Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórgunnur Oddsdóttir um þjóðarmorðið á Gaza: „Anna Frank er mætt í gasklefann með beina útsendingu“

Þórgunnur Oddsdóttir um þjóðarmorðið á Gaza: „Anna Frank er mætt í gasklefann með beina útsendingu“
Þór­gunnur Odds­dóttir. Mynd: Facebook

Þór­gunnur Odds­dóttir skrif­aði gríð­ar­sterkan pistil á Facebook í gær sem vakið hefur geig­væn­leg við­brögð les­enda. Umfangs­efni pistils­ins er það þjóð­ar­morð sem mann­kynið verður vitni að á hverjum ein­asta degi, án þess að nokkuð sé gert í því að stöðva það.

„Hugsið ykkur ef Anna Frank hefði átt snjall­síma.

Í stað þess að skrifa um líf sitt í dag­bók hefði hún deilt því með umheim­inum jafn­óðum. Og ekki bara hún – heldur þús­undir ann­arra gyð­inga.“ Þannig hefst magn­þrung­inn pist­ill Þór­gunnar Odds­dóttur, fyrrum þátta­stjórn­anda Landans á RÚV, sem hún birti á Facebook í gær en honum hefur verið deilt yfir 500 sinnum og yfir 500 manns hefur líkað við hana.

Þór­gunnur heldur áfram:

„Hugsið ykkur ef við hefðum fylgst með því á instagram þegar fólkið var rekið upp í lest­irnar sem flutti það til Auschwitz.Hefðum við ekki gert eitt­hvað?Kannski ekki alveg strax. Það tekur jú tíma að melta svona og átta sig á því hvað er að ger­ast. En hefðum við ekki brugð­ist við þegar mynd­böndin úr gasklef­unum fóru að birt­ast?Ég lærði um hel­för­ina í grunn­skóla og taldi mér trú um að svona lagað gæti ekki gerst aftur.

Um tví­tugt heim­sótti ég dráps­velli Rauðu Kmeranna í Kambódíu og sann­færði sjálfa mig um að svona lagað gæti ekki gerst aftur. Ég fór líka í bíó og sá Hótel Rúanda og var enn nógu ung og vit­laus til þess að halda að svona lagað gæti ekki gerst aftur. Við værum komin lengra. Mann­kynið hefði lært af reynsl­unni.“

Segir Þór­gunnur enn­fremur að sögu­skýr­ingin á þessum hryll­ings­verkum for­tíðar væri röng.

„Sögu­skýr­ingin var líka ein­hvern veg­inn á þá leið að hryll­ing­ur­inn í Auschwitz hefði ekki orðið fólki almenni­lega ljós fyrr en eftir að stríð­inu lauk. Að litlar fréttir hefðu borist frá Kambódíu og þess vegna hefði þetta fengið að grass­era svona lengi. Sama með Rúanda.Þannig að í sak­leysi mínu hélt ég að ef umheim­ur­inn hefði bara gert sér almenni­lega grein fyrir því sem var að ger­ast, fengið frétt­irnar fyrr þá hefði verið hægt að stöðva hryll­ing­inn.

Ó hvað ég var vit­laus! Nú veit ég betur.“

ÞVí næst segir Þór­gunnur frá því að hún hafi í heilt ár fylgst með þjóð­ar­morð­inu á Gaza:

„Í heilt ár hef ég fylgst með hörm­ung­unum á Gaza í sím­anum mínum. Ég þarf ekki einu sinni að kveikja á sjón­varps­frétt­unum eða opna blöðin eins og í gamla daga. Ég kíki kannski bara á instagram í bið­röð­inni í Bónus og sé sund­ur­tætt lík í húsa­rústum á Gaza. Ég opna facebook meðan ég sit á bið­stof­unni hjá tann­lækn­inum og sé for­eldra eins og mig hlaupa um í örvænt­ingu með lík barn­anna sinna í fang­inu. Ég skrolla aðeins áður en ég fer að sofa og sé fyr­ir­bura sem eru skildir eftir á mann­lausum spít­ala til að deyja.Og í morgun þegar ég var búin að draga son minn bros­andi á sleða í leik­skól­ann í morg­un­kyrrð­inni ristaði ég mér brauð og opn­aði instagram. Það fyrsta sem ég sá var mynd­skeið frá Gaza, frá því í nótt, þar sem fólk í tjald­búðum var brennt lif­andi.Já brennt lif­andi!

Og hér sat ég, uppi á litla Íslandi, með fullan munn af rist­uðu brauði og horfi á þennan við­bjóð örfáum klukku­stundum eftir að hann átti sér stað. Þetta popp­aði bara upp inn á milli sætra barna­mynda og kaupóðra áhrifa­valda á instagram.“

Að lokum ímyndar hún sér Önnu Frank með far­sím­ann á lofti:

„Anna Frank er mætt í gasklef­ann með beina útsend­ingu. Hún er búin að standa þar hróp­andi með sím­ann á lofti í heilt ár og sýna okkur allt! Allan hryll­ing­inn. Í beinni! Við erum öll með þessa útsend­ingu í vas­anum. Í lóf­anum, í and­lit­inu öllum stundum. En samt heldur við­bjóð­ur­inn áfram.Bara meira gas, meira gas!Og ein­hvers staðar í bak­grunni heyr­ist ógreini­legur ómur af „Aldrei aftur, aldrei aftur”.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi