Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Morðtilraun í Mosfellsbæ: „Það er eins og við séum komin í sláturhús“

Morðtilraun í Mosfellsbæ: „Það er eins og við séum komin í sláturhús“
Árásin átti sér stað í Mos­fellsbæ – Mynd: Hansueli Krapf

Eins og Mannlíf greindi frá í gær var ráð­ist á ungan mann inn á heim­ili kær­ustu hans í Mos­fells­bænum á aðfara­nótt mið­viku­dags á meðan börn þeirra sváfu í næsta her­bergi en árás­ar­menn­irnir voru tveir. Parið telur að um morð­til­raun sé að ræða. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festi í sam­tali við Mannlíf að hún væri með málið til rann­sóknar en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um það.

Mannlíf ræddi við kær­ustu manns­ins sem ráð­ist var á og sagði hún frá þess­ari hörmu­legu lífs­reynslu sem þau þurftu að ganga í gegnum.

Báðir árásarmennirnir voru vopnaðir

„Við vorum heima á þriðju­dags­kvöldið og fórum snemma að sofa. Vorum bæði þreytt og fórum að sofa um hálf­tíu leytið,“ sagði kærasta manns­ins um árás­ina. „Síðan vakna ég við kveikt ljós inn í her­berg­inu okkar. Karlinn sefur svo­lítið fast og hann vakn­aði ekki við það. Þá sé ég tvo menn komna inn, annar hylur and­lit og er með hettu en ekki hinn. Þeir hjóla strax í hann með vopnum. Þeir voru báðir vopn­aðir. Það var alla­vega kylfa, ég held að það hafi verið skrúf­járn og hamar. Þeir stoppa ekk­ert, þeir negla enda­laust í hann við hlið­ina á mér í rúm­inu. Ég var að reyna að klípa mig því ég var að reyna átta mig á því hvort þetta væri raun­veru­legt eða draumur.“

„Hann sagði mér eftir á að honum leið eins og hann hafi verið að dreyma eitt­hvað fyrst,“ sagði konan og að kær­asti sinn hafi ekki vaknað við fyrstu höggin.

„Síðan vaknar hann og þá reynir hann að smeygja sér undan högg­unum, það er nátt­úru­lega allt í blóði. Það er eins og við séum komin í slát­ur­hús. Hann endar á gólf­inu við lapp­irnar þar sem ég ligg með haus­inn þar sem svala­hurðin er hjá okkur og þeir halda bara ítrekað áfram. Þetta eru ekk­ert fá högg. Þetta var enda­laust og með vopnum. Hann kann að verja sig, sem betur fer, þannig að þetta fór ekki verr. Hann var með hend­urnar á réttum stað.“

Sóttu borvél

„Annar byrjar að „tappa“ í hinn „Jæja, þetta er komið gott“ en segir aldrei neitt,“ sagði konan um árás­ina. „Síðan fara þeir báðir eitt­hvað pínu frá og annar þeirra nær í bor­vél og byrjar að bora í löpp­ina. Ég veit ekki hvort það hafi verið eitt­hvað á henni. Hann nær að sparka henni í burtu. Hinn er eitt­hvað að svip­ast um og ég að biðja þá að stoppa og börnin mín séu í næsta her­bergi og að þetta sé komið gott sama hvað þetta snýst um,“ en að sögn kon­unnar vökn­uðu börn þeirra ekki upp við árás­ina.

„Ég hugs­aði bara „Ég vil að þið farið“ en gat ekki öskrað neitt, ég vildi ekki að stelp­urnar myndu vakna. Einhvern veg­inn endar þetta þannig að hann nær að teygja sig í svala­hurð­ina sem var pínu rifa á og nær að öskra út á svalir og þá hlaupa þeir út. Ég hleyp á eftir þeim og ætla að athuga hvort þeir séu á bíl en ég sá það ekki. Svo fer ég beint inn til stelpn­anna og þær eru ennþá sof­andi. Svo hringi ég í sjúkra­bíl og hann er bara allur í hönki. Þetta var hræði­legt.“

Vita ekki af hverju ráð­ist var á hann

„Sjúkra­bíll kemur og svo kemur löggan. Síðan fara þeir með hann þegar þeir eru búnir að skoða hann á sjúkra­hús og löggan er eftir hjá mér og er að taka myndir af vett­vangi. Síðan þurftum við að bíða eftir rann­sókn­ar­lög­reglu og síðan barna­vernd­ar­nefnd. Við vitum ekki um hvað þetta snýst. Við vitum bæði hver annar aðil­inn er en hann hitti hann sein­ast fyrir hátt í tveimur árum síðan,“ en sögn kon­unnar er lög­reglan búinn að hand­taka annan árás­armann­inn og er það sá sem parið þekkir og er Íslend­ingur. Ekki liggur fyrir hver hinn árás­armað­ur­inn er en upp­haf­legar heim­ildir Mannlífs hermdu að hann væri erlendur en að sögn kon­unnar er ómögu­legt fyrir hana að stað­festa það.

„Lög­reglan til­kynnti mér það að þeir ætl­uðu að eyða öllu sínu púðri í að finna út úr þessu og þeir tækju þessu mjög alvar­lega og þetta sé mjög alvar­legt brot.“

Húsið var merkt með lím­bandi

„Það var búið að setja „teip“ á rúð­una hér fyrir utan, ég veit ekki hvað það þýðir en það var ekki þarna áður. Í kringum nöfnin hjá mér og stelp­unum. Því hann er ekki skráður hér, hann er ekki búsettur hér. Þeir hljóta að hafa fylgst eitt­hvað með til að vera vissir um að hann væri á heim­il­inu og vera vissir um að hann sé sof­andi. Þetta er mjög furðu­legt mál.“

„Þetta er svo mik­ill aum­ingja­skapur að mæta inn á heim­ili þar sem börn eru og þar sem fjöl­skylda býr,“ hélt konan áfram. „Það er ekki það sama og banka upp á og fá aðil­ann að koma tala við sig ef það er eitt­hvað ósætti. Það að mæta með annan mann með sér og vopn þar sem lítil börn búa og konan liggur við hlið­ina á í rúm­inu. Þeir vissu að ég byggi þarna, það stendur á hurð­inni.“

Væri dauður ef hann kynni ekki að verja sig

„Hann er með tæp­lega 30 spor í haus, mest­megnis í and­liti,“ sagði konan aðspurð um áverka kærasta síns eftir árás­ina. „Hann er mjög bólg­inn og hend­urnar á honum eru í takt við það. Ef hann hefði aldrei æft neinar slags­mála­í­þróttir eða kynni ekki að verja sig þá væri hann dauður, það er bara þannig. Ef hann hefði rot­ast þá væri hann dauður, þetta voru það mörg högg en sem betur fer var hann með hend­urnar á réttum stað. Þum­al­putt­inn á vinstri hönd er eins og lækn­ir­inn orð­aði það „mölv­aður.“

„Þum­al­l­inn er í það mörgum pörtum að þeir vita ekki hvað þeir geta gert til að fá sem besta nið­ur­stöðu fyrir hann. Svo er hann píp­ari og þeir geta ekki sagt við okkur að það verði ekki var­an­legur skaði þar sem þetta er rosa­lega mik­ill skaði,“ en parið telur að það eigi að ákæra menn­ina fyrir morð­til­raun og segja að lög­reglan hafi gefið til kynna að það verði gert.

Skuldar ekki neinum pening

Konan við­ur­kenndi þau ættu bæði sína sögu í neyslu en þeim kafla væri löngu lokið og teng­ist ekki neinu slíku.

„Fyrsta sem lög­reglan spyr er hvort að hann gæti eitt­hvað þekkt barns­móður þessa ein­stak­lings, sem hann gerir ekki, og spurði svo hvort hann skuldi pen­ing. Það eina sem hann veit er að það er hvor­ugt af þessu. Af því að það var þannig að á ein­hverjum tíma­punkti þá var það hann sem skuld­aði kærast­anum mínum, það var það eina. Annars var ekk­ert þannig í mynd­inni. Þannig að lög­reglan er að reyna átta sig á því hvað það var sem fékk hann til að halda að hann hafi efni á að gera þetta. Það er eng­inn sem á þetta skilið, ekki einu sinni þótt hann skuld­aði honum 30 millj­ónir en það er ekki einu sinni inn í mynd­inni.“

„Þetta er eins lágt og þú leggst,“ sagði konan að lokum um þessa hræði­legu árás.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi