Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Byrlunar- og símamál Páls slegið út af borðinu: „Embættið telur það hafa uppfyllt skyldur sínar“

Byrlunar- og símamál Páls slegið út af borðinu: „Embættið telur það hafa uppfyllt skyldur sínar“
Páll Stein­grims­son – Rannsókn á byrl­unar- og síma­mál­inu var blásin af.

Rannsókn á síma- og byrl­un­ar­máli Páls Stein­gríms­sonar er lokið en greint er frá því í ítar­legri til­kynn­ingu frá Lög­regluni á Norð­ur­land eystra.

Málið sem rann­sakað hefur verið síðan árið 2021 hefur verið fellt niður en alls fengu sjö rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu. Auk eig­in­konu Páls var um að ræða sex blaða­menn. Þeir eru: Þóru Arn­órs­dóttur þáver­andi rit­stjóra Kveiks, Þórður Snær Júl­í­us­son þáver­andi rit­stjóri Kjarnans, Arnar Þór Ing­ólfs­son þáver­andi blaða­maður Kjarnans, Aðal­steinn Kjart­ans­son þáver­andi blaða­maður Stund­ar­innar, Ingi Freyr Vil­hjálms­son þáver­andi blaða­maður Heim­ild­ar­innar og Arnar Þórisson, yfir­fram­leið­andi Kveiks á RÚV.

Forsaga máls­ins er sú að Páll Stein­gríms­son til­kynnti málið til lög­reglu og taldi að síma sínum hafi verið stolið eftir að honum hafði verið byrlað ólyfjan og hann lá inn á spít­ala. Upp úr gögnum sem feng­ust úr síma Páls voru skrif­aðar fréttir á Kjarn­anum og Stund­inni en miðl­arnir tveir sam­ein­uð­ust síðar. Frétt­irnar snér­ust að mestu leyti um svo­kall­aða skæru­liða­deild Samherja en hún átti að koma höggi á blaða­menn, lista­menn og fleiri.

Hægt er að lesa til­kynn­ingu lög­reglu hér fyrir neðan:

Embætti Lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra hefur tekið ákvörðun um að hætta rann­sókn í máli er varðar meinta byrlun, afritun á upp­lýs­ingum af síma ein­stak­lings og dreif­ingu á kyn­ferð­is­legu myndefni. Brotið var til­kynnt lög­reglu þann 14.05.2021.

Við rann­sókn­ina fengu sjö ein­stak­lingar rétt­ar­stöðu sak­born­ings. Sak­ar­efnið var þrenns­konar og beindust allir þættir að einum sak­born­ingi en einn þáttur að öðrum sak­born­ingum. Hér að neðan er gerð grein fyrir sak­ar­efn­inu.

1. Lík­ams­árás, byrlun, 217. gr. eða 218. gr. almennra hegn­ing­ar­laga. Einn aðili var undir rök­studdum grun um að hafa byrlað brota­þola lyf. Engin gögn í mál­inu gáfu lög­reglu til­efni til að gruna aðra sak­born­inga um að hafa átt þátt í að byrla brota­þola.

2. Brot á 199. gr. a. almennra hegn­ing­ar­laga. Í mál­inu liggur fyrir að sak­born­ingur sem náði síma af brota­þola kveðst hafa afhent fjöl­miðli sím­ann þar sem sím­inn var afrit­aður. Sak­born­ingur vissi þá að í sím­anum var kyn­ferð­is­efni sem ólög­mætt er að dreifa nema með sam­þykki. Sannað er að sak­born­ingur sendi sjálfum sér kyn­ferð­is­legt myndefni úr síma brota­þola. Ekkert liggur fyrir um að þeir aðilar sem með­höndl­uðu sím­ann og efni úr honum eftir að hann var afhentur fjöl­miðlum hafi dreift þessu kyn­ferð­is­lega myndefni.

3. Brot gegn 228. gr. og 229. gr. almennra hegn­ing­ar­laga. Að því er varðar þennan kæru­lið beind­ist rann­sóknin aðal­lega að því að upp­lýsa um hver hefði afritað inni­hald sím­ans sem feng­inn var með þeim hætti sem áður hefur verið lýst. Fram­burður sak­born­ings sem afhenti fjöl­miðlum sím­ann hefur verið stöð­ugur allan tím­ann sem rann­sóknin hefur staðið um að hann hafi afhent fjöl­miðlum sím­ann og þar hafi sím­inn verið afrit­aður. Sak­born­ing­ur­inn hefur einnig verið stöð­ugur í fram­burði um að hafa upp­lýst þá sem tóku við sím­anum hvernig sím­inn væri til kom­inn og hver ætti sím­ann. Í júlí síð­ast­liðnum upp­lýsti sak­born­ingur um að hafa afhent frétta­manni RÚV sím­ann í hús­næði RÚV í Reykja­vík. Sá hafi kallað til annan starfs­mann RÚV sem tók við sím­anum og fór með hann til þriðja aðila sem hann gat ekki upp­lýst um hver hefði verið. Þessir starfs­menn RÚV hefðu verið með sím­ann í sól­ar­hring og sak­born­ingur hefði komið dag­inn eftir á RÚV og fengið sím­ann afhentan aftur.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar eins langt og hún nær eru helstar eft­ir­taldar:

• Það liggur fyrir að einn sak­born­inga ját­aði að hafa sett lyf út í áfengi sem hann færði brota­þola og hann drakk. Nokkrum klukku­stundum síðar veikt­ist brota­þoli alvar­lega. Ekki hefur tek­ist að sanna orsaka­sam­band á milli byrl­unar á lyfjum og veik­inda brota­þola með óyggj­andi hætti. Lög­reglu­stjóra­emb­ættið á Norð­ur­landi eystra telur hátt­sem­ina varða við 217. gr. almennra hegn­ing­ar­laga. Að því gefnu að brotið eigi aðeins undir 217. gr. gæti brotið verið fyrnt sem dóm­stólar hafa þó end­an­legt mat á. Ef hægt væri að sanna orsaka­tengsl milli byrl­unar og veik­inda brota­þola er ekki lík­legt að ákæru­vald­inu tæk­ist að sanna ásetn­ing sak­born­ings til að valda brota­þola þeim skaða sem hann varð fyrir. Þá er vísað til and­legs ástands sak­born­ings á verkn­að­ar­stundu og eft­ir­far­andi veik­indi hans. Af fram­an­greindum ástæðum hefur verið ákveðið að hætta rann­sókn á þessu sak­ar­efni í mál­inu.

• Lög­reglu­stjóra­emb­ættið á Norð­ur­landi eystra telur sak­ar­efnið um að dreifa kyn­ferð­is­legu myndefni af brota­þola sé lík­legt til sak­fellis á hendur einum sak­born­ingi. Brotið felst í því að sak­born­ingur sendi sjálfum sér kyn­ferð­is­legt myndefni af eig­in­manni sínum úr síma hans. Vegna veik­inda sak­born­ings leikur vafi á um hvort hann hafi verið sak­hæfur á verkn­að­ar­stundu. Sak­born­ingur hefur hafnað beiðni um að und­ir­gang­ast sak­hæf­is­mat og því hefur verið ákveðið að hætta rann­sókn á þessum þætti máls­ins.

• Sak­ar­efni sam­kvæmt 228. og 229. gr. alm. hgl. lýtur að brotum á frið­helgi einka­lífs meðal ann­ars með því að hnýs­ast í, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heim­ild­ar­leysi skjölum, gögnum, myndefni, upp­lýs­ingum eða sam­bæri­legu efni um einka­mál­efni við­kom­andi. Þar er afstaða Lög­reglu­stjóra­emb­ætt­is­ins á Norð­ur­landi eystra að allir sak­born­ingar í mál­inu gætu hafa sýnt af sér atferli sem getur flokk­ast undir brot á fram­an­greindum ákvæðum. Sér­stakar aðstæður sem varða einka­hags­muni eða almanna­hags­muni geta gert fram­an­greinda hátt­semi refsi­lausa. Aug­ljósar refsi­leys­is­á­stæður gætu almennt verið þær að aðili hafi verið að skipu­leggja glæp eða játa á sig alvar­legan verknað í einka­gögnum en end­an­legt mat um slíkt liggur hjá dóm­stólum. Rann­sóknin beind­ist hins vegar aðal­lega að því að reyna að upp­lýsa hverjir afrit­uðu sím­ann, hvar og hvernig það var gert. Það liggur fyrir að birtar voru fréttir upp úr einka­gögnum af sím­tæk­inu s.s. tölvu­póstum, skjölum og spjall­þráðum spjall­for­rita.

• Það er mat Lög­reglu­stjóra­emb­ætt­is­ins á Norð­ur­landi eystra að ekki hafi tek­ist að sanna hver afrit­aði sím­ann, hvernig og hver afhenti öðrum upp­lýs­ingar um einka­mál­efni brota­þola. Þeir sem birtu fréttir upp úr gögnum sím­ans fengu rétt­ar­stöðu sak­born­ings auk þeirra sem sannað er að höfðu verið í sam­skiptum við þann sak­born­ing sem afhenti sím­ann til fjöl­miðla. Sak­born­ingar sem störf­uðu hjá fjöl­miðlum neit­uðu að tjá sig hjá lög­reglu og afhentu lög­reglu engin gögn. Það er réttur þeirra sem hafa fengið stöðu sak­born­ings. Lögregla óskaði ekki eftir því við sak­born­inga að þeir upp­lýstu um heim­ild­ar­menn sína enda lá það fyrir frá upp­hafi rann­sóknar hver heim­ild­ar­mað­ur­inn var í máli þessu.

• Það er miður hve langan tíma rann­sóknin tók en gildar skýr­ingar eru á því. Rann­sóknin var engu að síður sam­felld. Veikindi eins sak­born­ings höfðu mikil áhrif á gang rann­sókn­ar­innar sem og ágrein­ingur við sak­born­inga sem töldu sig ekki bera sömu skyldu og aðrir til að gefa skýrslu hjá lög­reglu vegna stöðu sinnar sem blaða­menn. Fjallað var um málið á þremur dóms­stigum, auk þess sem gerðar voru van­hæfis­kröfur á starfs­menn emb­ætt­is­ins sem fjallað var um á tveimur dóms­stigum og töfðu þessi mála­ferli rann­sókn máls­ins mikið. Málið féll ekki undir for­gangs­mál í sam­ræmi við almenn fyr­ir­mæli rík­is­sak­sókn­ara auk þess sem önnur atriði höfðu áhrif á rann­sókn­ar­tím­ann. Ekki tókst að afla full­nægj­andi staf­rænna gagna þar sem þeim hafði verið eytt og rétt­ar­beiðnir sem sendar voru erlendum tölvu­þjón­ustu fyr­ir­tækjum hafa enn ekki skilað árangri. Það liggur fyrir að ekki hefur tek­ist að sanna hver afrit­aði upp­lýs­ingar af síma í einka­eigu og með hvaða hætti þrátt fyrir að vís­bend­ingar séu uppi um það. Af þessum sökum sem og vegna sjón­ar­miða um fyrn­ingu hefur emb­ættið ákveðið að hætta rann­sókn í þessu máli gegn öllum sak­born­ingum.

Emb­ætt­inu er skylt sam­kvæmt saka­mála­lögum að taka til rann­sóknar mál þar sem grunur er um refsi­verða hátt­semi óháð því hver það er sem til­kynnir brot eða er sak­aður um brot. Embættið telur það hafa upp­fyllt skyldur sínar. Aðilum máls hefur verið til­kynnt um mála­lok.

Embætti Lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra veitir ekki frek­ari upp­lýs­ingar um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi