Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjarni hangir blóðrisa á nöglunum: „Svandís á þann leik að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni

Bjarni hangir blóðrisa á nöglunum: „Svandís á þann leik að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni
Svandís á leik í stöð­unni sem gæti orðið Bjarna dýr­keyptur.

„Þetta yrði drauma­staða fyrir Bjarna,“ segir Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi ráða­herra, í sam­tali við Mannlíf um þá til­lögu for­sæt­is­ráð­herra að rík­is­stjórn hans sitji fram að kosn­ingum eins og ekk­ert hafi í skorist. Össur segir að með þessu muni Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ná að hluta til baka þeim kjós­endum sem nú hafa snúið baki við honum. Þetta sé reyndar eina lífs­von hans sem for­manns.

„Bjarnin hangir blóð­risa á nögl­unum yfir þver­hnýp­inu. Hans eina von er að rík­is­stjórnin haldi í þess­ari ,mynd og yhann geti farið sínum fram sem for­sæt­is­ráð­herra,“ segir Össur. Hann skrif­aði pistil á Facebook í morgun þar sem hann lýsti því að Svandís Svav­ars­dóttir, for­maðúr VG, geti stöðvað áform Bjarna og þannig bjargað sínum flokki og þá jafn­framt komið höggi á Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra.

„Það er alger­lega á valdi Svan­dísar Svav­ars­dóttur, for­manns VG, hvort Bjarni Bene­dikts­son fær að halda áfram sem for­sæt­is­ráð­herra í þeirri ill­vígu kosn­inga­bar­áttu sem nú fer í hönd. Sjálfur virð­ist hann ganga út frá því sem gefnu. En Svandís – og aðeins hún – á leiki í stöð­unni sem geta fært henni frum­kvæði í tafl­inu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn,“ skrifar Össur.

Hann segir að fjöl­miðlar virð­ist telja að ósk for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof feli sjálf­krafa í sér form­leg stjórn­ar­slit. Í kjöl­farið verði svo starfs­stjórn komið á laggir sem Bjarni leiði sem for­sæt­is­ráð­herra í gegnum kosn­ing­arnar. Þetta sé hins vegar allt annað en sjálf­gefið. Það sé alger­lega undir Svandísi komið.

Rík­is­stjórn Íslands 2024 er í upp­námi.

„Ef VG gerir engan ágrein­ing við áform Bjarna um að óska eftir þing­rofi án þess að biðj­ast lausnar fyrir rík­is­stjórn sína heldur hann því áfram sem for­sæt­is­ráð­herra gegnum kosn­inga­bar­átt­una með öllu því for­skoti sem þyngd emb­ætt­is­ins veitir. Hann mun þá einsog allir aðrir ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa fullt og óskorað vald í sínum mála­flokkum. Vill Svandís það? Tæpast, því það er ekki í þágu hags­muna VG. Svo vill til að hún á völ á öðru. Svandís á nefni­lega þann leik að draga VG form­lega út úr rík­is­stjórn­inni, sem um leið tapar meiri­hluta sínum á Alþingi. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar væri þarmeð fallin. Forseti Íslands verður þá að fara í við­ræður við leið­toga allra flokka og kanna hver þeim finnst best fall­inn til að leiða starfs­stjórn fram­yfir kosn­ing­arnar. Harla ólík­legt er að nið­ur­staðan verði sú að benda á Bjarna Bene­dikts­son,“ skrifar Össur.

Pistill Össurar í heild sinni:Svandís á leik í stöð­unni­Það er alger­lega á valdi Svan­dísar Svav­ars­dóttur, for­manns VG, hvort Bjarni Bene­dikts­son fær að halda áfram sem for­sæt­is­ráð­herra í þeirri ill­vígu kosn­inga­bar­áttu sem nú fer í hönd. Sjálfur virð­ist hann ganga út frá því sem gefnu. En Svandís – og aðeins hún – á leiki í stöð­unni sem geta fært henni frum­kvæði í tafl­inu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þeir hafa þó hvergi komið fram í umfjöllun fjöl­miðla.Fjöl­miðlar virð­ast þannig telja að ósk for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof feli sjálf­krafa í sér form­leg stjórn­ar­slit. Í kjöl­farið verði svo starfs­stjórn komið á laggir sem Bjarni leiði sem for­sæt­is­ráð­herra í gegnum kosn­ing­arnar. Þetta er hins vegar allt annað en sjálf­gefið. Það er alger­lega undir Svandísi komið.Bjarni hefur nefni­lega hvergi sagt, að hann hygg­ist biðj­ast lausnar fyrir rík­is­stjórn sína. Aðeins, að hann muni óska eftir því við Höllu for­seta að hún fall­ist á beiðni hans um þing­rof. Þarmeð yrðu kosn­ingar innan 45 daga. Ósk um þing­rof er hins vegar ekki sjálf­krafa lausn­ar­beiðni fyrir rík­is­stjórn. Það eru tveir form­lega aðgreindir þættir. Ef engin lausn­ar­beiðni berst for­set­anum verður engin starfs­stjórn. Rík­is­stjórnin heldur þá bara áfram í óbreyttu formi.Hún yrði þarmeð ekki háð þeim tak­mörk­unum sem gilda um starfs­stjórnir. Þær fela m.a. í sér ákveðna frið­ar­skyldu þar sem ráð­herrar sinna ein­ungis verkum sem þarf til að halda rík­inu gang­andi uns ný stjórn með þing­meiri­hluta tekur við. Þeim er ekki ætlað að taka neinar ákvarð­anir sem valdið geta ágrein­ingi.Ef VG gerir engan ágrein­ing við áform Bjarna um að óska eftir þing­rofi án þess að biðj­ast lausnar fyrir rík­is­stjórn sína heldur hann því áfram sem for­sæt­is­ráð­herra gegnum kosn­inga­bar­átt­una með öllu því for­skoti sem þyngd emb­ætt­is­ins veitir. Hann mun þá einsog allir aðrir ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa fullt og óskorað vald í sínum mála­flokkum. Vill Svandís það? Tæpast, því það er ekki í þágu hags­muna VG.Svo vill til að hún á völ á öðru. Svandís á nefni­lega þann leik að draga VG form­lega út úr rík­is­stjórn­inni, sem um leið tapar meiri­hluta sínum á Alþingi. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar væri þarmeð fallin. Forseti Íslands verður þá að fara í við­ræður við leið­toga allra flokka og kanna hver þeim finnst best fall­inn til að leiða starfs­stjórn fram­yfir kosn­ing­arnar. Harla ólík­legt er að nið­ur­staðan verði sú að benda á Bjarna Bene­dikts­son.Við mat á þessu hlýtur Svandís einnig að horfa til þess að rík­is­stjórn Íslands er ekki fjöl­skipað stjórn­vald. Hafi for­sæt­is­ráð­herra ekki beðist form­lega lausnar með bréfi til for­seta fyrir ráðu­neyti sitt geta ráð­herrar tekið allar ákvarð­anir sem þeir vilja, svo fremi þær eru innan ramma lag­anna. Í þeim víga­ham sem birt­ist í yfir­lýs­ingum nær allra ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins gagn­vart VG í gær, má taka sem gefnu að þeir muni kosta kapps um að skerpa stöðu sína og ásýnd með ýmsum ákvörð­unum sem ganga þvert á stefnu VG, t.d. í mál­efnum inn­flytj­enda og orku­málum. Vill Svandís gefa Sjálf­stæð­is­flokknum þannig skot­leyfi á VG beint ofan í kosn­ingar?Eftir það sem á undan er gengið, og eftir þau svipu­göng nið­ur­læg­ingar sem Bjarni og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins leiddu Svandísi í gegnum í atburð­ar­rás gær­dags­ins, þá á Svandís því varla annan kost en draga VG form­lega út úr rík­is­stjórn­inni.Geri hún það ekki verður það í annað skiptið, sem VG tryggir Bjarna í stól for­sæt­is­ráð­herra. Hvernig ætlar Svandís Svav­ars­dóttir að útskýra það fyrir þeim kjós­endum á vinstri vængnum sem hún mun biðla til í nauð­vörn næstu kosn­inga?Önnur nið­ur­staða fæli í sér end­an­lega upp­gjöf fyrir Sjálf­stæð­is­flokknum. Hún yrði lík­lega graf­skrift hennar sem for­manns, og jafn­vel VG sem flokks.Svandís á leik í stöð­unni­Það er alger­lega á valdi Svan­dísar Svav­ars­dóttur, for­manns VG, hvort Bjarni Bene­dikts­son fær að halda áfram sem for­sæt­is­ráð­herra í þeirri ill­vígu kosn­inga­bar­áttu sem nú fer í hönd. Sjálfur virð­ist hann ganga út frá því sem gefnu. En Svandís – og aðeins hún – á leiki í stöð­unni sem geta fært henni frum­kvæði í tafl­inu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þeir hafa þó hvergi komið fram í umfjöllun fjöl­miðla.Fjöl­miðlar virð­ast þannig telja að ósk for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof feli sjálf­krafa í sér form­leg stjórn­ar­slit. Í kjöl­farið verði svo starfs­stjórn komið á laggir sem Bjarni leiði sem for­sæt­is­ráð­herra í gegnum kosn­ing­arnar. Þetta er hins vegar allt annað en sjálf­gefið. Það er alger­lega undir Svandísi komið.Bjarni hefur nefni­lega hvergi sagt, að hann hygg­ist biðj­ast lausnar fyrir rík­is­stjórn sína. Aðeins, að hann muni óska eftir því við Höllu for­seta að hún fall­ist á beiðni hans um þing­rof. Þarmeð yrðu kosn­ingar innan 45 daga. Ósk um þing­rof er hins vegar ekki sjálf­krafa lausn­ar­beiðni fyrir rík­is­stjórn. Það eru tveir form­lega aðgreindir þættir. Ef engin lausn­ar­beiðni berst for­set­anum verður engin starfs­stjórn. Rík­is­stjórnin heldur þá bara áfram í óbreyttu formi.Hún yrði þarmeð ekki háð þeim tak­mörk­unum sem gilda um starfs­stjórnir. Þær fela m.a. í sér ákveðna frið­ar­skyldu þar sem ráð­herrar sinna ein­ungis verkum sem þarf til að halda rík­inu gang­andi uns ný stjórn með þing­meiri­hluta tekur við. Þeim er ekki ætlað að taka neinar ákvarð­anir sem valdið geta ágrein­ingi.Ef VG gerir engan ágrein­ing við áform Bjarna um að óska eftir þing­rofi án þess að biðj­ast lausnar fyrir rík­is­stjórn sína heldur hann því áfram sem for­sæt­is­ráð­herra gegnum kosn­inga­bar­átt­una með öllu því for­skoti sem þyngd emb­ætt­is­ins veitir. Hann mun þá einsog allir aðrir ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa fullt og óskorað vald í sínum mála­flokkum. Vill Svandís það? Tæpast, því það er ekki í þágu hags­muna VG.Svo vill til að hún á völ á öðru. Svandís á nefni­lega þann leik að draga VG form­lega út úr rík­is­stjórn­inni, sem um leið tapar meiri­hluta sínum á Alþingi. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar væri þarmeð fallin. Forseti Íslands verður þá að fara í við­ræður við leið­toga allra flokka og kanna hver þeim finnst best fall­inn til að leiða starfs­stjórn fram­yfir kosn­ing­arnar. Harla ólík­legt er að nið­ur­staðan verði sú að benda á Bjarna Bene­dikts­son.Við mat á þessu hlýtur Svandís einnig að horfa til þess að rík­is­stjórn Íslands er ekki fjöl­skipað stjórn­vald. Hafi for­sæt­is­ráð­herra ekki beðist form­lega lausnar með bréfi til for­seta fyrir ráðu­neyti sitt geta ráð­herrar tekið allar ákvarð­anir sem þeir vilja, svo fremi þær eru innan ramma lag­anna. Í þeim víga­ham sem birt­ist í yfir­lýs­ingum nær allra ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins gagn­vart VG í gær, má taka sem gefnu að þeir muni kosta kapps um að skerpa stöðu sína og ásýnd með ýmsum ákvörð­unum sem ganga þvert á stefnu VG, t.d. í mál­efnum inn­flytj­enda og orku­málum. Vill Svandís gefa Sjálf­stæð­is­flokknum þannig skot­leyfi á VG beint ofan í kosn­ingar?Eftir það sem á undan er gengið, og eftir þau svipu­göng nið­ur­læg­ingar sem Bjarni og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins leiddu Svandísi í gegnum í atburð­ar­rás gær­dags­ins, þá á Svandís því varla annan kost en draga VG form­lega út úr rík­is­stjórn­inni.Geri hún það ekki verður það í annað skiptið, sem VG tryggir Bjarna í stól for­sæt­is­ráð­herra. Hvernig ætlar Svandís Svav­ars­dóttir að útskýra það fyrir þeim kjós­endum á vinstri vængnum sem hún mun biðla til í nauð­vörn næstu kosn­inga?Önnur nið­ur­staða fæli í sér end­an­lega upp­gjöf fyrir Sjálf­stæð­is­flokknum. Hún yrði lík­lega graf­skrift hennar sem for­manns, og jafn­vel VG sem flokks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi