Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þjónustumiðstöðin við Seljalandsfoss reyndi að svína á ferðamönnum: „Ekkert nema svindl“

Þjónustumiðstöðin við Seljalandsfoss reyndi að svína á ferðamönnum: „Ekkert nema svindl“
Steinar Þór Sveins­son leið­sögu­maður.

Steinar Þór Sveins­son hefur verið leið­sögu­maður í langan tíma; í meira en tvo ára­tugi.

Hann er á þeirri skoðun að ferða­þjón­ustan á Íslandi sé eigi á réttri leið; að gest­risni Íslend­inga í garð útlendra ferða­manna hafi hrakað með vax­andi gjald­töku.

Honum hrein­lega ofbauð er hann horfði upp á það á þjón­ustu­mið­stöð­inni við Selja­lands­foss að útlendum ferða­mönnum er pönt­uðu sér bjór var seldur lítt áfengur pilsner.

Steinar fjallar um málið í Facebook-hópnum Bakland ferða­þjón­ust­unnar.

„Ég hef verið við­rið­inn ferða­þjón­ust­una sem leið­sögu­maður núna í rúm 20 ár. Mér finnst ákaf­lega margt vera á mjög svo rangri leið verð ég að segja, með þeim fyr­ir­vara að eflaust á það við að maður sé að verða gam­all nöldr­ari.“

Bætir því við að það sé „ömur­legt að frelsi ferða­lags­ins sé núna nán­ast horfið víða. Það er og hefur verið besta mark­aðs­setn­ing Íslands. Það er óþarfi að krefja ríkið um meiri pen­ing í mark­aðs­setn­ingu þegar við fólk­inu sem þó kemur taka gjald­hlið út um allt land, jafn­vel án allrar þjón­ustu. Gest­risnin er farin, af hverju þá að bjóða fólk vel­komið dýrum dómi?“

Segir einnig:

„Eitt það nýjasta er að ráð­herra setti á gjald­töku á mal­ar­stæðum við Jök­ulsár­lón en ekk­ert hefur breyst, kló­sett­mál eru í lama­sessi. Einnig standa nú hlið­verðir frá Umhverf­is­stofnun og stöðva alla bíla rétt utan við Land­manna­laugar og heimta bíla­stæða­gjöld fyrir mal­arplanið. Svo kemur fólk inn á svæðið og þá skal borga Ferða­fé­lag­inu það sem því svo sann­ar­lega ber fyrir að halda úti ágætri sal­ern­is­að­stöðu. Auðvitað ruglar svona marg­föld gjald­taka inn á sama svæðið fólk í rím­inu og er lítt til þess fallin að gleðja það.“

Hann seg­ist ekki geta ímyndað sér „að það sé góð útgerð hjá Umhverf­is­stofnun að halda úti allt að þremur starfs­mönnum til að rukka smá­bíla um 450 krónur.

Ég á erfitt með að skilja tekju- og kostn­að­ar­mód­elið í því. Ég skil heldur ekki hvernig það gekk í gegn skipu­lags- eða leyfa­lega. Og allt var þetta gert nán­ast án fyr­ir­vara eða kynn­ingar. Dóna­skapur stjórn­valda gagn­vart ferða­þjón­ust­unni er slíkur. Gjald­skyldu­skilti eru komin út um allt og ferða­menn klóra sér í hausnum og þora eflaust oft ekki öðru en að borga.

Oft er verið að fiska í grugg­ugu vatni. Skilti ein­fald­lega sett upp og treyst á guð og lukk­una, og Parka. Við Glugga­foss er skilti núna innan við girð­ingu land­eig­enda. Við mal­ar­stæði sem hefur verið þar í ára­tugi og land­eig­endur aldrei haft kostnað af en sveit­ar­fé­lagið þjón­u­stað. Borð og bekkur við foss­inn er merkt Katla Geopark og Evr­ópu­sam­band­inu! Þar tókst okkur að sníkja út styrk fyrir ómerki­legu við­ar­borði en Evr­ópu­bú­arnir sem heim­sækja okkur skulu borga fyrir að nota það. Við Kirkju­fell er rukkað á bíla­stæð­inu.

Hvergi innan Grund­ar­fjarð­ar­bæjar sjálfs er rukkað. Útlend­ing­arnir, sem þó borga hæstu fast­eigna­gjöldin í gegnum hót­elgist­ingar sínar, skulu hund­eltir og borga alls staðar sem þeir vilja stoppa í nokkrar mín­útur. Samt þykj­umst við vilja bjóða þá vel­komna og að ríkið leggi millj­arða í aug­lýs­inga­her­ferðir þess vegna.“

Steinar segir að „stein­inn tók svo út með ókurt­eis­ina og við­horfið gagn­vart ferða­mönnum fyrir nokkrum dögum við Selja­lands­foss. Þá keyptu ferða­menn­irnir mínir sér „bjór“ í veit­inga­að­stöð­unni þar og var þeim seldur pilsner. Ég benti þeim á það, marg­spurði hvort þau hefðu örugg­lega beðið um bjór, og fór með bjór­ana aftur til stúlkn­ana sem seldu þeim mein­tan „bjór“ og krafð­ist skýr­inga.“

Steinar segir að „þetta þótti nú auð­vitað tals­vert röfl í mér, þótti ekki til­töku­mál og lítið til að kvarta yfir, og mér var sagt að pilsner væri nú það eina sem þau höfðu sem líkt­ist bjór. Ég sagði að þau gætu nú ekki samt sem áður selt pilsner sem bjór ef beðið væri um bjór og að það væri ekk­ert nema svindl. Að lokum var end­ur­greitt.“

Segir að end­ingu:

Rík­is­stjórn Íslands 2024.

„Svona er þetta allt orðið. Ég held að á meðan svo er og á meðan stjórn­völd og ferða­þjón­ustu­að­ilar margir virða gesti okkar lít­ils sem einskis þá sé óþarfi að setja marga millj­arða af skatt­pen­ingum í að reyna að lokka fólk hingað til lands þegar þessar mót­tökur bíða þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi