Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bíður sig óvænt fram fyrir Samfylkinguna: „Staðreyndin sú að Sjálfstæðisflokkurinn hefur þrengst“

Bíður sig óvænt fram fyrir Samfylkinguna: „Staðreyndin sú að Sjálfstæðisflokkurinn hefur þrengst“
Hannes S. Jónsson. Mynd: Aðsend.

Hannes S. Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands (KKÍ) býður sig fram í annað efstu sæta í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir Sam­fylk­ingu fyrir kom­andi kosn­ingar. Yfir­gefur hann þannig Sjálf­stæð­is­flokk­inn að fullu en hann bauð sig fram fyrir flokk­inn árið 2014.

Hannes skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann til­kynnti ákvörðun sína að bjóða fram krafta sína fyrir Sam­fylk­ing­una í kom­andi alþing­is­kosn­ingum. Segist hann vita að sumum komi þetta á óvart þar sem hann hafði boðið fram krafta sína undir merkjum Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2014 en seg­ist hafa í raun verið land­laus krati: „Það má kannski segja að ég hafi verið land­laus krati í flokki sem ég var á báðum áttum með hvort ég ætti heima í eða ekki.“ Segir hann nokkuð síðan hann yfir­gaf Sjálf­stæð­is­flokk­inn og segir ástæð­una vera þá að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi „þrengst á meðan Sam­fylk­ingin hefur breikkað og opnað faðm­inn.“

Hér má lesa til­kynn­ingu Hannesar í heild sinni:

„Kæru vinir nær og fjær!

Eftir all­margar áskor­anir und­an­farið ár hef ég tekið þá ákvörðun að bjóða fram krafta mína fyrir Sam­fylk­ing­una. Ég gef kost á mér á fram­boðs­lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í kosn­ing­unum 30. nóv­em­ber næst­kom­andi og sæk­ist ég eftir því að vera í öðru af tveimur efstu sætum list­ans.

Ég veit að sumum kemur á óvart að ég sem einu sinni studdi Sjálf­stæð­is­flokk­inn og tók þátt í starfi hans styðji nú Sam­fylk­ing­una og bjóði fram krafta mína núna fyrir þann flokk. Það má kannski segja að ég hafi verið land­laus krati í flokki sem ég var á báðum áttum með hvort ég ætti heima í eða ekki. Núna er nokkuð síðan að ég sagði skilið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Og stað­reyndin er ein­fald­lega sú að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur þrengst á meðan Sam­fylk­ingin hefur breikkað og opnað faðm­inn.

Með nýrri for­ystu Sam­fylk­ingar hefur flokk­ur­inn hrist upp í póli­tík­inni og fært jafn­að­ar­flokk­inn aftur nær fólk­inu í land­inu. Ég tel að við sem þjóð þurfum á traustri for­ystu að halda á þessum tímum sem við lifum. Sam­fylk­ingin býður upp á opin­ská stjórn­mál og nýtt upp­haf fyrir Ísland.

Ég hef mikla trú á sam­fé­lagi okkar og íslenskri þjóð en einnig er mikið sem þarf að laga og bæta. Ég tel að með reynslu minni úr körfu­bolt­anum og íþrótta­hreyf­ing­unni, þar sem mis­mun­andi skoð­anir eru leiddar til lykta með sam­tali, sam­vinnu og sam­starfi, þá geti ég komið með ferska vinda inn á Alþingi Íslend­inga. Stjórn­mála­fólk þarf að vinna saman og miðla málum til að taka ákvarð­anir og velja bestu leið­ina áfram fyrir land og þjóð.

Mín helstu áherslu­mál eru eft­ir­far­andi:

  • að vera full­trúi fólk­ins – ég lít á þing­mennsk­una sem þjón­ustu­hlut­verk við almenn­ing og alla íbúa Norð­vest­ur­kjör­dæmis,
  • íþróttir og æsku­lýðs­mál,
  • mál­efni unga fólk­ins okkar í dag á víðum grunni,
  • heil­brigð­is­mál – ekki síst jafnt aðgengi óháð búsetu,
  • sam­göngu­mál
  • og að vera traustur full­trúi Norð­vest­ur­kjör­dæmis, eiga virkt sam­tal við fólkið í kjör­dæm­inu og finna leið til að geta verið í sem mestum sam­skiptum við sem flesta á svæð­inu á hverju tíma.

Ég er stoltur af því að búa í landi þar sem við fáum að skipt­ast á skoð­unum og kjósa þann flokk og ein­stak­linga sem við teljum best til þess fallna á hverjum tíma að leiða þjóð­ina áfram.

Við Sam­fylk­ing­ar­fólk stefnum á að ná inn tveim þing­mönnum að lág­marki hér í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og þurfum því á stuðn­ingi þínum að halda til að breyt­ingar verði á stjórn lands­ins.

Ég er afar þakk­látur fjöl­skyldu minni og nán­asta vina­hring fyrir ráð­gjöf, spjall og pæl­ingar und­an­farna mán­uði varð­andi þessi næstu skref hjá mér á póli­tíska svið­inu.

Ég er til þjón­ustu reið­bú­inn fyrir Ísland, fólkið í land­inu og hlakka til að vinna að hags­munum okkar íbúa Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Með kærri kveðju

Hannes S.Jónsson“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi