Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Farþegi lést er risaalda skall á skemmtiferðaskipi – MYNDBÖND

Farþegi lést er risaalda skall á skemmtiferðaskipi – MYNDBÖND

Farþegi um borð í skemmti­ferða­skipi lést og meira en 100 aðrir slös­uð­ust eftir að níu metra há alda skall á skip­inu, sam­kvæmt skýrslu sem var að koma út.

Spirit of Discovery-skipið var á ferð aftur til Bret­lands með­fram Bisk­a­jaflóa (eða Fetla­firði) þann 4. nóv­em­ber 2023 þegar skipið varð fyrir óveð­ursvindum. Átta manns voru upp­haf­lega fluttir á sjúkra­hús þegar skipið kom til Portsmouth, Hamps­hire.

Farþegar sögðu á þeim tíma frá því hvernig þeir þurftu að „halda dauða­haldi“ í það sem var næst þeim þegar veð­ur­ham­urinn skall á lúx­us­bátnum. Nú hefur bráða­birgða­skýrsla sjó­slysa­rann­sókn­ar­deildar (MAIB) nú leitt í ljós að einn far­þeg­anna sem voru með­höndl­aðir á sjúkra­húsi hafi lát­ist síðar af sárum sínum.

Rúður brotn­uðu og hlutir flugu á gólfið.

Áður en vind­ur­inn barði á skip­inu þurfti Spirit of Discovery, rekið af Saga Cruises, að hætta við heim­sókn til Las Palmas de Gran Canaria á Gran Canaria-eyju þar sem veðrið versn­aði og var þess í stað beint í átt að La Corona á Spáni, þegar höfn­inni var lokað vegna aðstæðna.

Í nýju skýrsl­unni kemur fram að 943 far­þegar og 503 áhafn­ar­með­limir hafi verið um borð þegar skipið, sem hafði siglt frá Puerto del Rosario á Fuer­teventura á Kanarí­eyjum, stóð frammi fyrir stormi upp á 64-72 metra á sek­úndu og öldu­hæð upp á níu metra.

Í skýrslu MAIB segir: „Um kl. 12:30 þann 4. nóv­em­ber 2023 missti far­þega­skipið Spirit of Discovery vél­ar­afl í miklu óveðri þegar það fór yfir Bisk­a­jaflóa. Þetta leiddi til þess að skipið hreyfð­ist kröft­ug­lega á meðan áhöfnin end­ur­ræsti skipið. Vél­araflsvand­inn, storm­ur­inn og miklar hreyf­ingar skips­ins héldu áfram þar til morg­un­inn eftir þegar Spirit of Discovery gat haldið áfram ferð sinni. Á þessu tíma­bili slös­uð­ust yfir 100 far­þegar. Átta voru fluttir alvar­lega slas­aðir beint á sjúkra­hús við kom­una til Portsmouth á Englandi, einn þeirra lést síðar af sárum sínum.“

Skýrslan heldur áfram: „Í rann­sókn MAIB voru allir þættir slyss­ins skoð­aðir til að ákvarða orsakir og aðstæður þess að Spirit of Discovery tap­aði vél­ar­afli í óveðr­inu, við­bragða um borð, þar á meðal grein­ingu á fyr­ir­hug­aðri ferð skips­ins, und­ir­bún­ings fyrir sigl­ingu skips­ins í óveðri, við­bragða um borð við meiðslum far­þega og skemmdum og lækn­is­með­ferða slas­aðra far­þega.“

Hér fyrir neðan má sjá aðeins örlítið brot af storm­inum sem skall á skip­inu.

Hér má svo sjá lengri mynd­skeið um storm­inn:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta