Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ósyndur sjómaður bjargaði konu frá drukknun en fékk svo reikning fyrir sjúkrabíl: „Þetta er sárt“

Ósyndur sjómaður bjargaði konu frá drukknun en fékk svo reikning fyrir sjúkrabíl: „Þetta er sárt“
Reykja­vík­ur­höfn – Athugið, myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Íslenski ferðavefurinn

Spán­verj­inn Óskar Montes bjarg­aði lífi konu sem féll í Reykja­vík­ur­höfn en fékk svo bak­reikn­ing fyrir sjúkra­bílnum og var hreint ekki ánægður.

Sjó­mað­ur­inn Óskar Montes hafði árið 1994 búið á Íslandi í níu ár en hann vann um borð í Vest­mannaey. Í lok des­em­ber 1993 vann hann hetju­dáð þegar kona sem hafði verið far­þegi í skipi hans féll í sjó­inn við Reykja­vík­ur­höfn. Stökk okkar maður rak­leitt á eftir kon­unni, þrátt fyrir að kunna sjálfur ekki að synda. Kafaði Óskar á eftir kon­unni og náði að draga hana upp og halda á floti í dágóðan tíma áður en þeim var báðum bjargað upp á land.

Óskar var aðfram­kom­inn þegar aðra bar að og gafst hrein­lega upp og var fluttur með sjúkra­bíl á Borg­ar­spít­ala en fyrir þann flutn­ing fékk hann 5.000 króna reikn­ing sem hann var afar ósáttur með, enda hafði hann bjargað lífi kon­unnar og ætti ekki að þurfa að borga krónu fyrir það. Þá var hann einnig ósáttur við að vera klæddur í larfa og útskrif­aður af sjúkra­hús­inu auk þess að þurfa að borga leigu­bíl­inn aftur í skipið.

Hér má lesa umfjöllun DV frá 1994:

Maður sem var hætt kom­inn við björgun konu í Reykja­vík­ur­höfn:
Láta mig borga fyrir að hætta Iífi mínu

– sendur reikn­ingur fyrir sjúkra­bíl, klæddur í larfa og útskrif­aður

„Þetta er sárt. Mér er alveg sama um þennan pen­ing. Þetta eru ekki nema 5000 krónur. Þeir geta kannski notað þetta í eitt­hvað en mér dettur ekki til hugar að borga þetta. Það er prinsipp­mál. Ég hætti lífi mínu til að hjálpa kon­unni svo á að láta mig borga fyrir það. Það er tómt rugl,“ segir Óskar Montes, sjó­maður um borð í Vest­mannaey.
Óskar, sem er frá Spáni en hefur búið hér í 9 ár, var hætt kom­inn í lok des­em­ber þegar hann kastaði sér eftir konu sem hafði fallið á milli skips og bryggju í Reykja­vík­ur­höfn. Konan hafði verið um borð í Vest­mannaey, tog­ara sem Óskar er skip­verji á. Óskar, sem er ósyndur, lét það ekki aftra sér frá að henda sér í sjó­inn. Honum tókst að kafa á eftir kon­unni og halda henni á floti í tals­verðan tíma.

Fékk reikn­ing

Þegar aðrir komu á vett­vang var Óskar hins vegar orð­inn örmagna og gafst hrein­lega upp. Honum var bjargað á land ásamt kon­unni, sem hann hafði bjargað, og fluttur með sjúkra­bíl á Borg­ar­spít­ala. Fyrir sjúkra­bíl­inn fékk Óskar svo sendan nýlega 5000 þús­und króna reikn­ing sem hann talar um hér að framan.
„Mér líður aldrei vel á sjúkra­húsum þannig að ég spurði hvort ég mætti ekki fara. Svarið var jú. Galla­bux­urnar mínar, skyrta og skór voru sett renn­blaut í plast­poka. Ég var klæddur í svaka­lega stórar nær­buxur, stórar gamm­osíur, sokka og plast­boka yfir þá. Yfir mig fékk ég svo stórt teppi og var sagt að fara út. Ég fór niður og hringdi á leigu­bíl sem keyrði mig niður í skip. Leigu­bíl­inn þurfti ég svo að borga sjálfur. Þetta myndi aldrei koma fyrir á Spáni. Ég var reiðu­bú­inn að fóma lífi mínu og svona er komið fram við mann. Ég er ekki að óska eftir heið­urs­merki en þetta fannst mér fúll gróft,“ segir Óskar.

Þurfti lækni og lyf

Óskar eyddi svo gamlárs­kvöldi á hót­el­her­bergi á Hótel Borg þar sem hann veikt­ist eftir volkið í sjónum. Hann fór til vina­fólks síns í Mos­fellsbæ og þar var kallað á lækni því alltaf versn­aði heilsan. Í ljós kom að hann hafði fengið snert af tauga­á­falli. Hann þurfti að kaupa lyf, sem hann borg­aði sjálfur, því hann fékk martraðir í langan tíma á eftir. Í sam­tals tvær vikur lá hann í veik­indum en var ekki frá vinnu þar sem sjó­manna­verk­fallið stóð yfir þegar þetta var. Loks má geta þess að hann týndi linsum, sem hann notar, þegar hann stakk sér í sjó­inn eftir kon­unni og þurfti að kaupa nýjar fyrir 20 þús­und krónur.
Þrátt fyrir þetta seg­ist Óskar munu end­ur­taka þetta ef á þurfi að halda en menn ættu þó að hugsa hvernig komið er fram við þá sem em að reyna að koma ein­hverju góðu til leiðar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni