Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halla boðar til kosninga: „Virkt lýðræði krefst skoðanaskipta“

Halla boðar til kosninga: „Virkt lýðræði krefst skoðanaskipta“
Halla Tóm­as­dóttir for­seti Íslands

Halla Tóm­as­dóttir hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu sem snýr að beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof en í henni stað­festir for­set­inn þing­rof og verður því boðað til kosn­inga 30. nóv­em­ber.

Hægt er að lesa yfir­lýs­ingu Höllu hér fyrir neðan:

Í gær lagði Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra fram til­lögu um þing­rof.
Ég tók við þeirri til­lögu en gaf mér jafn­framt tíma og svig­rúm til að
gaum­gæfa stöð­una. Ég hef nú rætt við for­menn sam­starfs­flokk­anna í
rík­is­stjórn og við for­menn ann­arra þing­flokka og kannað hug þeirra til
þing­rofs og kosn­inga. Nú í morgun ræddi ég jafn­framt við for­seta
Alþingis. Að loknum þeim sam­tölum met ég stöð­una svo að
heilla­væn­leg­ast sé fyrir þing og þjóð að gengið verði til kosn­inga.

Því hyggst ég fall­ast á þá til­lögu for­sæt­is­ráð­herra að þing verði rofið.
Samkvæmt 24. grein stjórn­ar­skrár skal boða til kosn­inga áður en 45 dagar
eru liðnir frá form­legri til­kynn­ingu um þing­rof. Á næsta fundi Alþingis,
fimmtu­dag­inn 17. októ­ber, verður þing­rof til­kynnt og fara kosn­ingar fram
30. nóv­em­ber næst­kom­andi.

For­sæt­is­ráð­herra gekk á minn fund hér á Bessa­stöðum í dag og baðst
lausnar fyrir sig og rík­is­stjórn sína. Ég hef fall­ist á þá lausn­ar­beiðni hans.
Í sam­ræmi við stjórn­skip­un­ar­venju bað ég frá­far­andi rík­is­stjórn að sitja
áfram sem starfs­stjórn uns tek­ist hefur að mynda nýja rík­is­stjórn.
Frum­skylda mín sem for­seta er að tryggja að í land­inu sé starf­hæf
stjórn. Rík­is­stjórn sem beðist hefur lausnar situr sem starfs­stjórn til
bráða­birgða. Í því felst að hún gegnir þeim störfum sem nauð­syn­leg eru
við dag­lega stjórn lands­ins. Þingmenn halda umboði sínu til kjör­dags og
geta því lokið mik­il­vægum málum sem fyrir þing­inu liggja.

Senn göngum við til kosn­inga. Ég vil af því til­efni beina þeirri ósk til
þings og þjóðar að við vöndum okkur í sam­tal­inu sem fram undan er og
varðar fram­tíð þess­arar þjóðar. Virkt lýð­ræði krefst skoð­ana­skipta og í
heil­brigðu sam­fé­lagi getum við öll skipst á skoð­unum með virð­ingu,
mennsku og heið­ar­leika að leið­ar­ljósi.

Kosn­inga­bar­átta er nú í reynd hafin og vil ég leyfa því lýð­ræð­is­lega
ferli að hafa sinn gang án afskipta for­seta. Ég mun því ekki svara
spurn­ingum fjöl­miðla í dag. Þakka ykkur fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi