Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tíu flottustu tré Reykjavíkur árið 2024

Tíu flottustu tré Reykjavíkur árið 2024

Á hverju ári velur Skóg­rækt­ar­fé­lag Reykja­víkur hverf­is­tré Reykja­víkur í öllum hverfum borg­ar­innar og er valið erfitt enda mörg mjög fal­leg tré í borg­inni.

HVERFISTRÉ ÁRBÆJAR er trjá­lundur í Árbæj­ar­laug. Lund­ur­inn fegrar umhverfið, rammar inn svæðið og eykur ánægju sund­gesta, sem eru ófáir. Þá lét fólk þess getið hve hlý­legt er að hafa sígrænan gróður, einkum að vetr­ar­lagi. Lóðin við Árbæj­ar­laug var hönnuð sam­hliða hönnun og bygg­ingu laug­ar­innar sem var opnuð árið 1994. Suð­ur­hluti lóð­ar­innar nær að hluta inn í gam­alt sum­ar­bú­staða­land sem þá þegar var skógi vaxið. Það er hái og þétti trjá­lund­ur­inn sem er sunnan við laug­ina.
HVERFISTRÉ BREIÐHOLTS er ilm­reynir (Sorbus aucuparia) við Vest­ur­berg 29. Reyn­ir­inn var gróð­ur­settur árið 1976, skömmu eftir flutt var inn í nýbyggt íbúð­ar­húsið. Síðan þá hefur reyn­ir­inn vaxið og dafnað. Tréð er vel stað­sett í garði við hlið göngu­stígs.

HVERFISTRÉ GRAFARHOLTS-ÚLFARSÁRDALS er garða­hlynur (Acer pseu­do­plat­anus) við Ólafs­geisla 17. Hlyn­ur­inn er afar fal­legur og þrífst vel. Hann er á fal­legum stað, sést langt að og eins og horfir yfir skóg­lendið og Graf­ar­holts­völl fyrir neðan. Tréð var gróð­ur­sett árið 2004, þegar það hafði náð um 1,5 metra hæð. Það hefur gott rými til að vaxa og hefur fengið ágæta umhirðu. Hlyn­ur­inn hefur verið snyrtur reglu­lega til að stýra vexti og þolir það greini­lega ágæt­lega. Það hve vel þessum hlyn líður í hlíðum Graf­ar­holts­ins, gefur góð fyr­ir­heit fyrir vöxt trjá­gróð­urs í þessu unga hverfi á næstu árum og ára­tugum.

HVERFISTRÉ GRAFARVOGS er garða­hlynur (Acer pseu­do­plat­anus) við Reykja­fold 12. Hlyn­ur­inn er ekki nema 37 ára en hefur nýtt tím­ann vel. Tréð er þegar orðið hið glæsi­leg­asta, þótt það sé barn að aldri á mæli­kvarða garða­hlyna sem verða 500 ára. Tréð sést vel frá göngu­stíg í hverf­inu og greini­legt að það hefur heillað veg­far­endur, enda bár­ust nokkrar til­nefn­ingar á því til félags­ins.

HVERFISTRÉ HÁALEITIS-BÚSTAÐA er evr­ópulerki (Larix decidua) við Grund­ar­gerði 19. Í Háa­leitis- og Bústaða­hverfi er mikið um glæsi­legt tré — seljur, reyni­tré, hlyni og svo mætti lengi telja. Valnefnd félags­ins var því nokkur vandi á höndum, eins og gildir reyndar um fleiri hverfi. Evr­ópulerkið er hávaxið, krækl­ótt og bogið en jafn­fram hið glæsi­leg­asta með sterkan karakter sem setur skemmti­legan svip á göt­una.

HVERFISTRÉ HLÍÐA er garða­hlynur (Acer pseu­do­plat­anus), Reykja­hlíð 8. Margar ábend­ingar bár­ust um hlyn­inn enda er þetta glæsi­lega tré stað­sett við göngu­stíg að leik­skól­anum Hlíð, svo að margt fólk nýtur þess þegar það á leið hjá. Tréð er stórt með vold­ugan stofn og íburð­ar­mikla krónu. Hlyn­ur­inn er með nægt pláss í kringum sig og fær því að njóta sín að fullu. Íbúar lýsa trénu sem „prýði hverf­is­ins“ og oft heyr­ist til borg­ar­búa og ferða­manna stoppa og dást að því hvað hlyn­ur­inn er fal­legur.

HVERFISTRÉ KJALARNESS er gull­regn (Laburnum x watereri) við Esju­grund 34. Gull­regnið er fal­legt og hefur blómstrað fal­lega í sumar, líkt og gull­regn víðar í borg­inni eftir góð­viðra­sum­arið 2023. Tréð hefur notið alúðar í upp­eld­inu og er vel haldið í einka­garði. Jafn­framt sést það vel frá göngu­stíg í miðju Grund­ar­hverfi og því margir sem geta notið þess.

HVERFISTRÉ LAUGARDALS er gull­regn (Laburnum x watereri) í garði Ásmund­ar­safns. Eins og segir í til­nefn­ingu er tréð „afar fag­urt og myndar stór­feng­lega hvelf­ingu yfir úti­lista­verkum í garði safns­ins sem er öllum opinn.“ Gullregn eru fal­leg úr fjar­lægð en ekki síður þegar nær er komið enda geta grein­arnar myndað fal­lega hvelf­ingu líkt og í Ásmund­ar­safni.

HVERFISTRÉ VESTURBÆJAR er álmur (Ulmus glabra) við Stýri­manna­stíg 9. Álmurinn er sér­lega stór og glæsi­legur. Hugsað hefur verið vel um tréð síð­ustu ár, meðal ann­ars tvö önnur tré sem voru komin til ára sinna verið felld. Ekki er vitað hvenær álm­ur­inn var gróð­ur­settur, en húsið að Stýri­manna­stíg 9 var reist árið 1906. Til gam­ans má geta þess að það var í þessum sama garði sem fyrsti körfu­víðir­inn var rækt­aður upp á Íslandi, um alda­mótin 1900. Tein­ungur úr tága­körfu frá Þýska­landi var gróð­ur­settur í garð­inu. Á næstu árum og ára­tugum fengu borg­ar­búa svo víði­græðlinga af þess­ari plöntu sem varð þekkt undir heit­inu Vest­ur­bæj­ar­víðir og er nú að finna víða um land.

HVERFISTRÉ MIÐBORGAR eru grá­eld­ri­tré (Alnus incana) á Aust­ur­velli sem voru gróð­ur­sett 1963. Falleg ein­stofna tré með fal­legum krónum. Vaxt­ar­lagið á teg­und­inni getur verið mis­jafnt – runni, marg­stofna tré eða ein­stofna tré með krónu. Trén njóta sín vel með öðrum fjöl­breyttum gróðri og umvefja Aust­ur­völl ein­stakri grænni hlýju.

Mörg fal­leg tré eru í hverf­inu — birki, silf­ur­reynar, hrossa­kastan­íur, garða­hlynir og svo mætti lengi telja. Þá eru í Mið­borg­inni margir almenn­ings­garðar með fal­legum og fjöl­breyttum gróðri. Allt frá Alþing­is­garð­inum, einum fyrsta skrúð­garði lands­ins (1894) til kirsu­berja­lunds­ins sem var gróð­ur­settur í Hljóm­skála­garð­inum árið 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi