Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir mælinn hafa fyllst fyrir löngu síðan: „Ísraelsríki er vitfirrt og í stjórnlausu drápsæði“

Segir mælinn hafa fyllst fyrir löngu síðan: „Ísraelsríki er vitfirrt og í stjórnlausu drápsæði“
Kristinn Hrafns­son

„Ísrael hefur stimplað sig út úr sam­fé­lagi þjóða. Það á að koma fram við alla full­trúa lands­ins með það að leið­ar­ljósi. Útlaga­ríki (e. rouge states) var hug­tak áður ein­göngu notað um alræð­is­ríki en með góðum rökum má yfir­færa það yfir á lýð­ræð­is­ríki. Í lýð­ræð­is­ríki er aukin sam­á­byrgð allra lands­manna á verkum rík­is­valds­ins, nokkuð sem ekki er til staðar í alræð­is­ríki.“ Þetta segir Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks í upp­hafi Facebook-færslu sem hann birti í dag.

Í færsl­unni talar Kristinn tæpitungu­laust um stríðs­glæpi ísra­el­skra stjórn­valda og bendir á hversu skamm­laus og ein­beittur brota­vilji þeirra sé.

„Óhæfu­verk Ísra­el­skra stjórn­valda með beit­ingu her­valds eru óum­deild. Glæpir gegn alþóða­sátt­málum um mann­rétt­indi og fram­gang í stríðs­rekstri eru orðnir að langri saka­skrá sem bæt­ist við á degi hverjum. Verið er að rann­saka hjá Alþjóða­dóm­stólnum brot gegn sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna um þjóð­ar­morð. Hver sem les þann samn­ing sér að ærin sönn­un­ar­gögn liggja fyrir, til að sak­fella ríkið.Sérstaða Ísraela þegar kemur að stríðs­glæpum og þjóð­ar­morði er ein­beittur skamm­laus brota­vilji sem birt­ist í áfergju í að birta opin­ber­lega sann­anir fyrir eigin óhæfu­verkum.“

Bendir Kristinn á þá stað­reynd að hrotta­legir glæpir hers­ins birt­ist iðu­lega á sam­fé­lags­miðlum her­manna sem virð­ast stoltir af verkum sínum:

„Það er með stolti og jafn­vel hlátri sem sam­fé­lags­miðlar hafa verið upp­fullir af mynd­böndum og frá­sögnum af rústun íbúð­ar­byggða, spreng­ingu sjúkra­húsa og skóla, aftökum á óvopn­uðu fólki, jafn­vel börnum, af leyniskyttum og pynt­ingar á föngum. Þá liggur fyrir stað­fest af óháðum aðilum að blaða­menn hafa verið sigtaðir út og drepnir. Að minnsta kosti 130 blaða­menn og starfs­menn fjömiðla liggja í valnum. Hjálp­ar­starfs­menn sem hafa reynt að aðstoða hungr­aða og hrjáða almenna borg­ara hafa verið strá­felldir auk þess sem sprengju­árásir hafa verið gerðar á vöru­hús og bíla­lestir hjálp­ar­starfs­manna. Alls hafa 230 starfs­menn Sam­ein­uðu þjóð­anna fallið. Á engu átaka­svæði fyrr hafa sam­tökin þolað slíkt mann­fall.“

Segir rit­stjór­inn að Ísra­els­stjórn hafi „sér­stak­lega beint hatri sínu að“ Sam­ein­uðu þjóð­unum og nefnir dæmi:

„Ísra­els­stjórn hefur sér­stak­lega beint hatri sínu að sam­tök­unum. Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra hefur staðið í púlti Alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York og öskrað að bygg­ingin sé fyr­ir­lit­legt hýbýli myrkra afla og fen gyð­inga­hat­urs. Sendi­herra lands­ins hjá Sameinðu þjóð­unum stóð í sama púlti og setti stofnsátt­mála sam­tak­ana í papp­írstæt­ara og lýsti því yfir að það ætti að þurrka höf­uð­stöðv­arnar af yfir­borði jarðar. Utan­rík­is­ráð­herra Ísraels réðst vægð­ar­laust að aðal­rit­ara Sam­ein­uðu þjóð­anna, bann­aði honum að heim­sækja landið og lýsti hann „per­sona non grata“. Nýjasti skot­spónn­inn eru starfs­menn Sameinðu þjóð­anna við frið­ar­gæslu í Líbanon.“

Að lokum segir Kristinn frá þeim við­brögðum sem hann vilji að þjóðir heims komi með vegna óhæfu­verka Ísraela:

„Það þýðir ekki að tala tæpitungum. Ísra­els­ríki er vit­firrt og í stjórn­lausu dráp­sæði. Eina rök­rétta við­bragðið er að ein­angra eins og mögu­legt er þetta mein. Það eiga engin við­skipti að vera við landið (síst af öllu vopna­sala og rétt að minna á að sá sem styður ger­anda þjóð­ar­morðs með slíkum hætti er sam­sekur að alþjóða­lögum). Það eiga engin sam­skipti að vera við slík ríki á neinu sviði (já íþróttir og menn­ing eru þar undir). Það á að setja ferða­bann á alla með ísra­elskt vega­bréf. Það á að slíta stjórn­mála­sam­bandi við ríkið. Það á að vísa Ísrael úr Sam­ein­uðu þjóð­unum. Grein 6 í sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna segir skýrum orðum að vísa megi ríki úr sam­tök­unum ef þau ganga linnu­laust í ber­högg við grunn­gildi samn­ings­ins (þessum sem full­trúi rík­is­ins setti í papp­írstæt­ara). Það hefur aldrei fyrr gerst þó að það hafi staðið nærri í til­felli Suður-Afríku.Mælirinn er fullur. Hann fyllt­ist fyrir löngu síðan. Nú þarf að bregð­ast við með aðgerðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi