Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensk yfirvöld ráku veikan rússneskan dreng úr landi: „Metum mannúðina meira en hegningarlögin“

Íslensk yfirvöld ráku veikan rússneskan dreng úr landi: „Metum mannúðina meira en hegningarlögin“
Múgur og marg­menni safn­að­ist fyrir utan hús Ólafs þegar lög­reglan hugð­ist sækja Natan. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Mál hins 11 ára gamla Yazan Tamimi er ekki eina dæmið í Íslands­sög­unni þar sem yfir­völd ætla sér að vísa veiku barni úr landi.

Árið 1921 flutti nefni­lega til lands­ins 15 ára gam­all rúss­neskur piltur, en hann var á vegum Ólafs Frið­riks­sonar rit­stjóra Alþýðu­blaðs­ins. Dreng­ur­inn, Natan Friedman, hafði misst föður sinn sem var sonur þekkts verka­lýðs­for­ingja í Rúss­landi, þegar hvít­liða­her­sveitir tóku hann af lífi. Var ætlun Ólafs að ætt­leiða dreng­inn en eftir að í ljós kom að hann væri hald­inn slæmum augn­sjúk­dómi, lagði land­læknir til við yfir­völd að drengnum yrði bannað að búa hér á landi. Stjórn­ar­ráðið fyr­ir­skip­aði að drengnum yrði komið í gufu­skipið Botníu, sem færi frá land­inu fjórum dögum eftir að hann kom til lands­ins.

Natan Friedman.

Ólafur taldi að ástæða yfir­valda væri af póli­tískum toga, en ekki tengd ótta um útbreiðslu augn­sjúk­dóm­ar­ins eins og haldið var fram, enda hefðu engar ráð­staf­anir verið gerðar til að ein­angra Natan eftir að sjúk­dóm­ur­inn kom í ljós. Safnaði Ólafur því að sér mann­skapi til þess að meina lög­reglu aðgang að heim­ili hans, þegar til stóð að sækja Natan með valdi og flytja af landi brott. Tókst að halda köldum örmum lag­anna frá drengnum en aðeins fyrst um sinn.

Lög­reglan safn­aði 50 manna hópi hvít­liða og slökkvi­liðs­stjór­inn 15 til við­bótar og réð­ust svo til atlögu. Komst lög­reglan inn í hús Ólafs eftir að hafa sprengt hurð­ina og fann þar pilt­inn fal­inn bak­við rúm­gafl en þegar hann var leiddur út úr hús­inu beið lög­regl­unnar múgur og marg­menni sem safn­ast hafði saman fyrir utan húsið og gerði heið­ar­lega til­raun til að hindra lög­regl­una í störfum hennar, enda mat fólk mann­úð­ina meira en lögin. Eftir tals­verðar stymp­ingar tókst lög­regl­unni ætl­un­ar­verk sitt og flutti dreng­inn á brott og síðar aftur til Rúss­lands.

Að end­ingu var Ólafur og nokkrir menn til við­bótar dæmdir í hæsta­rétti í nokk­urra daga fang­elsi fyrir athæfið. Hér fyrir neðan má lesa umfjöllun Pressunnar frá árinu 1989 en neðar en það má lesa um nöt­ur­leg örlög Natans.

RÚSSNESKUR DRENGUR SENDUR BROTT MEÐ VALDI

Þann 1. mai árið 1922 var kveð­inn upp dómur í Hæsta­rétti íslands. Málið var höfðað af hálfu rétt­vís­innar gegn sex mönnum er reyndu að hindra lög­reglu­yf­ir­völd í því að flytja rúss­neskan dreng af landi burt, sam­kvæmt skipun ráðu­neytis.

Forsaga máls­ins er sú að haustið 1921 flutt­ist til íslands, á vegum Ólafs Frið­riks­sonar rit­stjóra, 15 ára gam­all rúss­neskur drengur, Natan Friedman að nafni. Dreng­ur­inn var sonur þekkts verka­lýðs­for­ingja er hvít­liða­her­sveitir höfðu líf­látið. Var ætlun Ólafs að taka dreng­inn að sér og ala hann upp. Fljót­lega eftir kom­una kom það í ljós að dreng­ur­inn var hald­inn næmum, ill­kynj­uðum augn­sjúk­dómi sem óþekktur var í land­inu. Að fengnum til­lögum augn­lækna í Reykja­vík lagði land­læknir til við stjórn­ar­ráðið að pilt­inum yrði bannað að dvelja hér á landi. Skipaði stjórn­ar­ráðið svo fyrir að dreng­ur­inn skyldi fara burt ekki síðar en með gufu­skip­inu „Botníu“, er fara átti fjórum dögum síðar.

Póli­tískar ofsóknir

Eftir að Ólafi hafði verið birt til­kynn­ingin urn að senda ætti rúss­neska pilt­inn af Iandi burt reyndi hann að semja við stjórn­ar­ráðið um styrk handa pilt­inum næstu árin, en án árang­urs. Þann dag er „Botnía“ átti að leggja úr höfn sendi lög­reglu­stjóri yfir­lög­reglu­þjón og tvo lög­reglu­þjóna heim til Ólafs. Er þeir spurð­ust fyrir um dreng­inn svar­aði Ólafur því að hann hefði ekki hug­mynd um hvar hann væri.

Ólafur Frið­riks­son

Máli sínu til stuðn­ings bauð hann lög­reglu­stjór­anum að leita í hús­inu, en því boði var ekki tekið. Yfir­lög­reglu­þjónn­inn hringdi yfir á lög­reglu­stöð og til­kynnti að margir menn væru fyrir utan húsið í þeim til­gangi að hindra lög­regl­una í að ná pilt­inum. Kom það heim og saman við það er Ólafur hafði ritað í Alþýðu­blaðið, en hann var rit­stjóri þess. í greina­skrifum full­yrti hann að um póli­tískar ofsóknir gegn sér væri að ræða en ekki áhuga heil­brigð­is­yf­ir­valda á því að hefta útbreiðslu augn­sjúk­dóms­ins, þar sem þau hefðu engar ráð­staf­anir gert til að ein­angra pilt­inn eða koma honum í sjúkra­hús. Sagði hann meðal ann­ars: „Hér á að fremja hróp­leg rang­indi, og af því ég álít að það eigi að fremja þau á þessum dreng, af því að hann á mig að, þá ætla ég að nota allar aðferðir, og hverja þá, sem hent­ug­ust virð­ist, til að þessi rang­indi verði ekki framin á drengnum.“

Fannst bak­við rúm­gafl

Er lög­reglu­stjóri frétti um ástandið bað hann A.V. Tulinius slökkvi­liðs­stjóra að safna að sér mönnum eftir því sem hægt væri og aðstoða við að ná rúss­neska pilt­inum ef með þyrfti. Safnaði lög­reglu­stjóri 50 mönnurn og slökkvi­liðs­stjóri 15 mönnum. Beið hópur þessi í nánd við hús Ólafs á meðan lög­reglu­stjóri fór heim að hús­inu, ásamt lög­reglu­liði. Hafði lög­reglu­stjóri með­ferðis rétt­ar­úr­skurð fyrir því að gera mætti hús­leit eftir rúss­neska pilt­inum, Er hann hitti Ólaf sagð­ist Ólafur ekki vita hvar pilt­ur­inn væri nið­ur­kom­inn. Las þá lög­reglu­stjóri upp hús­leit­ar­úr­skurð­inn og skip­aði honurn að opna stofu­hurð­irnar fram í for­stofu, sem voru læstar, en Ólafur neit­aði.

Gerð var til­raun til að brjóta upp þakið á húsi Ólafar svo hægt væri að kom­ast inn.

Lög­reglu­stjóri skip­aði þá mönnum þeim er inni í stof­unni voru að opna, en þeir sinntu því ekki og svör­uðu að Ólafur réði því hvort að opnað yrði. Lét lög­reglu­stjóri þá brjóta upp hurð sem var á milli for­stof­unnar og svefn­her­bergis Ólafs og var fyrir innan stór skápur, er dreg­inn hafði verið fyrir hurð­ina. Inni í stof­unni voru 17 menn. Bauð lög­reglu­stjóri mönnum þessum að ganga út og hlýddu þeir því. Hóf lög­reglan þá leit í íbúð­inni og fann dreng­inn eftir langan tíma í fylgsni sem var bak við rúm­gafl hjón­anna og lá þar undir stiga.

„Metum mann­úð­ina meira en hegn­ing­ar­lögin“

Þegar lög­reglan var búin að finna pilt­inn fór Ólafur Frið­riks­son út á tröppur við suð­aust­ur­dyr húss­ins, en þar hafði safn­ast að múgur og marg­menni, og kall­aði hann til fólks­ins: „Nú eru þeir búnir að finna rúss­neska pilt­inn og koma bráðum með hann grát­andi, en við látum hann ekki fara.“ Um líkt leyti fór og Hendrik Ottósson út úr íbúð­inni og lét orð falla um að ekki ætti að líða lög­regl­unni að fara með pilt­inn og sagði hann orð­rétt: „Við metum mann­úð­ina meira en hegn­ing­ar­lögin.“ Rétt á eftir kom Sæmundur Gíslason lög­reglu­þjónn út á tröpp­urnar við suð­aust­ur­dyr húss­ins með dreng­inn. Ekki hafði verið rudd braut fyrir hann í gegnum mann­fjöld­ann eins og ráð­gert hafði verið. Stóð mann­fjöld­inn í þyrp­ingu fast upp við tröpp­urnar. Er Sæmundur kom út þrifu tveir menn, er stóðu sitt hvorum megin við tröpp­urnar, í fætur hans. Til þess að verj­ast falli varð hann að sleppa rúss­neska drengnum og grípa í hand­rið. Var lög­reglu­kylfa tekin af honum og hann bar­inn með henni og sömu­leiðis yfir­lög­reglu­þjónn sem næstur honum gekk. Kona Ólafs fór inn í hús með dreng­inn ásamt Ólafi og nokkrum öðrum mönnum. Gerðu þá lög­reglu­full­trú­inn og tveir lög­reglu­þjónar með honum til­raun til að kom­ast á eftir þeim inn í húsið, en þeim var varnað inn­göngu. Kom annar lög­reglu­þjónn­inn fæti á milli og hurðar og karms­ins, en þá barði Ólafur á fót­inn á honum með steini er kastað hafði verið að utan inn um glugga, svo að lög­reglu­þjónn­inn varð að draga fót­inn til sín og lög­reglan frá að hverfa. Enginn hlaut alvar­leg meiðsli við rysk­ing­arnar.

Sprengdu upp hurð­ina

Ólafur Frið­riks­son skýrði svo frá fyrir rétti að það hefði verið ætlun sín að hafa pilt­inn ekki á heim­il­inu þann 18. nóv­em­ber, þann dag er „Botnía“ átti að leggja úr höfn, heldur fela hann ein­hvers staðar ann­ars staðar en vera sjálfur heima og hafa menn hjá sér til að villa lög­regl­unni sýn. En svo fór að hann fann engan stað er hann vildi láta pilt­inn í og kvaðst hann hafa treyst því að dreng­ur­inn myndi ekki finn­ast þar sem hann var fal­inn. Eftir 18. nóv­em­ber hafði Ólafur vörð manna í húsi sínu dag og nótt. Voru það aðal­lega menn sem til hans komu af sjálfs­dáðum og hétu lið­sinni sínu. Þriðju­dag­inn 22. nóv­em­ber skip­aði stjórn­ar­ráðið skip­stjór­ann á björg­un­ar­skip­inu „Þór“, Jóhann P. Jónsson, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóra og fól honum sér­stak­lega að bæla niður mót­þróa þann gegn lög­reglu­vald­inu sem því hafði verið sýndur. Kvaddi hann marga borg­ara bæj­ar­ins til liðs við sig og fór í broddi lög­reglu­liðs­ins og vara­lög­reglu­liðs þessa mið­viku­dag­inn 23. nóv­em­ber heim til Ólafs Frið­riks­sonar, sem var heima og hafði í kringum sig rúm­lega 20 manna vörð. Var hús Ólafs lokað en Ólafur var í for­stof­unni og nokkrir menn með honum og voru þeir vopn­aðir spýtum. Til­kynnti aðstoð­ar­lög­reglu­stjór­inn Ólafi að hann væri kom­inn til þess að taka hann fastan. Ólafur neit­aði til­mælum um að gefa sig Iög­regl­unni á vald og opna húsið. Tjáði þá aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri Ólafi að hann bæri alla ábyrgð á afleið­ingum þess að óhlýðn­ast skip­un­inni. Lét hann þar næst sprengja upp hurð­ina og fór inn með mönnum sínum. Menn þeir er i hús­inu voru sýndu ekki mót­þróa og létu taka sig fasta „án þess að gjöra sig seka um óskunda á mönnum eða munum“. Voru þeir fluttir í fang­elsi en öllum sleppt að lok­inni lög­reglu­yf­ir­heyrslu, öðrum en Ólafi Frið­riks­syni og Hendrik Ottós­syni. Þeir voru úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald, Ólafur sat inni til 30. nóv­em­ber en Hendrik Ottósson til 29. sama mán­aðar.

Dreng­ur­inn fannst uppi á lofti í hús­inu og var hann fluttur þaðan og hafður í sótt­varn­ar­haldi þar til hann var sendur af landi brott. Ólafur sagði fyrir rétti að hann hefði ekki búist við því að yfir­völd myndu hlut­ast frekar um að taka Natan Fried­mann með valdi vegna sátta­boðs er hann sagð­ist hafa fengið frá stjórn­inni þann 23. nóv­em­ber. Hins vegar hefði hann heyrt að lið­safn­aður hefði verið í bænum og því haft vörð í húsi sínu dag og nótt eftir 18. nóv­em­ber. Ólafur óskaði eftir að bókað yrði eftir sér að hann teldi alla mót­spyrnu gegn lög­reglu og ofbeldi við hana í mál­inu sér að kenna og án hans gjörða myndi henni eng­inn mót­þrói hafa verið sýndur. í dómi auka­réttar Reykja­víkur var einn aðili sýkn­aður, þrír aðilar voru dæmdir til að þola hver um sig fang­elsi við vatn og brauð 3×5 daga. Refsing Hendriks Ott­ós­sonar var ákveðin fang­elsi við vatn og brauð 4×5 daga. Refsing Ólafs Frið­riks­sonar var ákveðin fang­elsi við vatn og brauð 6×5 daga. Refsing aðil­anna þriggja var lækkuð og var ákveðin fang­elsi við vatn og brauð 2×5 daga en refs­ing Ólafs Frið­riks­sonar var ákveðin 8 mán­aða betr­un­ar­hús­vinna. Að öðru leyti var dómur auka­réttar órask­aður.

Nöturleg örlög Natans

Þjóð­vilj­inn fjall­aði einnig um málið á fjöru­tíu ára afmæli atburð­ar­ins, þann 30. nóv­em­ber 1961. Hér fyrir neðan má lesa brot úr þeirri umfjöllun en þar fær íhaldið á bauk­inn en hvít­liðar söfn­uðu pen­ingi handa Natani, sem hann þáði ekki. Þá segir frá nöt­ur­legum örlögum Natans, sem tal­inn er hafa lát­ist í útrým­ing­ar­búðum nas­ista.

Hér er brot úr umfjöllun Þjóð­vilj­ans:

Það er til marks um hræsni íhalds­ins, að það hafði hafið sam­skot til styrktar Nathan Friedman! Og það var sjálfur hvít­liða­flokk­ur­inn, sem hóf þau! Morg­un­blaðið til­kynnti 24. nóv­em­bei’: „Rúss­neski dreng­ur­inn. Flokk­ur­inn, sem tók hann, hefir þegar skotið saman 3000 kr. handa honum og sam­skötum verður haldið áfram. Verður þeim veitt við­taka á skrif­stofu Mbl.“ . Alþýðu­blaðið svarar þessu þannig: „Þetta „mann­úð­ar­verk“!I mun alstaðar mæl­ast eins fyrir, hjá öðrum en óald­ar­flokknum. Þessi pen­inga­plástur er hreint þorp­ara­bragð og sýnir betur en nokkuð annað harð­ýðgi og mis­kunn­ar­leysi, óald­ar­lýðs­ins.“ Að sjálfs­sögðu gat Nathan Friedman ekki anna[ en vísað þessum hræsn­is­fullu mútum á bug: náung­arnir sem hand­tóku hann og stóðu fyrir að brjóta niður allt hans líf, ætl­uðu að sýna „göf­ug­mennsku‘‘ sína með því að rétta honum þessa sömu gömlu 30 pen­inga. Sjálf­sagt hafa þeir marg­faldað hina klass­ísku tölu með hund­rað til þess að sýna jafn­framt ríki­dæmi íslenzks pen­inga­skríls. Fé þetta mun að lokum hafa farið til greiðslu á bif­reiða­leigu og stríðsöli því, sem hernum var úthlutað hvíta dag­inn.

Þann 25. nóv. skrif­aði Nathan Friedman yfir­lýs­ingu, sem birt­ist á þýzku í blöðum Reykja­yíkur dag­inn eftir?. Þar segir m. ~a. (fr.ísl. þýð;):-, „Ég íýsi því yfir, að fé því. sem hvít­lið­arnir hafa safnað handa mér óska ég ekki eftir og mun ég heldur ekki veita við­töku, þar sem ég er eng­inn betl­ari.  Og ég mun ekki hverfa héðan, fyrr en faðir minn og móðir vilja ekki lengur hafa mig. Nathan Friedman.“

Þann 28. nóv­em­ber var dreng­ur­inn fluttur af skynd­ingu mik­illi um borð í „Gullfoss“. Fóst­ur­móðir hans fékk ekki að vita, á hvaða tíma skipið ætti að fara, „þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir, fyrr en á allra síð­ustu stundu, og gat hún því ekki komið öllum fötum hans með eða búið hann út sem hún vildi.“ (Alþbl. 29. nóv.).

Þegar, er dreng­ur­inn kom til Dan­merkur var honum fengin sjúkra­vist á Eyr­ar­sunds­spít­ala. Um miðjan marz 1922 var hann útskrif­aður af spít­al­anum sem alheil­brigður. Sést af því,hversu alvar­leg veik­indi hans hafa verið.

Jón Magn­ús­son, hinn lítt sköru­legi foi’sæt­is­ráð­herra Islands, hafði lofað Ólafi Frið­riks­syni og konu hans því, að þau fengju að ráð­stafa drengnum í Danmörku eins og þau vildu, og munu þau hafa haft í huga að koma honum fyrir hjá venzlafólki frú önnu. Þetta lof­orð sviku íslenzk yfir­völd. Tilmælum af hálfu danskra yfir­valda um að drengnum yrði veitt land­vist­ar­leyfi hér eftir að hann var albata var vísað á bug af Jóni Magn­ús­syni og kump­ánum hans. Var þá drengnum vísað burt úr Danmörku, og kom hann til Sviss í byrjun apríl 1922.

Þar dvald­ist hann um tíma hjá föð­ur­bróður sínum, en sett­ist síðan að í Frakk­landi, og vann fyrir sér sem mynzturteiknari í fata­verk­smiðju. Hann kom öðru sinni til Íslands árið 1931, en festi ekki rætur hér og flutt­ist aftur til Frakk­lands. Síðustu fréttir bár­ust af honum árið 1942, og líkur benda til þess, að nazistar hafi ákveðið honum örlög í Auschwitz, eins og svo mörgum öðrum gyð­ingum. Víst er, að hann lét lífið á styrj­ald­ar­ár­unum. Sigurður Eggerz, sem tók við for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætti eftir að Jón Magn­ús­son hafði siglt sinni póli­tísku fleytu í strand á Öndverðu ári 1922, hélt sömu lít­il­mennsku­stefn­unni í þessu máli og fyr­ir­renn­ari hans. Veitti hann Ólafi og konu hans aldrei neina hjálp til þess að heimta dreng­inn aftur heim til Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni