Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Huginn borgaði 20.000 fyrir bílastæði ISAVIA: „Þetta samfélag er orðið svo gegndarlaust gráðugt“

Huginn borgaði 20.000 fyrir bílastæði ISAVIA: „Þetta samfélag er orðið svo gegndarlaust gráðugt“

„20.000 fyrir 3,5 sól­ar­hring á ISAVIA bíla­stæði í Rvk. Þvílíka okrið. Ég kom svo að sækja pabba þangað fyrir nokkrum dögum, beið þarna minna en 30 mín­útur og svo rukk­uðu þeir mig 1900 kr. þó ég færi aldrei úr bílnum og sá engin skilti þarna. (svo voru þessir sömu aðilar með vit­lausan komu­tíma inni á vef­síð­unni sinni, svo ég kom þarna 25 mín­útum of snemma og beið eins of fífl, en ekki get ég rukkað þá fyrir tap­aðan tíma þó þeir birti rangar upp­lýs­ingar, heldur rukka þeir mig fyrir að blekkja mig á svæðið of snemma!).“ Þannig hefst færsla Hugins Þórs Grét­ars­sonar barna­bóka­höf­undar sem hann birti á Facebook í gær en eins og sjá má er hann afar ósáttur við ISAVIA. Færslan hefur vakið verð­skuld­aða athygli enda margir sem tengja við orð rit­höf­und­ar­ins.

Og Huginn hefur ekki sagt sitt síð­asta:

„Til að kór­óna þetta, þá vissum við vita­skuld ekki af því að verið væri að rukka orðið fyrir stæði á Akureyri, og höfðum lagt þar áður án þess að vera rukk­aðir. Fékk svo 68.000 króna reikn­ing frá þessum græðg­is­sjúku Isav­ía­mönnum. (Bíllinn að vísu var þarna lengi í sumar vegna breyt­inga á ferðum, en við alveg grun­lausir að væru komin gjöld þarna og létum hann því standa þar til við kæm­umst næst norður).“

Spyr hann af hverju bíla­stæðin séu ekki lokuð af í stað þess að fólk sé blekkt.

„Hvað með að krefj­ast þess að menn loki af bíla­stæði ef þeir ætla að rukka fyrir þau, í stað þess að blekkja fólk inn á stæði sem hafa verið frí alla tíð og rukka svo him­in­háar upp­hæðir. Það er eng­inn að lesa ein­hver lítil skilti sem þeir lauma þarna fyr­ir­vara­laust.“

Huginn segir að sam­fé­lagið á Íslandi sé orðið „svo gegnd­ar­laust gráð­ugt“ og að stoppa þurfi þessa þróun:

„Þetta er klikkun. Þetta sam­fé­lag er orðið svo gegnd­ar­laust gráð­ugt. Maður má hvergi hreyfa sig eða leggja bíl eða nokkuð án þess að það séu tog­aðar af manni pen­ingar. Samfélag sýkt af græðgi. Hverjir eru að sam­þykkja þetta frá ISAVIA? Getur maður ekki sótt fólk á inn­an­bæj­ar­flug­völl­inn án þess að lenda í svona pen­ingaplokki?

Þetta þarf að stoppa. Einfalda allt kerfi. Ekki enda­laust plokk við hverja hreyf­ingu á þessu landi. Maður má ekki lengur skoða nátt­úruperlur lands­ins eða pissa í kló­sett án þess að borga. Maður má ekki sækja fólk upp á flug­völl eða lands­byggð­ar­fólk bregða sér í bæinn án þess að vera okrað á því.“

Í loka­orðum Hugins kemur hann með ráð til ISAVIA:

„Kapital­ismi getur því miður orðið gjör­sam­lega gengd­ar­laus ef honum eru ekki settar ein­hverjar hömlur. Þarf að hreinsa aðeins til hjá ISAVIA og hugsa um þjón­ustu framar gróða­hyggju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi