Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjálfstæðisflokkurinn hruninn í Reykjavík – Fyrrverandi borgarstjóri segir ástandið vera óviðunandi

Sjálfstæðisflokkurinn hruninn í Reykjavík – Fyrrverandi borgarstjóri segir ástandið vera óviðunandi
Hildur Björns­dóttir odd­viti sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er við hrun í Reykja­vík og mælist vera fimmti stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn í borg­inn. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Flokk­ur­inn mælist núi með aðeins 10,3 pró­sent fylgi í höf­uð­borg­inni. Sam­fylk­ingin ber höfuð og herðar yfir aðra flokka og mælist langstærst með 29,9 pró­sent. Mið­flokk­ur­inn, Viðreisn og Píratar mæl­ast allir hærri í könn­un­inni en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Mið­flokk­ur­inn fengi 10,8 pró­sent, Píratar 11,5 pró­sent og Viðreisn 12,3 pró­sent. Sós­í­alista­flokk­ur­inn er með rúm­lega 5 pró­senta fylgi en Vinstri-grænir eru með rúm­lega 4 pró­sent.

Hrun á fylgi sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík er enn meirta en það sem flokk­ur­inn glímir við á lands­vísu þar sem nýjasta mæl­ing sýnir hann vera innan við 14 pró­sent. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík er átak­an­lega lágt í því ljós að flokk­ur­inn var lengst af með 40-60 pró­senta fylgi og hreinan meiri­hluta á stundum. Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, birtir í dag grein í Mogganum þar sem hann gefur minni­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­ystu Hildar Björns­dóttur fall­ein­kunn.

„Ljóst er að staða Sjálf­stæðis­flokks­ins í borg­ar­stjórn er óviðun­andi. Fylgið hef­ur um nokk­urt skeið verið í lág­marki, eða í kring­um 20%. Um þessa stöðu rit­aði ég grein í Morg­un­blað­inu 8. ág­úst sl. Í þeirri grein hvatti ég borg­ar­stjórn­ar­flokk Sjálf­stæðis­flokks­ins til að end­ur­skoða vinnu­lag sitt,“ skrifar Vil­hjálmur.

Hann segir stöðu flokks­ins vera óvið­un­andi í alla staði. Það ger­ist þrátt fyrir að borg­inni sé illa stjórnað af núver­andi meiri­hluta.

„Borg­ar­full­trú­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins verða að gera sér grein fyr­ir því að nú­ver­andi vinnu­lag þeirra er ekki lík­legt til að færa Sjálf­stæðis­flokkn­um auk­in áhrif á vett­vangi borg­ar­stjórn­ar. Bet­ur má ef duga skal,“ skrifar Vil­hjálmur og vill að borg­ar­full­trúar setji í sig hrygg og fundi með borg­ar­búum til að reifa sín stefnu­mál.

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi