Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hópur krakka gekk í skrokk á dreng við Breiðholtslaug: „Þetta var algjörlega gert til að meiða“

Hópur krakka gekk í skrokk á dreng við Breiðholtslaug: „Þetta var algjörlega gert til að meiða“
Sirka þarna var árásin gerð. Mynd: Facebook

Kona nokkur varð vitni að því er hópur krakka gekk í skrokk á ung­lings­strák fyrir utan Breið­holts­laug.

„Um klukkan 13:35 varð ég vitni að lík­ams­árás fyrir utan Breið­holts­laug

Þar var hópur ungra krakka (held þau/þeir hafi verið sirka 5 í hóp) að berja, sparka í og traðka á ung­lings­dreng (grunn­skóla­aldur) sem var á leið með vinum sínum í sund.“

Þannig hefst hin slá­andi frá­sögn konu nokk­urrar sem hún birti á íbúða­síðu Breið­holts­ins á Facebook. Segir hún að þol­and­inn og allir vinir hans séu af asískum upp­runa.

„Þol­and­inn var af asískum upp­runa og voru vinir hans sem voru með honum í sundi það líka.Hann var vank­aður eftir þung og mikil högg og í áfalli og afþakk­aði alla aðstoð bæði frá mér og starfs­fólki laug­ar­innar.

Ég hef áhyggjur af því að hann hafi hlotið heila­hrist­ing og meiri skaða af þessu en hann þorði að við­ur­kenna, elsku dreng­ur­inn og því er mik­il­vægt að hann kom­ist undir lækn­is­hendur. Starfs­fólk laug­ar­innar tók niður nafnið mitt og síma­númer ef að for­eldrar þessa drengs finn­ast og vilja ræða við vitni.“

Að lokum beinir konan orðum sínum að for­eldrum:

„Kæru for­eldrar, nú verðum við að taka höndum saman og reyna að takast á við þetta vanda­mál sem virð­ist algjör­lega engan endi ætla að taka!

Ræðum við börnin, stoppum þetta rugl!“

Í sam­tali við Mannlíf sagði konan, sem ekki vill láta nafn síns getið að hún hafi náð að stöðva árás­ina með því að standa á flaut­unni en hún var á bíl á leið í sund með fjórum börnum. „Ég keyri inn á bílaplanið og þá orgar dóttir mín á mig að það sé verið að meiða ein­hvern þarna, þannig að ég steig bíl­inn bara og keyrði að þessu. Stóð svo á flaut­unni þar til strák­arnir hlupu af honum. Ég stökk svo út úr bílnum og byrj­aði að hlúa að drengnum. Hann var slas­aður, vank­aður, stóð upp og datt, fraus algjör­lega og afþakk­aði alla aðstoð.“

Konan sagð­ist telja að ger­end­urnir hafi verið fjórir til fimm, senni­lega allt strákar og á svip­uðum aldri og þol­and­inn og vinir hans, á að giska 13 til 16ára. „Þetta var algjör­lega gert til að meiða og þeir voru ekk­ert að grín­ast. Þeir stóðu á honum og spörk­uðu í hann og tröðk­uðu á and­lit­inu á honum og börðu hann. Þetta var brú­tal.“

Bætti hún svo við að lokum að krakk­arnir sem voru með drengnum sem ráð­ist var á hafi verið sirka 6 til 8, þar af tvær stelpur, öll af asískum upp­runa. „Mér finnst svo mik­il­vægt að for­eldr­arnir viti þetta og að hann fái hjálp“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi