Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gagnrýna fúsk í sögugöngum borgarinnar: „Fyrirtækjunum sem eru í þessum bransa er alveg sama“

Gagnrýna fúsk í sögugöngum borgarinnar: „Fyrirtækjunum sem eru í þessum bransa er alveg sama“
Aust­ur­völlur Mynd: Wikipedia

Stefán Pálsson segir sárt að sjá hversu lélegur stað­all sé á sögu­göngum í Reykja­vík. Illugi Jök­uls­son tekur undir.

Sagn­fræð­ing­ur­inn Stefán Pálsson skrifar um sögu­göngur á Facebook en færsla hans hefur vakið athygli. Segist hann í upp­hafi vera „lúx­us­grís“ þegar kemur að sögu­göngum en hann á það til að taka að sér slíkar göngur og þá aðal­lega fyrir íslenska hópa.

„Ég er lúx­us­grís þegar kemur að sögu­göngum. 90% af þeim göngum sem ég tek eru með íslenskum hópum og rest­inni sinni ég mest af með­virkni eða greiða­semi. Það er ein­fald­lega hægt að segja heima­fólk­inu allt aðrar og flókn­ari sögur en túrist­unum. Ég geri mér grein fyrir að þessi mun­að­ar­staða hangir saman við að ég sé með góða fyr­ir­vinnu og fái mínar eigin tekjur að mestu ann­ars staðar frá en úr götu­leið­sögu­mennsk­unni.“

Stefán talar síðan um léleg gæði í mörgum sögu­göngum erlendra hópa í Reykja­vík en hann full­yrðir að „útlenskir krakkar“ fái hand­rit í hend­urnar og end­ur­segi eftir minni.

„Það er sárt að horfa upp á stand­ar­dinn á þeim sögu­göngum sem ferða­mönn­unum í Reykja­vík er boðið uppá. Flestir leið­sögu­menn­irnir eru útlenskir krakkar sem hafa fengið hand­rit í hendur í upp­hafi ver­tíðar og end­ur­segja svo eftir minni og skrökva ef þurfa þykir frekar en að standa á gati, því leið­bein­end­urnir hafa ráð­lagt þeim að gera það til að fá meira þjórfé í vas­ann. Það er dap­ur­legt að við getum ekki sinnt þess­ari mik­il­vægu þjón­ustu betur og að fyr­ir­tækj­unum sem eru í þessum bransa sé alveg sama.“

Fjöldi athuga­semda voru skrif­aðar undir færsl­unni en Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður skrif­aði eina slíka og kemur með dæmisögu:

„Ég gekk um dag­inn eftir Þing­holts­stræti og var að ganga fram­hjá húsi Helga Helga­sonar tón­skálds þegar hópur kom askvað­andi með amer­ískan (held ég) far­ar­stjóra. Hann stopp­aði, benti og sagði: „This is the house of Helgi Helgason, he was a carpenter and a famous poet and he wrote the words to the Icelandic national ant­hem, in fact he wrote it in this house.“ Til að bíta haus­inn af skömminni benti hann á vit­laust hús.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi