Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Unglingsstúlka neydd til að afklæðast á flugvelli: „Þetta olli mér miklu áfalli og skömm“

Unglingsstúlka neydd til að afklæðast á flugvelli: „Þetta olli mér miklu áfalli og skömm“
Caitlyn með vega­bréfið sitt. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Bresk ung­lings­stúlka seg­ist hafa verið neydd til að afklæð­ast fyrir framan örygg­is­verði flug­vallar í kyn­skoðun eftir að þeir neit­uðu að trúa því að hún væri stúlka. Segist hún vera í „áfalli“ eftir þessar raunir.

Caitlyn Disley, 15 ára, hafði lent á Hurghada flug­velli í Egypta­landi þegar örygg­is­verðir flug­vall­ar­ins neyddu hana til að gang­ast undir kyn­skoðun, þar sem henni var skipað að lyfta brjósta­hald­ar­anum og sanna að hún væri ekki með karl­kyns kyn­færi. Hún og fjöl­skylda maka hennar hafa sagt að þau hafi ekki getað yfir­gefið flug­stöð­ina fyrr en hún kláraði hina óþægi­legu skoðun fyrir framan hjúkr­un­ar­fræð­ing.

Caitlyn.

Full af skömm

Þó að fjöl­skyldi hafi að lokum getað farið, þegar örygg­is­verð­irnir voru sann­færðir um að hún væri kven­kyns, rétt eins og fram kom á vega­bréf­inu hennar, hefur reynslan skilið hana eftir var­an­leg óþæg­indi á sál­inni. Caitlyn sagð­ist vera hneyksluð og „full af skömm“ yfir því sem átti sér stað. Hún útskýrði að eina breyt­ingin á útliti hennar frá því að myndin á vega­bréf­inu var tekin, hafi verið að hún væri með styttra hár.

Caitlyn sagði: „Þetta olli mér miklu áfalli og skömm. Ég hef aldrei lent í neinu slíku áður.“ Faðir hennar Tom Disley, 40, sagð­ist vilja segja frá reynslu dóttur sinnar svo aðrir væru á varð­bergi gagn­vart svip­uðum aðstæðum í Egypta­landi. Sex barna fað­ir­inn Tom, hús­vörður, sagði að þessi „hræði­lega“ reynsla hafi farið sér­stak­lega illa í dóttur sína síðan hún sneri aftur til Bret­lands.

Hann sagði: „Þetta hefur verið hræði­leg reynsla fyrir Caitlyn og ég held að það hafi slegið hana meira núna þegar hún er komin heim. Hún gat sett þetta á bak­við eyrun á meðan þau voru í burtu en hún hafði samt áhyggjur af því að þetta gæti gerst aftur á Hurghada flug­vell­inum á leið­inni heim. Caitlyn er stráka­stelpa (e. tomboy) en í vega­bréf­inu hennar segir að hún sé stelpa, og myndin er greini­lega af hand­haf­anum, hvort sem hún er með stutt hár eða ekki.“ Bætti hann við: „Ég, pabbi hennar og bræður hennar höfum aldrei séð Caitlyn í slíkri van­líðan. Hún var með tvo karl­menn sem stóðu fyrir framan sig og sögð­ust vilja sjá ákveðna lík­ams­parta hennar.“

Caitlyn á yngri árum.

Hlakkaði til ferðarinnar

Tom, sem býr með Caitlyn, í Wigan á Stór-Manchester-svæð­inu, sagði að hana hafi hlakkað til ferð­ar­innar með kær­ustu sinni, þekkt sem Liv, og fjöl­skyldu hennar. Þau höfðu bókað gist­ingu á dval­ar­stað við Rauða­hafið í tíu daga, svo þau gætu baðað sig í sól­inni áður en skóla­önnin hófst.

En ekki löngu eftir að þau höfðu stigið út úr flug­vél­inni 25. ágúst sagði Tom að tveir emb­ætt­is­menn hafi nálg­ast Caitlyn og skipað henni síðan að „afklæð­ast“ fyrir framan hjúkr­un­ar­fræð­ing. „Hún, for­eldrar Liv og Liv lentu í Egypta­landi og eftir að hafa farið frá borði horfðu tveir karl­menn frá örygg­is­gæsl­unni lengi á vega­bréfið hennar og horfðu síðan á hana, en leyfði þeim að lokum að fara í gegn,“ sagði Tom áður en hann hélt áfram: „En töskur hóps­ins voru þær síð­ustu til að birt­ast á færi­band­inu og voru þær því nán­ast einar þegar menn­irnir tveir komu aftur og sögð­ust þurfa að athuga svo­lítið. Mamma Liv spurði hvort það væri ein­hver sem gæti talað ensku vegna þess að það var eitt­hvað rugl í sam­skiptum. Það var eng­inn sem kunni ensku en náðu á end­anum að koma því til skila þeir þyrftu að athuga að hún væri kven­kyns og var farið með hana inn í her­bergi. Í fyrstu held ég að menn­irnir sjálfir hafi viljað skoða hana náið. En mamma Liv setti niður fót­inn og þau fundu kven­kyns hjúkr­un­ar­fræð­ing. Ég hef ekki hug­mynd um hvort hún hafi haft eitt­hvað með flug­völl­inn að gera. Hún bað Caitlyn að lyfta íþrótta­brjósta­hald­ar­anum sínum og þá var því komið á fram­færi að þau þyrftu að „kíkja þarna niður“. Mamma Liv sagði „ekki sjens“ en þau gerðu þá mála­miðlun að Caitlyn dró stutt­bux­urnar sínar þröngt að sér til að sýna að hún væri ekki með karl­kyns kyn­færi. Svo fengu þau að fara.“

Fordómar gegn LGBT+ fólki

Í Egypta­landi er kyn­ferð­is­legt athæfi sam­kyn­hneigðra bönnuð á milli karl­manna, þar sem „ósið­semi“, „hneyksl­an­leg athæfi“ og „óhóf“ eru refsi­verð, að sögn hinna óhagn­að­ar­drifnu sam­taka The Human Dignity Trust. Samtökin bæta því við að það hafi verið „stöðugar fregnir af mis­munun og ofbeldi sem framið er gegn LGBT+ fólki í Egypta­landi“.

Og sam­tökin segja að þetta hafi falið í sér „mis­notkun, áreitni, þving­aðar enda­þarms­rann­sóknir og þving­aðar mút­ur­greiðslur“. Tom sagð­ist vilja vekja athygli á því að aðrir ferða­menn frá Bret­landi gætu lent í svip­uðum atvikum þegar þeir ferð­ast til Egypta­lands í fram­tíð­inni. Fjöl­skyldan hefur síðan farið með mál sitt til þing­manns­ins Lisu Nandy, en teymi hennar hefur sagt þeim að hún ætli að ræða það við við­eig­andi ráð­herra í rík­is­stjórn­inni.

Tom bætti við: „Við þurfum að koma skila­boð­unum áleiðis. Caitlin vill ekki að þetta komi fyrir neinn annan. Það gæti verið 10 eða 11 ára næst. Við erum ekki að leit­ast eftir því að lög­sækja neinn. Við erum bara á móti því að allir aðrir – sér­stak­lega börn – þurfi að horfast í augu við svona nið­ur­læg­ingu.“

Tals­maður breska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sagði: „Við tjáum okkur ekki um ein­stök mál sem varða börn en starfs­fólk okkar er reiðu­búið að styðja breska rík­is­borg­ara erlendis allan sól­ar­hring­inn. Utan­ríkis-, sam­veldis- og þró­un­ar­skrif­stofan (FCDO) og sendi­ráð Bret­lands, hánefndir og ræð­is­skrif­stofur geta aðstoðað breska rík­is­borg­ara erlendis við ýmsar aðstæður.“

Mirror sagði frá mál­inu

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta