Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sverrir Einar: „Nauðsynlegt að borgarar þurfi ekki að óttast óréttmætar aðgerðir lögreglu“

Sverrir Einar: „Nauðsynlegt að borgarar þurfi ekki að óttast óréttmætar aðgerðir lögreglu“
Sverrir Einar Eiríks­son.

„Ég hef ákveðið að deila með ykkur bréfi frá rík­is­sak­sókn­ara þar sem ákvörð­unin um nið­ur­fell­ingu máls­ins gegn mér er rök­studd ítar­lega. Þetta er gert til að tryggja að allir fái réttar upp­lýs­ingar um málið og að frétta­flutn­ingur byggi á stað­reyndum. Ég vona að þið kynnið ykkur vel efni bréfs­ins áður en frek­ari umfjöllun fer fram. Ég hvet til þess að málið sé skoðað út frá þeim ítar­lega rök­stuðn­ingi sem rík­is­sak­sókn­ari hefur veitt, til að tryggja að umfjöllun verði eins sann­gjörn og nákvæm og kostur er. Virð­ing­ar­fyllst, Sverrir Einar Eiríks­son.“

Hér á eftir er frétta­til­kynn­ingin frá Sverri í heild sinni sem og bréf rík­is­sak­sókn­ara:

„Þann 18. sept­em­ber 2023 sendi lög­maður minn, Sveinn Andri Sveins­son, inn kvörtun til Nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu (NEL) vegna ólög­mætrar hand­töku og óeðli­legra afskipta lög­reglu af veit­inga­staðnum mínum, B5, þann 17. sept­em­ber sama ár.

Í kjöl­far þess­ara kvart­ana brást lög­reglan við með því að kæra mig fyrir að tálma störf þeirra og ráð­ast á lög­reglu­þjón.

Bæði Hér­aðs­sak­sókn­ari og Rík­is­sak­sókn­ari vís­uðu kærunni frá sem til­hæfu­lausri.

Það kemur skýrt fram á mynd­bands­upp­tökum frá atvik­inu að ég hvorki hindr­aði störf lög­reglu né réðst á lög­reglu­mann. Myndefnið sýnir að ég beygi mig niður með hendur í vösum til að heyra hvað lög­reglu­mað­ur­inn hafði að segja.

Eftir að Rík­is­sak­sókn­ari felldi málið niður þann 19. októ­ber 2024, með ítar­legum rök­stuðn­ingi, hef ég lagt fram form­lega kæru á hendur lög­reglu­manni nr. 2020 fyrir rangar sak­ar­giftir. Ég hef einnig kvartað yfir störfum þessa lög­reglu­manns til NEL og sent bréf til þing­manna þar sem ég hvet til þess að nefndin verði efld til að koma í veg fyrir að sam­bæri­leg atvik end­ur­taki sig. Það er nauð­syn­legt að borg­arar þurfi ekki að ótt­ast órétt­mætar aðgerðir lög­reglu.

**Ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga sem brotin voru**

Ég tel að hegðun lög­reglu­manns nr. 2020 brjóti gegn eft­ir­far­andi ákvæðum almennra hegn­ing­ar­laga:

1. **Rangar sak­ar­giftir (148. gr.)** – Í 148. grein almennra hegn­ing­ar­laga segir að hver sá sem vís­vit­andi leggur fram rangar eða vill­andi sak­ar­giftir til þess að valda öðrum ámæli eða refs­ingu, getur átt yfir höfði sér refs­ingu. Með því að gefa rangar upp­lýs­ingar í lög­reglu­skýrslu reyndi lög­reglu­mað­ur­inn að skapa falskt saka­mál gegn mér, sem brýtur alvar­lega gegn grund­vall­ar­reglum um sann­girni og rétt­læti í störfum lög­reglu.

2. **Rangt vitni (142. gr.)** – Ef lög­reglu­maður gefur falskan vitn­is­burð fyrir dóm­stólum eða í opin­berri rann­sókn, er það brot á 142. grein. Rangar upp­lýs­ingar sem lög­reglu­mað­ur­inn setti fram í skýrslu sinni leiddu til rangrar máls­með­ferðar og alvar­legs rétt­ar­brests.

3. **Mis­notkun á valdi (131. gr.)** – Samkvæmt 131. grein getur lög­reglu­maður verið refsað ef hann mis­notar vald sitt í starfi. Með því að leggja fram rangar sak­ar­giftir braut lög­reglu­maður nr. 2020 gegn grund­vall­ar­reglum um sann­girni og rétt­læti. **Áætlanir um frek­ari kærur** Ég íhuga nú að leggja fram frek­ari kærur vegna ann­arra aðgerða lög­reglu, þar á meðal ólög­mætrar inn­sigl­unar á Exit, sem var fram­kvæmd í lok apríl á þessu ári. Þetta ferli hefur verið mjög þung­bært, og það er erfitt að skilja hvers vegna lög­reglan hefur beitt mig svona harka­legum aðgerðum. Ég krefst þess að tekið verði á vald­níðslu og órétt­læti í starf­semi lög­reglu og að stjórn­völd tryggi aukið eft­ir­lit með störfum hennar til að koma í veg fyrir að slík mál end­ur­taki sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi