Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tólf bjargað úr miklum eldsvoða á Hverfisgötu: „Hann stóð sig eins og hetja“

Tólf bjargað úr miklum eldsvoða á Hverfisgötu: „Hann stóð sig eins og hetja“
Hverf­is­gata 72 fór illa úr eld­inum – Mynd: DV/GVA

12 ein­stak­lingum var bjargað úr elds­voða á Hverf­is­götu 72 árið 1991.

Betur fór en á horfð­ist í júlí árið 1991 þegar kvikn­aði í Hverf­is­götu 72 en talið er að hafi eld­ur­inn komið upp á neðri hæð húss­ins en fólkið á ris­hæð­inni þurfti allt að fara á slysa­deild. Fólkið hafði skorist á höndum við að hanga út um glugga til að forða sér og fengið reyk­eitrun.

„Ég kom einn á stað­inn fyrst en svo bætt­ust fleiri lög­reglu­menn við. Ég hafði séð reyk­inn og var eig­in­lega kom­inn aö hús­inu áður en til­kynn­ingin kom. Þegar ég kom að log­aði stiga­gang­ur­inn alveg baka til og mik­inn reyk lagði út um alla glugga á hæð­unum. Á efri hæð­inni var fólk, 5 manns. Það var lokað inni. Fólkið kall­aði út um glugg­ana Hverf­is­götu­megin og hálf­part­inn hékk úti. Fólkið var líka búið að brjóta rúðu til að fá loft. Sá yngsti var 12-13 ára. Ein­hverjum, sem var á neðri hæð­inni, tókst að finna stiga­ræksni. Stiginn var ekki nógu langur og við þurftum að halda á honum í fang­inu til að hann næði upp til fólks­ins. Það hóstaði og ég tel að það hafi fengið reyk­eitrun,“ sagði Jón Ólafsson lög­reglu­þjónn í sam­tali við DV um málið en gleð­skapur hafði verið á neðri hæð­inni um nótt­ina.

Hetju­vinur Önnu

„Stiga­gang­ur­inn baka til var alelda og fólkið hékk út um glugga á ris­hæð götu­megin. Lög­reglan var búin að reisa stiga og var að taka fólkið niður. Þegar við sáum að þetta fólk var í góðum höndum lög­regl­unnar sinntum við slökkvi­starf­inu því við ótt­uð­umst að fleiri gætu verið inni og gátum ein­beitt okkur að því aö ganga úr skugga um það. Þrír reykka­f­arar fóru inn. Það er ótrú­legt hvað eld­ur­inn hefur breiðst fljótt út. Slökkvi­starfið gekk þó vel og tókst vonum framar. Það gekk greið­lega að slökkva yfir­borð­seld en síðan rifum við ein­angrun með spónum og þakið rufum við til að vera öruggir. En efri hæðin er illa farin,“ sagði Ragnar Sól­ons­son, varð­stjóri hjá slökkvi­lið­inu, en það var ennþá að störfum þegar DV fór í prentun.

Það var bara fyrir til­viljun að við sáum eld­inn í gegnum eld­hús­glugg­ann. Það var allt skíð­log­andi svo við gátum ekk­ert gert og hlupum út,“ sagði Anna Metta Norðdal íbúi um elds­voð­ann. „Vinur minn ætl­aði að hlaupa upp stig­ann til að bjarga fólk­inu sem var á efri hæð­inni en sá að það var von­laust. Hann hljóp því í bak­garð við hús hinu megin við göt­una og fann þar ein­hvern stiga­ræfli. Hann stóð sig eins og hetja. Mér finnst þetta mjög gott hjá honum að hugsa svona rök­rétt. Stiginn náði ekki alla leið upp svo það þurfti að halda við hann til þess að ná barn­inu út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni