Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tölvuleikir tengja grænlensk börn við umheiminn: „Þau kunnu meira en ég hélt“

Tölvuleikir tengja grænlensk börn við umheiminn: „Þau kunnu meira en ég hélt“
Græn­lensku börnin voru hug­fang­inn í leikja­salnum. Mynd: Atli Már

„Ég hef ekki tölu á því hversu mörg þau eru börnin sem eru búin að koma en þau eru yfir 400,“ segir Stefán Her­berts­son um græn­lensku skóla­börnin sem KALAK – Vina­fé­lag Íslands og Græn­lands og Kópa­vogs­bær hafa í átján ár boðið hingað til lands til þess að læra að synda.

„Við byrj­uðum með ell­efu ára börn en eftir Covid og tveggja ára hlé voru þau þrettán ára þegar þau komu og við höfum haldið okkur við það enda hefur það bara komið miklu betur út.“

Börnin koma frá dreifð­ari byggðum á aust­ur­strönd Græn­lands og dvelja hér í um það bil viku, ganga í skóla í Kópavogi og læra að synda í Salalaug. „Kópa­vogs­bær er nátt­úr­lega helm­ing­ur­inn af þessu verk­efni. Tekur á móti þeim á morgn­ana, sér um sund­kennsl­una og að þau hitti íslenska krakka.“

Þess á milli fer Stefán með þau um víðan völl þar sem margt spenn­andi ber fyrir augu og sumt jafn­vel í fyrsta skipti. Hópurinn sem hélt heim á leið um helg­ina fór til dæmis á hest­bak en slíkar skepnur fyr­ir­finn­ast ekki á aust­ur­strönd­inni. 

„Þegar maður fer að hugsa út í það þá eru öll dýr sem þau þekkja stór­hættu­leg. Það eru bara ísbirnir og eitt­hvað svona en svo koma þau hingað og eru sett á hest­bak og það hefur ekki eitt ein­asta neitað að fara á hest­bak á öllum þessum tíma.“

Krakk­arnir heim­sóttu einnig Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum, skoð­uðu Gullfoss og Geysi og kynntu sér raf­í­þróttir í Arena þar sem eft­ir­vænt­ingin og gleðin skein úr hverju and­liti þegar þau komu inn í stóran spila­sal­inn og fundu sér sæti við leikja­tölvu.

Algleymi í raf­sport­inu

„Þetta er í annað skipti sem þau kíkja í tölvu­leiki og ég held einmitt að þessi hug­mynd að stunda raf­í­þrótt­irnar skipu­lega og kenna þeim á þetta sé alveg upp­lögð teng­ing til þess að reyna að koma þeim í sam­band við íslenska krakka í gegnum leik­ina,“ segir Stefán.

Þegar á raf­í­þrótta­hólm­inn var komið varð strax ljóst að flestir kunnu krakk­arnir eitt­hvað fyrir sér og komu Daníel Sig­ur­vins­syni, yfir­þjálf­ara Arena, skemmti­lega á óvart. „Þau kunnu meira en ég hélt og þegar ég spurði hversu mörg hefðu spilað tölvu­leiki réttu allir upp hönd,“ segir Daníel sem allt eins átti von á krökkum sem hefðu aldrei notað tölvu.

Krakk­arnir komu Daníel þjálf­ara í opna skjöldu og hann komst ekk­ert áfram með þau í Minecraft.

Daníel tók á móti hópnum með glæru­kynn­ingu um hinn vin­sæla leik Minecraft sem síðan stóð þeim opinn í tölvum leikja­sal­ar­ins. Krakk­arnir voru hins vegar snöggir að skipta yfir í aðra leiki sem greini­lega heill­uðu meira. „Á end­anum var eng­inn í Minecraft þannig að ég gerði glæru­kynn­ingu um leik sem eng­inn vildi spila.“

Jørgen Dani­el­sen kenn­ari frá Græn­landi og Stefán Her­berts­son, frá KALAK, nutu aðstoðar Daníels Sig­ur­vins­sonar, yfir­þjálf­ara Arena, þegar kom að því að leið­beina krökk­unum við tölv­urnar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi