Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Yazan og fjölskylda fær að vera á Íslandi: „Þetta var tilfinningarík stund“

Yazan og fjölskylda fær að vera á Íslandi: „Þetta var tilfinningarík stund“
Yazan Tamimi Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fyrr í dag fékk hinn ell­efu ára Yazan Tamimi frá Palest­ínu og fjöl­skylda hans sam­þykkta við­bót­ar­vernd hjá Útlend­inga­stofnun.

Vísir hefur eftir lög­manni fjöl­skyld­unnar og hún hafi verið boðuð í við­tal í dag og til­kynnt góðu frétt­irnar. Segir hann að bæði kæru­nefnd útlend­inga­mál og Útlend­inga­stofnun hafi unnið hratt að umsókn­inni.

Það var í júní á síð­asta ári sem Mohsen og Feryal Aburajab Tamimi flúðu til Íslands ásamt syni þeirra, Yazan, sem er með Duchenne vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn. Fjöl­skyldan flúði frá Hebron á Vest­ur­bakk­anum í Palest­ínu vegna versn­andi ástands í land­inu sem og aðkasts yfir­valda. Auk þess var skortur á þjón­ustu á svæð­inu fyrir Yazan.

Brottvísun frestað á síðustu stundu

Í síð­asta mán­uði stóð til að vísa fjöl­skyld­unni úr landi en Yazan var sóttur í Rjóðrið þar sem hann lá í hvíld­ar­inn­lögn, seint að kvöldi og var farið með fjöl­skyld­una á Kefla­vík­ur­flug­völl. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála- og vinnu­mála­ráð­herra bað dóms­mála­ráð­herra um að fresta brott­vís­un­inni, sem gekkst við þeirri beiðni. Í kjöl­farið til­kynnti emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra að fjöl­skyldan yrði ekki vísað frá aftur þar sem of stutt var í að hún ætti rétt á að láta taka umsókn sína til efn­is­legrar með­ferðar en það var 21. sept­em­ber.

„Þetta gekk allt mjög hratt fyrir sig. Þegar þessi tíma­frestur var lið­inn þá opn­aði kæru­nefnd málið um leið. Útlend­inga­stofnun, þeim til hróss, boð­aði þau í við­tal í morgun,“ segir Albert Björn Lúð­vígs­son lög­maður fjöl­skyld­unnar í sam­tali við Vísi og bætti við: „Þetta gerð­ist mjög hratt. Miklu hraðar en gengur og ger­ist.“

Segir hann að í öllum sam­bæri­legum málum hafi Palest­ínu­mönnum verið veitt vernd á grund­velli sjón­ar­miða um við­bót­ar­vernd, sem vísi til almenns ástands í Palest­ínu.

„Þetta er sú vernd sem 97 til 98 pró­sent Palest­ínu­fólks á Íslandi hefur fengið.“

Fjölskyldan í spennufalli

Albert segir fjöl­skyld­una afar glaða en að hún sé einnig í miklu spennu­falli.

„Þau voru hrærð og þetta var til­finn­inga­rík stund. Fyrsta við­kvæði Mohsen, föður Yazan, var að biðja mig um að hjálpa sér að semja bréf til þeirra sem hafa hjálpað þeim á Íslandi.“

Segir hann fjöl­skyld­una hafa farið heim eftir fund­inn þar sem þau ætl­uðu að fagna frétt­unum.

„Þau eru núna örugg á Íslandi. Þau fá tveggja ára dval­ar­leyfi á Íslandi sem þau geta end­ur­nýjað og standa að flestu leyti jafn­fætis öðrum á Íslandi hvað varðar aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu og annarri þjón­ustu.“

Fram úr björtustu vonum

Segir Albert að hraði máls­ins hafi farið fram úr hans björt­ustu vonum.

„Þetta fór fram úr mínum björt­ustu vonum. Ég hafði von­ast til þess að þetta myndi ekki taka margar vikur. Ég hafði ýtt pínu­lítið á kæru­nefnd að klára þetta sem fyrst, sem kæru­nefnd varð við. Ég náði svo ekki einu sinni að óska eftir því að Útlend­inga­stofnun boð­aði þau í við­tal sem fyrst því stofn­unin gerði það að eigin ákvörðun. Þannig þetta gekk mjög hratt fyrir sig.“

Albert segir Útlend­inga­stofnun hafa náð að vinna sig í gegnum umsókn­ar­hal­ann að und­an­förnu, auk þess sem umsókn­unum hafi fækkað á þessu ári.

„Þetta er að sumu leyti það sem er eðli­legt. Fyrir nokkrum árum var boðað hraðar í við­töl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi