Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lenya Rún vill átak til að sporna við þróuninni meðal ungmenna: „Það þarf að skoða rót vandans“

Lenya Rún vill átak til að sporna við þróuninni meðal ungmenna: „Það þarf að skoða rót vandans“
Lenya Rún

Vara­þing­maður Pírata segir að nú þurfi að fara í átak og rann­saka van­líðan hjá ung­mennum á Íslandi.

Lenya Rún Taha Karim vara­þing­maður Pírata, fór á minn­ing­ar­at­höfn Bryn­dísar Klöru sem haldin var í fyrra­dag en hún lést á dög­unum eftir hnífs­stungu­árás á Menn­ing­arnótt. Hún þekkti Bryndísi Klöru ekki en litli bróðir hennar var skóla­fé­lagi Bryn­dísar.

„Ég fór á minn­ing­ar­at­höfn Bryn­dísar Klöru í gær. Ég þekkti hana ekki, en hún og litli bróðir minn voru skóla­fé­lagar bæði í grunn­skóla og mennta­skóla. Hún var í Sala­skóla, sama skóla og við öll þrjú systk­inin fórum í, og úr Sala­hverf­inu, þar sem við ólumst einnig upp. Hverfi sem er almennt mjög rólegt og öruggt.“

Þannig hefst hjart­næm Facebook-færsla Lenyu Rúnu. Og svo lýsti hún sorg­inni sem blasti skilj­an­lega við henni í athöfn­inni.

„Ég tárað­ist um leið og ég sett­ist niður, áður en tekið var til máls og áður en orð náðu að fanga hvernig mér leið. Ég tárað­ist því ég leit í kringum mig og sá svo mikið af börnum, börnum sem fylltu kirkj­una til að syrgja annað barn. Það að þörf hafi verið á minn­ing­ar­at­höfn barns til að byrja með fannst mér svo ósann­gjarnt. Ég sá for­eldra ann­arra barna sem syrgðu, bæði vegna þess að Bryndís Klara end­ur­speglar fal­legu og sak­lausu eig­in­leika ung­menna í sam­fé­lag­inu en líka vegna þess að for­eldrar sjá Bryndísi Klöru í börn­unum sínum. Ég sá kenn­ara sem kenndu mér í Sala­skóla, sem syrgðu bæði sem kenn­arar og sem for­eldrar, for­eldrar sem bíða eftir að barnið sitt komi heim eftir flug­elda­sýn­ing­una á menn­ing­arnótt í góðri trú um að ekk­ert slæmt ger­ist. Allt við þetta er svo ósann­gjarnt og ég get ekki fundið orðin til að lýsa þessu.Ég á ekki barn en ég get ímyndað mér að aðrir for­eldrar skil­greini ekki orðin “öryggi” og “vel­ferð” með sama hætti og þau gerðu fyrir menn­ing­arnótt.“

Því næst talar Lenya Rún um það hvað þurfi að gera til að bregð­ast við hinum nýja veru­leika sem blasir við á Íslandi.

„Ég get þó fundið orðin til að lýsa mik­il­vægi þess að sporna við þess­ari þróun meðal ung­menna í íslensku sam­fé­lagi.Nú þarf að fara í átak og kafa ofan í van­líðan ung­menna á Íslandi, greina áhættu­þætti sem ýta undir auk­inn vopna­burð og hvað veldur hræðslu og van­líðan meðal þeirra sem bera vopn. Ísland er að breyt­ast og hefur breyst tölu­vert frá því ég var ung­lingur. Ég held það sé löngu tíma­bært að spyrja sig hvað veldur því að börn finna þörf fyrir vopna­burði og hvernig eigi að koma í veg fyrir slíka þörf til að byrja með. Það þarf að skoða rót vand­ans og hlúa að börn­unum okkar frá ungum aldri, með alvöru aðgerðum sem snerta m.a. á félags­legum þáttum, and­legum þáttum og lifn­að­ar­háttum, í því skyni að stuðla að betra og örugg­ara sam­fé­lagi fyrir okkur öll. Fyrir Bryndísi Klöru.Börnin eru fram­tíðin og með því að hlúa að börn­unum okkar frá ungum aldri erum við að fjár­festa í fram­tíð­inni okkar.Hugur minn er hjá öllum fjöl­skyldu­með­limum, vinum og kunn­ingjum Bryn­dísar Klöru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi