tali og vilja Alkasts­menn hvetja alla sem hafa áhuga á heilsu eða þeim sem eru að glíma við kviða, þung­lyndi eða aðrar geð­rask­anir að hlusta vel og taka það sem kemur þarna fram virki­lega til sín. 

Þau sem vilja kynna sér það sem Arnór hefur upp á að bjóða geta séð það á https://anda.is

Þetta magn­aða við­tal við Arnór Sveins­son má heyra og sjá hér á spil­ar­anum fyrir neðan en einnig má heyra öll við­töl Alkast­ins á öllum streym­isveitum eins og Spotify og auð­velt er að merkja við follow eða subscribe og fær maður þá til­kynn­ingar í hvert skipti sem nýtt við­tal kemur út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi